Unnið að ráðningu sumarskóla vinnuskólans
Nú er unnið að ráðningu í vinnuskólann fyrir árið 2010. Alls bárust 49 umsóknir í 14 lausar stöður, en ráðnir eru 6 flokkstjórar og 6 í sláttuhóp. Umsjónaraðilar með vinnuskóla og sláttuhóp eru Steinunn Hödd Harðardóttir og Finnur Smári Torfason. Umsóknir í flokkstjóra voru 25 og umsóknir í sláttuhóp voru 20 ásamt því að fjórar umsóknir bárust í umsjón með Sindravöllum og umsjón með skólagörðum. Það er gott að sjá að svona mikla aðsókn í störf vinnuskólans og að sama skapi erfitt að þurfa vísa mörgum góðum umsækjendum frá þetta árið.
Þegar ráðið er í störf vinnuskólans er haft að leiðarljósi, menntun, fyrri störf, aldur, búseta o.fl þættir.
Haukur Ingi Einarsson
Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs Hornafjarðar





Skrifa athugasemd