Fréttir
Eyðibýlið Horn
Eyðibýlið Horn
Eyðibýlið Horn

11.06.2009 Fréttir

Kvikmyndagerð úti á Horni

Framkvæmdir að Horni eru unnar í samráði við Sveitarfélagið Hornafjörð, Fornleifavernd Ríkisins og Umhverfisstofnun en ekki verður um neinn uppgröft á jarðvegi að ræða

Ákveðið hefur verið að Víkingamyndin sem leikstýrð er af Baltasar Kormák verður tekin upp að hluta við gamla bæjarstæðið Horn undir hlíðum Vestrahorns.  Líklegt er að fleiri tökustaðir verðir valdir í nágrenni Hafnar en það mál er í skoðun.  Framkvæmdir að Horni eru unnar í samráði við Sveitarfélagið Hornafjörð, Fornleifavernd Ríkisins og Umhverfisstofnun en ekki verður um neinn uppgröft á jarðvegi að ræða.  Allar framkvæmdir miðast við að vera afturkræfar og malapúðar lagðir undir víkingabæinn.  Ekki verður farið inn á þau svæði sem geyma fornminjar og þau merkt sérstaklega og lokað fyrir umferð framkvæmdaraðila.  Húsarústir af öðru af steinsteyptu húsunum verður fjarlægt í samráði við Húsafriðunarnefnd og byggð verður leikmynd í kringum það hús sem eftir stendur.

Áætlað er að byggingartímabilið standi fram á sumar en tökur hefjast næsta vor.  Má þá búast við miklum fjölda starfsmanna og leikara í kringum tökurnar.

Verkefnið er spennandi fyrir samfél eins og Hornafjörð og skapar tækifæri fyrir iðnaðarmenn og þjónustufyrirtæki að blómstra enn frekar þar sem samfélagið stækkar yfir framkvæmda- og tökutímabil.  Verkefnið felur einnig í sér tækifæri til landkynningar og staðbundna kynningu fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð.  Í Sveitarfélaginu Hornafirði er að byggjast upp reynsla  og þekking á að sinna verkefnum að þessum toga og nauðsynlegt að halda áfram að byggja upp fjölbreydd atvinnutækifæri.

-Tækni- og umhverfissvið Hornafjarðar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica