Nýtt aðalskipulag er í kynningu fjórir kynningafundir hafa verið haldnir.
Kynningargögn um skipulagið má opna hér á heimasíðunni: http://www.rikivatnajokuls.is/stjornsysla/upplysingar/skipulag/
Íbúar eru hvattir til að nýta sér rétt sinn og kynna sér vel þennan stóra málaflokk og senda athugasemdir á skipulag@hornafjordur.is eða Aðalskipulag Sveitarfélagsins Hornafjarðar Hafnarbraut 21. Höfn Hornafirði.
Bæjarstjórnarfundur verður haldinn fimmtudaginn 2. maí kl. 16:15 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Kjörfundir vegna kosninga til Alþingis 27. apríl 2013
Kjörskrá Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna kosninga til Alþingis 27. apríl 2013, hefur verið lögð fram.
Bæjarstjórn Hornafjarðar auglýsir hér með tillögu að
deiliskipulagi við Jökulsárlón í Sveitarfélaginu Hornafirði , skv.1.
mgr. 41. gr. Skipulagslög nr. 123/2010.
Bæjarstjórn Hornafjarðar tók ársreikning fyrir árið 2012 til fyrri umræðu á fundi sínum þann 4. apríl. Rekstrarhagnaður samstæðu Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árið 2012 skv. rekstrarreikningi nam 176 m.kr. og handbært fé frá rekstri skv. sjóðsstreymisyfirlit nam 196,3 m.kr.
190. fundur bæjarstjórnar Hornafjarðar verður haldinn í ráðhúsi,
4. apríl 2013 og hefst kl. 16:00.
Vakin er athygli á tíundi hver gróðurelda eru af manna völdum. Einu náttúrulegu orsakir gróðurelda eru vegna eldinga sem slær niður.
Afhending styrkja Sveitarfélagins Hornafjarðar og Menningarverðlaun fyrir árið 2012 fer fram í Nýheimum miðvikudaginn 13. mars klukkan 17:10.
Sveitarfélagið Hornafjörður ætlar að selja olíumalarstöð og öllu því sem
henni fylgir. Stöðin og það sem verður til sölu er hrærivél/
blöndunarvél, þrír tankar, sílói og færiband
Sveitarfélagið hornafjörður auglýsir útboð á jarðvinnu og lögnum í Fákaleiru og Álaleiru. Óskað er eftir tilboðum í verkið „Fákaleira og Álaleira-Jarðvinna og lagnir“ eins og því er lýst í útboðsgögnum.Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda.
Fyrsti bæjarstjórnarfundur ársins verður haldinn í Ráðhúsi Hornafjarðar Hafnarbraut 27. fimmtudaginn 7. febrúar kl. 16:15.
Boðað er til íbúafundar á
Smyrlabjörgum miðvikudaginn 6. febrúar kl. 20.00 um áform um frekari uppbyggingu fjarskiptakerfis í sveitarfélaginu.
Álagningaseðlar fasteignagjalda í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árið 2013 hafa verið gefnir út rafrænt.
Greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda birtast sem krafa í heimabanka viðkomandi fasteignargreiðanda eða á island.is.
Frá áramótum verður biðstöð Strætó á Höfn við Sundlaug Hafnar þar sem miðasalan er í dag og ekki þarf að panta Strætó frá 6. janúar.
Þann 1. janúar taka nýjar gjaldskrárbreytingar gildi. Helstu gjaldskrárhækkanir eru vegna fæðiskostnaðar og tónlistarkenslu. Þrátt fyrir þessar hækkanir eru gjöld hjá sveitarfélaginu með þeim lægstu og hja´sambærilegum sveitarfélögum.
Opnunartími stofnanna bæjarins um hátiðarnar, Sundlaug Hafnar, Menningarmiðstöð og Ráðhús.
Sendum íbúum, starfsfólki og landsmönnum öllum, bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Sú nýbreyttni hefur verið tekin upp að ekki verða send út jólakort frá Sveitarfélaginu Hornafirði, þess í stað verður Samfélagssjóður Hornafjarðar styrktur.
Sveitarfélagið hornafjörður auglýsir útboð á fráveitu við Miðós.
Óskað er eftir tilboðum í verkið „Fráveita við Miðós“ eins og því er lýst í útboðsgögnum.
Atvinnu- og menningarmálanefnd Hornafjarðar auglýsir eftir umsóknum í atvinnu- og rannsóknasjóð Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
FUNDARBOÐ
187. fundur bæjarstjórnar Hornafjarðar verður haldinn í ráðhúsi,
6. desember 2012 og hefst kl. 16:00.
Samkvæmt reglugerð liggja drög að hreindýraarði í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árið 2012 nú frammi til skoðunar í afgreiðslu ráðhúss.
Nú fer sá tími að koma að þeir aðilar sem þeir sem búsettir eru í Sveitarfélaginu Hornafirði, en voru ekki skráðir með lögheimili þar samkvæmt síðustu íbúaskrá þurfa að tilkynna um rétt lögheimil fyrir 1. des.nk..
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið „Gamlabúð-
2. áfangi“ eins og því er lýst í meðfylgjandi útboðsgögnum. Hér er um
almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda.
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar var tekin til fyrri umræðu í bæjarráði þann 30. október og vísað til bæjarstjórnar sem tóka hana fyrir á fundi sínum þann 1. nóvember.
Framhaldsskóla- eða háskólanemar sem ekki fá dreifbýlisstyrk geta
sótt um niðurgreiðslu á nemakortum eða 9 mánaða kortum um 4.000 kr.
Umsóknareyðublaði er á heimasíðu sveitarfélagsins undir umsóknir eða hjá þjónustufulltrúa sveitarfélagsins að Hafnarbraut 27 Höfn.
Sveitarfélagið hornafjörður auglýsir útboð á nýrri urðunarrein og hreinsivirki á urðunarsvæði í Lóni.
Flugfélagið Ernir hefur haldið úti flugsamgöngum við Vestmannaeyjar, Húsavík, Höfn í Hornafirði, Bíldudal og Gjögur. Árið 2007 var gerður verksamningur við Vegagerðina við Flugfélagið Erni um áætlunarflug til Hafnar í Hornafirði, Bíldudals og Gjögurs.
Bæjarstjórn Sveitafélagsins Hornafjarðar hefur ákveðið að fram fari endurskoðun á gildandi aðalskipulagi sveitafélagsins og samþykkti á fundi sínum þ. 4. okt. s.l. verkefnislýsingu sem hér með er auglýst til kynningar.
Þeir sem vilja koma inn erindum eða
styrkumsóknum í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2013 þurfa að
skila umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á skrifstofu
sveitarfélagsins.
Kjörfundir vegna ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla
um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til
stjórnarskipunarlaga og tiltekin álitaefni þeim
tengd verða 20. október 2012
Matthildur Ásmundardóttir hefur verið ráðin Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands. Hún mun hefja störf 1. nóvember en þá lætur Guðrún Júlía af störfum..
Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir útboð á viðbyggingu við leikskólann Krakkakot Víkurbraut 24.
Hér birtast drög að stefnu í íþrótta,- æskulýðs- og tómstundamálum fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð. Þau eru send öllum nefndum sveitarfélagsins til umsagnar, öllum hagsmunaaðilum s.s. ungmenna- og íþróttafélögum, skólum og öðrum sem hagsmuna hafa að gæta.
Kjörskrá vegna, áðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga og tiltekin álitaefni þeim tengd hefur verið lögð fram.
Sigurður Guðmundsson hafnsögumaður hefur verið ráðinn forstöðumaður Hornafjarðarhafnar. Hann mun hefja störf sem forstöðumaður Hornarfjarðarhafnar 1. nóvember en þá lætur Sigfús Harðarson af störfum sem yfirhafnsögumaður
Vel heppnuð og vel sótt afmælisráðstefna Nýheima og FAS um mennta og menningamál var haldin í fyrirlestrasal Nýheima. Í upphafi ráðstefnunnar var undirrituð viljayfirlýsing um eflingu á starfi Nýheima á sviði menningar, menntunar, rannsókna og nýsköpunar.
Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.
Ef innanlandsflug flyst frá Reykjavík leggst flug til Hornafjarðar nánast af og öryggi sjúklinga stefnt í hættu vegna aukinnar fjarlægðar í sjúkrahúsin í Reykjavík
Samkvæmt fréttum RÚV þann 17. október eru skólamáltíðir misjafnlega verðlagðar hjá sveitarfélögum landsins.
Ákveðið hefur verið að breyta opnunartíma í ráðhúsi Hornafjarðar til að koma til móts við íbúa og þjónustuaðila sveitarfélagsins.
Liggur frammi hjá eftirtöldum aðilum:
Óskað er eftir hugmyndum og tillögum um umhverfisviðurkenninguna fyrir árið 2012 frá íbúum Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
ATVINNA
Fundarröð Öryrkjabandalags Íslands á Höfn mánudaginn 14. maí 2012 kl. 15:00 í Nýheimum.
Lausar stöður við leikskólann Lönguhóla Hornafirði
Laugardaginn 24. mars sl. var haldinn opinn stefnumótunarfundur um æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamál í Nýheimum. Góð mæting var á fundinn og umræður á honum voru mjög góðar. Niðurstöður fundarins munu sannarlega nýtast við áframhaldandi vinnu við gerð stefnu í málaflokknum.
Nýverið var auglýst eftir umsóknum í starf fræðslustjóra hjá Sveitarfélaginu Hornafirði. Alls bárust fimm umsóknir er nú unnið að úrvinnslu á þeim.
Grunnskóli Hornafjarðar fer í sína árlegu hreinsun fimmtudaginn 29. mars og líkur deginum með umhverfishátíð.
Fræðslustjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Sveitarfélagið Hornafjörður bendir nú gjaldendum fasteignagjalda á að álagningaseðla má nálgast á www.island.is.
Sumarstörf vinnuskóla 2012
Jarðvinna, steypa og flutningur
Farþegar eiga þann valkost að standa frekar en að bíða eftir næsta vagni
Sveitarfélagið sendir út árlega um 10.000.- greiðsluseðla
Auglýsing um útboð vegna endurbóta á skólahúsnæði
Um er að ræða 100% starf
Á síðasta fundi Bæjarstjórnar Hornafjarðar var samþykkt breytingatillaga á deiliskipulaginu Knatthús Höfn. Upphaflegt skipulag var samþykkt í nóvember 2008 og því um að ræða breytingu á staðfestu skipulagi.
Deiliskipulag - Frístundabyggð Stafafellsfjöll
Óskað er eftir umsóknum í SLÁ 2, SLÁ 4 og B 17
Á fundi
Bæjarráðs Hornafjarðar sem fram fór í gær var eftirfarandi samþykkt: Bæjarráð Hornafjarðar þakkar Vegagerðinni fyrir vasklega framgöngu í smíði brúar yfir Múlakvísl.
Bæjarráð telur mikilvægt að málinu verði hraðað eins og kostur er þar sem verkefnið falli vel að markmiðum yfirvalda um mannaflsfrekar og hagkvæmar framkvæmdir.
Skóla-, íþrótta-, og tómstundanefnd leiddi hönnunarvinnu í samstarfi við ASK arkitekta er snýr að heildar viðhaldi Heppuskóla. Hönnunin tekur bæði á viðhaldi utan húss og endurbótum innan veggja skólans.
Nú á vordögum tók Rúnar við af Hákoni Valdimarssyni sem byggingarfulltrúi sveitafélagsins en hann mun einnig hafa umsjón með umhverfis- og skipulagsmálum.
Á fundi skólanefndar þann 23. mars 2011 var samþykkt að skipa sérstakan rýnihóp til að fara yfir leikskólamál og gera tillögur um málaflokkinn.
Almannavarnarnefnd Hornafjarðar telur ástæðu að brýna fyrir fólki að fara ekki um svæðið á meðan ennþá er hætta á öskufalli nema að brýna nauðsyn beri til.
Í dag kom Fjölskyldustefna Hornfjarðar út í fyrsta sinn en hún verður gefin út auk íslensku á ensku og pólsku
Gunnar Ingi Valgeirsson tekur við af Hauki Helga Þorvaldssyni sem forstöðumaður íþróttamannvirkja í sumar. Gunnar Ingi á langan feril að baki í störfum fyrir íþróttahreyfinguna á staðnum, sem lögreglumaður og eigandi öryggisþjónustufyrirtækis.
Um er að ræða framtíðarstörf, möguleiki er á að ráða í starf 13-17 tímabundið
100 % starf í Þjónustustöð Hornafjarðar
Það sem af er árinu hafa um 11.000 gestir heimsótt sundlaugina sem eru nokkuð færri gestir en á sama tíma í fyrra.
Velferðaráðuneytið og Vinnumálastofnun standa í sumar fyrir átaksverkefni til að fjölga störfum á vegum stofnana ríkisins og sveitarfélaga, fyrir námsmenn og atvinnuleitendur. Hér finnur þú upplýsingar um störf sem í boði eru hjá Sveitarfélaginu Hornafjörður.
Fundurinn verður haldinn í Hafnarkirkju fimmtudaginn 28. apríl n.k kl 17:00
Verkinu skal fullu lokið eigi síðar en 24. ágúst 2011
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árið 2010 var lagður fram á bæjarstjórnar fundi þann 7. apríl. Helstu niðurstöður hans er að afkoma samantekins A og B hluta er jákvæð um 144 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir 97 milljóna króna afgangi.
Í desember 2010 veitti bæjarstjórn Hornafjarðar tveimur milljónum króna til að efla handverk og hönnun á Hornafirði. Jafnframt ákvað bæjarstjórn að útfæra hugmyndina í samstarfi Framhaldsskólans, Grunnskóla Hornafjarðar og handverks- og hönnunarfólks.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur áherslu á að umhverfi
sveitarfélagsins sé snyrtilegt. Að því
tilefni er blásið til sóknar í fegrun umhverfis dagana 8. – 11. apríl.
Nefndin hefur fengið skóla, starfsmenn sveitarfélagsins og félagasamtök
í lið með sér þessa daga þar sem tekið verður til á ýmsum stöðum í
sveitarfélaginu.
Nokkur umræða hefur verið um leikskólamál á Hornafirði undanfarið. Segja má að umræðan sé tvískipt. Annars vegar hefur fólk rætt um biðlista sem lengst hafa síðustu mánuði og hvernig bregðast megi við þeim og hins vegar um skipulag leikskólamála.
Nú vinnur Sveitarfélagið að því að koma nýjum tunnum til íbúa í Öræfum.
Úttekt á starfsemi Grunnskóla Hornafjarðar október 2010 til janúar 2011
Sveitarfélagsið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið - Nýjar útrásir frárennslis á Leirusvæði
Atvinnu- og menningarmálefnda auglýsir eftir umsóknum í atvinnu- og rannsóknasjóð. Athygli er vakin á því að reglur sjóðsins hafa tekið breytingum. Einnig er vakin athygli á að bæjarstjórn hefur aukið fjármagn til sjóðinn.
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 27. maí 2011
Aukin endurvinnsla getur skilað fjárhagslegum ávinningi fyrir íbúa.
Fréttatilkynning vegna fjárhagsáætlunar Hornafjarðar fyrir árið 2011 ásamt þriggja ára áætlun 2012-2014
Skipulagningu er ætlað að stuðla að uppbyggingu atvinnu- og þjónustuhúsnæðis í miðbæ Hafnar
Sveitarfélagsið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í endurbætur á Ráðhúsi Hornafjarðar
Víkurbraut frá horni Heppuskóla og að gatnamótum við Fákaleiru verður lokað miðvikudag og fimmtudag
Sveitarfélagsið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í frágang á Hreinsivirki við Leiðarhöfða
Með sameiginlegu átaki allra íbúa sveitarfélagsins má bæta ásýnd þess svo úr verði eitt snyrtilegasta sveitarfélag landsins.
Spennandi og gefandi starf með skóla
Síðast liðið sumar létu Erna Einarsdóttir, aðalbókari, og Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi af störfum. Þann 1. september tóku gildi breytingar á embættum sveitarfélagsins en þær eru helstar að tækni-og umhverfissvið sveitarfélagsins er sameinað fjármálasviði.
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir að ráða í tvær fullar stöður
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í endurbætur á Bræðslubryggju
Stjórn körfuknattleiksdeildar Sindra og Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar vígja völlinn miðvikudaginn 25. ágúst kl. 17:00
Fundartímar Umhverfis- og skipulagsnefndar verða 1. miðvikudag hvers mánaðar.
Í Tilraunalandinu kynnast börn og ungmenni undraheimum vísindanna í gegnum leik og skemmtun
Í sumar, eins og áður, hafa Skólagarðar Hornafjarðar verið starfræktir. Umsjónarmaður Skólgarðanna í ár var Heba Björg Þórhallsdóttir.
Fyrsta æfingin á nýja gervigrasvellinum í Sveitarfélaginu Hornafirði
Unglingarnir hafa staðið sig gríðarlega vel og eiga mikið hrós skilið fyrir störf sín
Auglýsir eftir umsóknum í beitilönd til haust og sumarbeitar í Óslandi, Lyngey, Standey og Álaugarey
Stöðugur vöxtur hefur verið í skilum á flokkanlegum úrgangi sem sendur er til endurvinnslu.
Hulda Laxdal Hauksdóttir hefur verið ráðin skólastjóri við Grunnskóla Hornafjarðar
Byrjað var að leggja malbik á 1,5 km langan göngustíg í morgun.
Vinnuskólinn og Skólagarðarnir hefji göngu sína í júní
Allar ábendingar um það sem betur má fara eru vel þegnar. Fagur bær betri bær.
Árið 1999 sem ákveðið var að lýsa 25. apríl sem sérstakan dag umhverfisins á Íslandi.
Flestir gróðureldar verða á vorin og snemma sumars og það þarf enga langvarandi þurrka til þess að hætta á gróðureldum skapist
Málefni fatlaðra auglýsir eftir starfsfólki í sumarafleysingar, um er að ræða kvöld, helgar eða dagvaktir, starfshlutfall eftir samkomulagi
Á Sumardaginn fyrsta er ársafmæli nýju sundlaugarinnar. Óhætt er að segja að afmælisbarninu hafi verið vel tekið og það fengið margar og góðar heimsóknir, því um 65.000 gestir hafa litið við og notið gestrisni þess frá opnun.
Umhverfisnefnd stendur fyrir málþingi þriðjudaginn 20. apríl n.k kl 16:10 á Hótel Höfn í tilefni af Degi umhverfisins eins og nefndin hefur staðið fyrir undanfarin tvö ár.
Unnið hefur verið að því að fá malbikunarfyrirtæki á svæðið til að leggja út malbik
Föstudaginn 16. apríl n.k. verður Ráðhús Hornafjarðar lokað vegna starfsdags starfsmanna, beðist er velvirðingar á lokuninni.
Sjö sóttu um stöðu skólastjóra við Grunnskóla Hornafjarðar
Að gefnu tilefni vill tækni- um umhverfissvið Hornafjarðar koma eftirfarandi ábendingum til hundaeiganda í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Skírdag 1.apríl frá kl. 10:00 – 17:00.
Föstudagurinn langi 2.apríl – LOKAÐ
Laugardagur 3.apríl kl. 10:00 – 17.00.
Páskadagur 4.apríl Kl. 10:00 – 17:00.
Annar í páskum 5.apríl kl. 10:00 – 17.00.
Íþróttahúsinu á Höfn breytt og bætt.
Um síðustu helgi var sett upp skiptitjald í íþróttahúsið og klifurveggur
Verkið felst í að reisa viðbyggingu og tengigang, samtals 86 m². Jarðvegsskiptum hefur verið lokið.
Nú er unnið að ráðningu í vinnuskólann fyrir árið 2010. Alls bárust 49 umsóknir í 14 lausar stöður, en ráðnir eru 6 flokkstjórar og 6 í sláttuhóp.
11.2 dagurinn á Slökkvistöð Hornafjarðar fimmtudaginn 11. febrúar eins og undanfarin ár. Þema dagisins er aðkoma venjulegs fólks að vettavngi slysa, veikinda og áfalla.
Megin breytingar eru fólgnar gegnsæi í gjaldtöku sem leiða á af sér aukna endurvinnslu úrgangs, fyrirtæki greiða þar að leiðandi fyrir magn en eru ekki sett í fyrirfram ákveðna flokka eins og áður var.
Sumarið 2010
Bæjarstjóri sagði fjárhagsstöðu sveitarfélagsins ágæta sem gerði sveitarfélaginu kleift að halda úti nær óbreyttri þjónustu við íbúa og töluverðum framkvæmdum á næsta ári án þess að tekin verði ný lán í A- hluta sveitarsjóðs.
Í upphafi eldvarnaviku komu krakkar frá leikskólanum Krakkakoti með Bjössa bangsa í heimsókn.
Fyrsti sunnudagur í aðventu er nk.sunnudag, þann dag verða ljósin tendruð á jólatré Hornafjarðar við hátíðlega athöfn kl. 17.00.
Hunda og kattaeigendur á Hornafirði
Næstkomandi daga fer fram í bæjarfélagi Hornafjarðar ormahreinsun hunda og katta .
Atvinnumálanefnd Hornafjarðar auglýsir eftir umsóknum í atvinnu- og rannsóknasjóð Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Undir íþróttamiðstöðina heyra: Íþróttahúsið Höfn, íþróttahúsið og félagsheimilið í Mánagarði , sparkvöllurinn, Sindra- og Mánavöllur og Sundlaug Hafnar.
Framkvæmdir í sýslunni ganga ágætlega.
Ákveðið hefur verið að Víkingamyndin sem leikstýrð er af Baltasar Kormák verður tekin upp að hluta við gamla bæjarstæðið Horn undir hlíðum Vestrahorns.
Aðalskipulag er mikilvægt gagn fyrir samfélög þar sem stefna sveitarfélaga til margra ára er lögð til grundvallar í tengslum við uppbyggingu íbúðarsvæða, atvinnumála, umhverfismála, félagsmála og fleiri þátta.
Vinnuskólinn verður að mestu með hefðbundnu sniði, þó verður lögð meiri áhersla á fræðslu samhliða starfi í ár og fluttir 2 – 3 fyrirlestrar sem tengjast starfinu
Rúmlega 56 tonn fóru til endurvinnslu og var um að ræða baggaplast, sléttan pappír, bylgjupappír, dagblöð og tímarit og mjúkt plast.
Varptími fugla er nú hafinn og mikilvægt að fuglar hafi næði til að koma upp ungum sýnum. Þess vegna er mikilvægt að allir kettir séu með bjöllur um hálsinn yfir varptímann.
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir að ráða launafulltrúa í 80% starf.
Á málþingi sem haldið var í Nýheimum sl. sunnudag var veitt umhverfiviðurkenning fyrir árið 2008
Sveitarfélagið Hornafjörður stendur fyrir málþingi í tilefni af Degi umhverfisins.
Vakin er athygli á að einn af hverjum tíu gróðureldum eru af manna völdum
Ný er verið að leggja lokahönd á þrif sundlaugar. Allt stýrikerfi er farið að virka eins og það á að gera. Nú er bara að stinga sér til sunds.
1. Áfangi göngustígagerðar frá Silfurbraut að Leiðarhöfða
Allir verktakar vinna nú hörðum höndum við lokafrágang laugarinnar.
Unnið er að því að mála kanta laugarbakka og vaðlaug fyrir yngir kynslóðina
Bætum umhverfið okkar og hirðum upp eftir hundana okkar
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Guðrún Valgeirsdóttir framkvæmdastjóri undirrita samning um skólamáltíðir
Tilboð í sundlaugina v/Hafnarbraut verða opnuð á skrifstofu Fasteignasölunnar InnI að Hafnarbraut 15, Höfn kl. 15:00 í dag 17.mars.
Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir útboð vegna breytinga á eldri hluta Grunnskóla Hornafjarðar – Hafnarskóla
Hans vinnur að viðhaldi í Suðursveit
Verið er að undirbúa jarðvinnu fyrir færanlegar kennslustofur austan við elsta hluta Hafnarskóla
Málefni fatlaðra auglýsir eftir starfsmanni í 80% starf í vaktavinnu, kvöld, helgar og dagvaktir.
Tilboðum skal skilað til Fasteignasölunnar InnI að Hafnarbraut 15, Hornafirði fyrir kl. 15:00 fimmtudaginn 19. mars n.k. og þá verða tilboðin opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Umhverfismál í Sveitarfélaginu Hornafirði
Bólholt er að hreinsa/mynda og kortleggja fráveitukerfi Hafnar. Upplýsingarnar verða nýttar sem viðhaldsáætlun fráveitunnar í framtíðinni.
Félagsmiðstöð flytur í nýtt húsnæði og aðstaða skapast fyrir ungmenni.
Lokafrágangur sundlaugarsvæðis gengur vel. Rósaberg ehf. er að klára hellulögn.
Nú er verið að leggja lokahönd á gólflagnir í nýju sundlauginni við Heppuskóla. Hluti af steinefninu er perlumöl frá Horni.
Um þessar mundir eru starfmenn Þjónustustöðvar Hornafjarðar að koma fyrir grenndargámastöðvum í þéttbýlinu á Höfn og grenndargámstöðvum í sveitum sem leysa af hólmi bláu gámana sem fyrir voru.
Á síðasta ári söfnuðust tæp 125 tonn af flokkuðum úrgangi sem fluttur var til endurvinnslu til að setja þetta í samhengi þá samsvarar þetta 57 Nissan Navara jeppa bifreiðum.
Markmið sjóðsins er að efla byggð og atvinnu í sveitarfélaginu með því að veita styrki til verkefna sem lúta að atvinnuþróun og nýsköpun í sveitarfélaginu.
