Fréttir
Vinnuskóli I 2010
Vinnuskóli I 2010
Mynd 1 af 3
1 2 3

10.07.2010 Fréttir

Starf vinnuskólans sumarið 2010

Sumarið líður hratt og núna eru aðeins rúmar 3 vikur eftir af Vinnuskólanum.  Unglingarnir hafa staðið sig gríðarlega vel og eiga mikið hrós skilið fyrir störf sín í sumar.  Við tókum góða rispu í leikvöllum bæjarins þar sem leiktæki voru máluð og umhverfi snyrt, auk þess sem þau lögðu hart að sér í að gera bæinn kláran fyrir Humarhátíðina.

Í sumar höfum við einnig gert ýmislegt skemmtilegt.  Um miðjan júní vorum við með leikjadag þar sem hóparnir kepptu sín á milli í hjólböruakstri, körfubolta, fótbolta og mörgum öðrum greinum.  Á föstudaginn síðasta fórum við svo í ratleik sem hópurinn hennar Elvu vann með yfirburðum.  Ratleikurinn heppnaðist einstaklega vel og eru strax komnar óskir um annan ratleik áður en sumarið klárast.    Krakkarnir mættu svo í ruslatínslu á lagardags- og sunnudagsmorgun á Humarhátíðinni. Mætingin var mjög góð báða dagana og mikið rusl sem var safnað saman.

 

Næst á dagskrá hjá okkur í Vinnuskólanum er árleg útilega í Haukafell, en hún verður miðvikudaginn 21. júlí.  Nánari upplýsingar um ferðina fá krakkarnir þegar nær dregur, en það er ljóst að eins og áður verðum við að fá aðstoð hjá foreldrum til að koma okkur á milli staða.

 

Að lokum viljum við svo benda á heimasíðu Vinnuskólans.  Þar eru meðal annars upplýsingar um starfsfólk, launakjör og reglur Vinnuskólans.  Þangað munum við svo setja inn fréttir og tilkynningar sem tengjast Vinnuskólanum.

 

Steinunn Hödd Harðardóttir

 

Verkstjórar Vinnuskólans

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica