Umhverfi og samfélag í mótun
Umhverfisnefnd stendur fyrir málþingi þriðjudaginn 20. apríl n.k kl 16:10 á Hótel Höfn í tilefni af Degi umhverfisins eins og nefndin hefur staðið fyrir undanfarin tvö ár. Efni málþingsins þetta árið er tvíþætt annarsvegar verður rætt um utanvegaakstur og skaðleg áhrif hans á náttúru Íslands og hinsvegar verður rætt um deiliskipulag út frá umhverfissjónarmiði. Dagsskrá málþingsins hefst kl 16:10 á Hótelinu og stendur fram til 18:00, dagskráin í heild sinni má finna hér. Umhverfisviðurkenning verður veitt kl 17:00. Umhverfisviðurkenningu hljóta fjórir aðilar og er veitt viðurkenning í þremur flokkum. Í reglum segir m.a
- Sveitarfélagið Hornafjörður veitir árlega einum aðila umhverfisviðurkenningu. Fyrir eftirtektarvert framtak á sviði náttúruverndar, umhverfismála og sjálfbærrar þróunar
- Viðurkenninguna skal veita einstaklingi (um), félagasamstökum, stofnun eða fyrirtæki þ.m.t. lögbýlum til sveita, sem hefur með athöfnum sínum og snyrtimennsku verið til fyrirmyndar og gert umgengni við náttúru og umhverfi að eðlilegum þætti í störfum sínum og rekstri eða hefur á annan hátt lagt mikið af mörkum til verndunar náttúru og umhverfis.
- Einnig veitir Sveitarfélagið Hornafjörður árlega viðurkenningar til einstaklinga fyrir snyrtilega lóð eða götu og til fyrirtækja þ.m.t. lögbýli í sveitum fyrir snyrtilega umgengni og útlit
Tækni- og umhverfissvið hvetur alla þá sem áhuga hafa á umhverfismálum að láta sjá sig á Hótelinu og taka þátt í umræðum málþingsins.
Haukur Ingi Einarsson
Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs




Skrifa athugasemd