Farandsýning Tilraunalandsins á Hornafirði 13. ágúst
Norræna húsið og Háskóli Íslands verða á ferð og flugi um allt land í sumar með farandsýningu Tilraunalandsins. Í Tilraunalandinu kynnast börn og ungmenni undraheimum vísindanna í gegnum leik og skemmtun.
Nú komið að því að kynna Tilraunalandið víða um landið og er Landsvirkjun aðalstyrktaraðili ferðarinnar. Það er ekki ofsögum sagt að nánast öll börn á höfuðborgarsvæðinu þekki Tilraunaland Norræna hússins og Háskóla Íslands. Sýningin hefur slegið í gegn og mörg þúsund manns hafa gert sér ferð niður í Vatnsmýrina.
„Tilraunalandið hefur gefist mjög vel í Vatnsmýri og verið mikið sótt af hópum úr grunnskólum, leikskólum og leikjanámskeiðum, sem og fjölskyldufólki,“ segir Þuríður Helga Kristjánsdóttir, verkefnastjóri Tilraunalandsins. „Af þeim sökum hefur verið ákveðið að gefa fleirum færi á að kynnast vísindunum á þennan lifandi og skemmtilega hátt með því að taka sýninguna á ferð um landið í sumar.“
Tveir vagnar fullir af fjörugum tilraunum Tilraunalandsins munu skrölta um ögrum skorið landið og heimsækja hvern bæinn á fætur öðrum. Hægt verður að fylgjast með ferðum þeirra á sérstakri bloggsíðu, http://www.tilraunalandid.wordpress.com/ , og einnig verður hægt að skoða dagskrána á síðu Norræna hússins, http://www.norrraenahusid.is/ . Vagnarnir eiga ekki að fara framhjá neinum þar sem þeir eru fagurlega merktir Tilraunalandinu og í björtum litum.
Sýningin verður sett upp við Heppuskóla.





Skrifa athugasemd