Fréttir
Atvinnu- og rannsóknasjóður
Atvinnu- og rannsóknasjóður

06.02.2009 Fréttir

Atvinnu- og rannsóknasjóður úthlutar í fyrsta sinn

Atvinnumálanefnd úthlutaði í fyrsta sinn úr atvinnu- og rannsóknasjóði Sveitarfélagsins Hornafjarðar.  Markmið sjóðsins er að efla byggð og atvinnu í sveitarfélaginu með því að veita styrki til verkefna sem lúta að atvinnuþróun og nýsköpun í sveitarfélaginu. Þeir sem lögheimili hafa eða reka atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu hafa alla jafnan forgang að úthlutun. Umsóknir sem bárust voru margar og fjölbreyttar og hlutu eftirtalinn verkefni náð fyrir augum atvinnumálanefndar.

  

Aðili Verkefni
Verkefnahópur um söguslóðaverkefnið

Söguslóð á suðausturlandi:  Undirbúning sýninga um Papa og

uppsetning söguskilta frá Djúpavogi til Ingólfshöfða

Ríki Vatnajökuls

Þróun á fjallaferðaþjónustu og fjallamenningu í Ríki Vatnajökuls:

Gera svæðið afeitt af eftirsóknarverðustu svæðum N-Evrópu til fjalla-

Og jöklaferða

Háskólasetrið á Hornafirði

Þróun fuglaferðaþjónustu í Ríki Vatnajökuls: Merkja fuglaskoðunarstaði

og efla fuglaferðaþjónustu á svæðinu

Hjalti Egilsson Gerð viðskiptaáætlunar um framleiðslu áfengis úr úrgangskartöflum
Fjöruferðir Uppbygging Fólkvangs á Melatanga
Ferðaþjónustan Hoffelli

Heilsulindir í Hoffelli: Forrannsókn og þróun á heilsubætandi áhrifum

jarðhitans í Hoffelli

Þórbergssetur Efling starfsemi og frekari uppbygging sýninga í Þórbergssetri
Matthildur Ásmundardóttir

Heilsuefling: Gera rannsókn á hvort íhlutun geti leitt til aukinnar

hreyfingar og bættrar heilsu

Skaftafellsstofa

Víkingar af lífi og sál: Útbúa leikgerð um víkinga sem setja má upp á

ferðamannastöðum

Skaftafellsstofa

Líf og störf í Öræfum á síðustu öld: Safna og skrá gamlar myndir úr

Öræfum

Humarhöfnin Segja sögu veiða og vinnslu á Leturhumri í Hornafirði
Hanna Jónsdóttir Mypressues: Koma upp vinnuaðstöðu og starfsemi í hönnun
Árdís Halldórsdóttir

Höfn - Þéttbýlið við þjóðgarðinn : Meta stöðu og ímynd Hafnar sem

ferðamannastaðar

Handraðinn

Hönnun á prjónamunstri: Útbúa sérstakt prjónamynstur í húfur, peysur

o.fl. sem er með vísan í þetta svæði

Fuglaathugunarstöð Suðausturlands

Álftarrannsóknir í Austur-Skaftafellssýslu: Gera rannsókn á fjölda og

skaðsemi álfta á túnum bænda í sýslunni

Ferðaþjónustan í Hólmi Húsdýragarður í Hólmi á Mýrum: Koma á fót húsdýragarði í Hólmi


 

Fyrir áramót setti sveitarfélagið á stað sérstakt átaksverkefni um smáframleiðslu matvæla í samvinnu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Matís ohf.  Um er að ræða stuðningsverkefni sem ætlað er einstaklingum og fyrirtækjum í Sveitarfélaginu Hornafirði sem vilja vinna að framleiðslu og þróun á matvælum í matvælasmiðju Matís á Hornafirði. Matvælasmiðjan var opnuð í byrjun nóvember 2008 og er sérstaklega sett upp til að styðja við frumkvöðla og fyrirtæki sem vilja hefja virðisaukandi smáframleiðslu matvæla úr íslensku hráefni. Atvinnumálanefnd úthlutaði nýverið styrkjum í verkefnið sem eru eftirfarandi:

Nafn Heiti verkefnis
Eyþór Sigurðsson Nýjar afurðir úr bleikju til smásölu
Finndís Harðardóttir Frostþurrkaðar kryddjurtir frá Dilknesi
Gísli Karl Ágústsson Lúra
Eiríkur Egilsson Nautakjötsafurðir frá Seljavöllum
Hornfirska álafélagið Heitreyktur áll í neytendaumbúðum
Hólabrekkuafurðir Sýrt grænmeti frá Hólabrekku
Humarhöfnin Framleiðsla á humarsoði og þróun afurða í neytendapakkningar
Ingólfur Einarsson Framleiðsla á rauðlaukssultu fyrir neytendamarkað
Ísen ehf. Heitreyktar andabringur
Kokkur Humarsoð til smásölu
Sæmundur Jón Jónsson Jöklaís - þróun á staðbundnu bragðefni til notkunar í ísframleiðslu
Sævar Kristinn Jónsson Fullvinnsla svínakjöts frá vistvænu búi
Laufey Helgadóttir Þokulamb frá Smyrlabjörgum
Þrúðmar Þrúðmarsson Náttúru sterkur (fullvinnsla folalda- og hrossakjöts)


Stefnt er að því að lokaafrakstur hvers verkefnis sé afurð tilbúinn á markað. Styrkur veitist ekki til frumhugmynda eða gerð viðskiptaáætlana.

Atvinnu- og rannsóknasjóður mun árlega auglýsa eftir umsóknum og veita styrki til að efla byggð og atvinnulíf í héraðinu.

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica