Fréttir
Skolasetning_001_a_vef
Skolasetning_001_a_vef
5. bekkur

26.01.2009 Fréttir

Útboð á skólamáltíðum

 

Bæjarráð Hornafjarðar hefur tekið ákvörðun um að bjóða út skólamáltíðir fyrir Grunnskóla Hornafjarðar. Ljúki þessu útboði með samningi við verkataka mun allur hádegismatur fyrir nemendur og starfsfólk verða eldaður utan skólans. Verður það nokkur breyting frá því sem verið hefur því nemendur í 1. – 3. bekk hafa neytt matar í mötuneyti skólans í Nesjum. Þessi ákvörðun er m.a. tekin í tengslum við þær breytingar sem verða á Grunnskóla Hornafjarðar frá og með næsta skólaári. Útboðsgögn má nálgast á skrifstofu sveitarfélagsins að Hafnarbraut 27, Höfn frá og með þriðjudeginum 27. janúar 2009. 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica