Klifurveggur og skiptitjald
Um síðustu helgi var sett upp skiptitjald í íþróttahúsið og klifurveggur. Skiptitjaldið skiptir íþróttasalnum í tvennt sem gefur möguleika á að hægt er að stunda tvær ólíkar íþróttagreinar samtímis í húsinu. Eins eykur þetta möguleika skólanna á að nýta húsið betur fyrir skólaíþróttir. Það voru fyrirtæki hér á staðnum, Segl og saumur og Ísnet sem hönnuðu og settu upp skiptitjaldið. Klifurvegg hefur verið komið fyrir í einu horni salarins sem gefur möguleika á að æfa sig í klifri. Það voru félagar úr Björgunarfélagi Hornafjarðar sem áttu veg og vanda af kostnaði og uppsetningu veggjarins. Með komu tjaldsins og veggjarins fæst betri nýting og meiri fjölbreytni í íþróttahússalnum.
Haukur Helgi Þorvaldsson
Forstöðumaður íþróttamannvirkja





Skrifa athugasemd