Bæjarstjórn Hornafjarðar auglýsir í dag tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir útboð vegna flutnings færanlegra kennslustofa frá Nesjaskóla að Hafnarskóla.
Bæjarráð Hornafjarðar hefur tekið ákvörðun um að bjóða út skólamáltíðir fyrir Grunnskóla Hornafjarðar.
Sveitarfélagið Hornafjörður stóð fyrir fundi um atvinnumál í sveitum að Smyrlabjörgum í Suðursveit miðvikudagskvöldið 14. janúar síðast liðinn. Þar var rætt um atvinnumálin til sveita eins og þau horfa við fólki um þessar mundir og hvað væri hægt að gera í framtíðinni.
Á 446. bæjarráðs var rætt um mótun nýrrar byggðaáætlunar fyrir árin 2010-2013. Í bókun bæjarráðs er eftirfarandi: Byggðaáætlun er eitt mikilvægasta verkefni stjórnvalda. Lykilorð nýrrar byggðaáætlunar á að vera aukin lífsgæði, aukin verðmæti og nýir íbúar.
Á 132. fundi bæjarstjórnar Hornafjarðar var samþykkt tillaga um að sveitarfélagið taki upp svokölluð íþrótta- og tómstundakort fyrir aldurshópinn 6-18 ára. Þessi kort eru á formi 10.000 kr. styrks til íþrótta- og tómstundaiðkunar í sveitarfélaginu. Samþykkt var að þetta kæmi til framkvæmda frá og með 1. janúar 2009
Bæjarstjórn Hornafjarðar verður með borgarafund í Nýheimum fimmtudaginn 15. janúar 2009 kl. 20:00. Á dagskrá verður fjárhagsáætlun ársins 2009 og þau mál sem unnið er að á vegum sveitarfélagsins.
Starfmenn áhaldahúss munu safna saman jólatrjám á Höfn og í Nesjahverfi fimmtudaginn 8. janúar og mánudaginn 12. janúar n.k. Þeir íbúar sem ætla að nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlega beðnir um að setja jólatrén út að morgni fimmtudags 8. janúar og að morgni mánudags 12 janúar n.k og koma trjánum þannig fyrir að þau verði vel sýnileg og að aðgengi verði gott.
Áhaldahús vill einnig benda íbúum á þann möguleika að losa jólatré við Fjárhúsavík.
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun 2009 fór fram í bæjarstjórn Hornafjarðar 18.des. sl. Helstu áherslur sveitarfélagsins á næsta ári eru að verja eftir mætti stöðu heimila og fyrirtækja á Hornafirði, halda vel utan um fjármuni og endurskoða fjárhagsáætlunina ársfjórðungslega. Álagning fasteignagjalda verður óbreytt og útsvar verður 13,28%. Gjaldskrár þjónustugjalda sveitarfélagsins hækka ekki milli ára. Þá kom fram að fjárhagsstaða sveitarsjóðs er góð.
Atvinnumálanefnd Hornafjarðar auglýsir eftir umsóknum í atvinnu- og rannsóknasjóð Sveitarfélagsins Hornafjarðar
|nl|Um er að nýjan sjóð í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem settur var á laggirnar í kjölfar sölu á húsnæði Nesjaskóla. Markmið sjóðsins er að efla byggð og atvinnu í sveitarfélaginu og ætlað að veita styrki til atvinnuþróunar, nýsköpunar og rannsókna. Þeir sem hafa lögheimili í sveitarfélaginu og hafa þar fasta búsetu geta sótt um styrki til sjóðsins.
Atvinnumálanefnd Hornafjarðar auglýsir eftir umsóknum í átaksverkefni um smáframleiðslu á matvælum á Hornafirði. Um er að ræða stuðningsverkefni sem ætlað er einstaklingum og fyrirtækjum í Sveitarfélaginu Hornafirði sem vilja vinna að framleiðslu og þróun á matvælum í matvælasmiðju Matís á Hornafirði. Matvælasmiðjan var opnuð í byrjun nóvember 2008 og er sérstaklega sett upp til að styðja við frumkvöðla og fyrirtæki sem vilja hefja virðisaukandi smáframleiðslu matvæla úr íslensku hráefni. Fjármunir í verkefnið eru hluti af fjármunum sem úthlutað var til Sveitarfélagsins Hornafjarðar í tengslum við mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar í upphafi árs 2008.
