Umhverfisviðurkenningar 2009
Undanfarin ár hefur af þessu tilefni verið efnt til Umhverfisþings
Árið 1999 sem ákveðið var að lýsa 25. apríl sem sérstakan dag umhverfisins á Íslandi. Dagurinn er hugsaður sem hvatning til skólafólks og almennings að kynna sér betur samskipti manns og náttúru og sem tækifæri fyrir stjórnvöld, félagasamtök og fjölmiðla til að efla opinbera umræðu um umhverfismál. Alþjóðlegur dagur umhverfisins, skv. yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna, er 5. júní, en sú dagsetning þótti ekki henta íslenskum aðstæðum, þar sem mikilvægt þótti að hvetja skólafólk til að vinna að verkefnum tengdum umhverfismálum. Því þótti 25. apríl henta vel, þar sem sá dagur ætti að henta skólafólki, hann er í sumarbyrjun þegar flestir fara að huga að útivist og hann er fæðingardagur Sveins Pálssonar, eins fyrsta náttúrufræðings Íslendinga. Sveinn var sá maður íslenskur sem e.t.v. fyrstur vakti máls á þeirri hugsun sem nú gengur undir heitinu sjálfbær þróun.
Undanfarin ár hefur af þessu tilefni verið efnt til Umhverfisþings. Yfirskrift þessa þings í ár var Umhverfi og samfélag í mótun. Að þessu sinni voru umfjöllunarefnin akstur utanvega og gildi deiliskipulags sem stjórntæki í umhverfis- og náttúruvernd og nálguðust framsögumenn viðfangsefnið frá mismunandi sjónarhornum.
Umhverfisviðurkenningar Hornafjarðar 2009 voru veittar á Umhverfisþinginu. Í flokki einstaklinga hlutu Vigdís Vigfúsdóttir og Ásbjörn Þórarinsson viðurkenningu fyrir gott viðhald húsa og snyrtilegar lóðir í þeirra eigu. Í flokki fyrirtækja/lögbýla féll viðurkenning í hlut ábúenda á Vík í Lóni fyrir gott viðhald húsa og snyrtilegt umhverfi á lögbýlinu. Og fyrir farsælt og eftirtektarvert starf að umhverfis- og náttúruverndarmálum hlutu viðurkenningu að þessu sinni leikskólarnir Krakkakot og Lönguhólar og er viðurkenningin veitt fyrir markvissa fræðslu í umhverfis- og náttúruvernd. Öllum þessum aðilum óskum við til hamingju, þau eru öðrum hvatning til góðra verka.
Undanfarna daga höfum við verið minnt óþyrmilega á hversu máttug náttúruöflin eru en um leið ætti það að vera áminning um að vera vakandi í náttúruverndar- og umhverfismálum og láta ekki okkar eftir liggja í þeim efnum. Spilla ekki móður jörð að ástæðulausu og hugsa hvert skref sem tekið er.
Sigurlaug Gissurardóttir, formaður umhverfisnefndar




Skrifa athugasemd