Stækkun á endurvinnslubragga.
Verið er að leggja lokahönd á stækkun á aðstöðu móttöku á flokkuðum úrgangi.
Starfmenn þjónustustöðvar Hornafjarðar eru að vinna að stækkun á móttökuhúsi fyrir flokkaðan úrgang. Gert er ráð fyrir aukningu á móttöku flokkaðs úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði með breyttu fyrirkomulagi í sorphirðu í sveitum. Einnig er ráðgert að taka á móti pressugám frá Nettó á Höfn en þar fellur til mikið magn af flokkanlegum úrgangi svo sem bylgjupappa og mjúku umbúðarplasti. Ennfremur er búið að fjölga grenndargámastöðvum í þéttbýlinu Höfn. Með þessu breytta fyrirkomulagi í sorphirðu var nauðsynlegt að bæta aðstöðu fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi.
Sveitarfélagið stefnir að því að vera fremst meðal jafningja í umhverfismálum enda á það vel við með tilkomu stærsta þjóðgarðs Evrópu, Vatnajökulsþjóðgarð, og þá uppbyggingu sem orðið hefur í móttöku á ferðamönnum í Sveitarfélaginu Hornafirði.
HIE





Skrifa athugasemd