Atvinnumálanefnd Hornafjarðar auglýsir eftir umsóknum í atvinnu- og rannsóknasjóð
Árið 2009 veitti Sveitarfélagsins Hornafjarðar styrki til 15 verkefna úr atvinnu- og rannsóknasjóði sem stofnaður var árið 2008. Markmið sjóðsins er að efla byggð og atvinnu í sveitarfélaginu og ætlað að veita styrki til atvinnuþróunar, nýsköpunar og rannsókna. Þeir sem hafa lögheimili í sveitarfélaginu og hafa þar fasta búsetu geta sótt um styrki til sjóðsins. Atvinnumálanefnd Hornafjarðar hefur umsjón með sjóðnum og tekur við umsóknum og afgreiðir þær.
Nánari upplýsingar veitir Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Hornafjarðar, í síma 470 -8000 / 822-7950 og í netfangið hjaltivi@hornafjordur.is
Umsóknarfrestur er til 10. desember 2009.
Reglur sjóðsins má finna hér. (pdf)
Umsóknareyðublað má finna hér. (doc)





Skrifa athugasemd