Frá því sveitarfélagið hóf samstarf við Sagaplast ehf.um endurvinnslu á úrgangi hefur náðst góður árangur í endurvinnslu. Árangurinn sést bæði í lækkun rekstrarkostnaðar málaflokksins og samdráttar í urðun magni úrgangs. Mestur árangur frá því áður var hefur náðst í endurvinnslu bylgjupappa, sléttum pappa,dagblöðum, tímaritum, dekkjum og plasti einnig heyrúlluplasti frá bændum.
Sveitarfélagið Hornafjörður í samvinnu við Vegagerðina hefur boðað til íbúafundar í næstu viku vegna breytinga á aðalskipulagi vegna Vegstæðis yfir Hornafjarðarfljót leið 3b og nýjar námur. Sveitarfélagið mun kynna legu nýs vegstæðis yfir Hornafjarðarfljót ásamt námum sem teknar verða inn á aðalskipulag í tengslum við framkvæmdina. Ennfremur kynnir Háskólasetrið á Höfn drög að umhverfisskýrslu aðalskipulagsins sem unnin er í tengslum við breytingartillöguna. Sérstök athygli er vakin á því að hagsmunaaðilar geta nú kynnt sér drög að aðalskipulagsbreytingu ásamt drögum að umhverfisskýrslu á bæjarskrifstofum Hornafjarðar hér á vefnum.
Eins og flestir hafa vafalítið tekið eftir hefur töluverð umræða farið fram atvinnumál í landinu öllu að undanförnu. Í þeirri umræðu hefur talsvert verið rætt um orkufrekan iðnað annan en áliðnað. Þar hefur athyglin einna helst beinst að svokölluðum gagnaverum og netþjónabúum. Verkefni eins og þessi eru á ábyrgð Iðnaðarráðuneytisins. Á fundi bæjarráðs mánudaginn 25. ágúst síðastliðinn var samþykkt bókun um hugsanleg gagnaver í sveitarfélaginu Hornafirði. Bæjarráð telur ýmislegt í sveitarfélaginu mæla með staðsetningu gagnavera eða netþjónabúa hér á þessu svæði. Í bókun bæjarráðs kemur fram að svæðið er utan helstu jarðskjálftasvæða landsins, aðgengi að fersku vatni er gott og veðurfar er þannig að ekki stafar hætta af fyrir starfsemina. Bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra að leita eftir samstarfi við starfsstöð Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í Nýheimum um að vinna skýrslu um möguleika sveitarfélagsins á því að greiða fyrir framgangi slíkrar starfsemi í sveitarfélaginu. Einnig var samþykkt að kynna Iðnaðarráðuneytinu þessa bókun bæjarráðs.
Sveitarfélagið er að hefja undirbúning lóða á Leirusvæði. Fyrsti áfangi miðar að því að gera lóðir við Fákaleiru 1, 3, 5, 5A, 7, 9, 11, 13, Álaleiru 8, 10, 12, 14, Hagaleiru 8, 8A, 10 og 10A tilbúnar til úthlutunar. Lóðirnar sem eru stórar einbýlishúsalóðir eru á skemmtilegum stað í sveitarfélaginu. Lóðirnar eru nálægt Sílavík þar sem stutt er í fjölskrúðugt fuglalíf, eins er heillandi að hafa skógin í Hrossabitahaga í næsta nágrenni. Stutt er í alla almenna þjónustu svo sem skólahúsnæði, íþróttasvæði, matvöruverslun og aðra almenna þjónustu.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti á fundi sínum 14.08.2008 deiliskipulagstillögu að knattleikjahús við Víkurbraut á Höfn. Ný deiliskipulagstillaga afmarkast af Víkurbraut, brekkufæti Garðshóls, íþróttavelli , og lóðamörkum ,, Lönguvitleysu? og felst í að skilgreina lóð og byggingarreit fyrir knattleikjahús og tilheyrandi þjónustubyggingu á Höfn. Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga frá 22.05.2008 ? 17.07.2008. Sjö athugasemdir bárust og hafa umsagnir sveitastjórnar um þær verið sendar þeim sem þær gerðu. Deiliskipulagið hefur verið sent Skipulagsstofnun til yfirferðar.
Bæjarstjórn Hornafjarðar setti á 125. fundi sínum þann 6. febrúar 2008 á laggirnar stýrihóp um mótun fjölskyldustefnu. Eitt af verkefnum nefndarinnar var að greina kostnað fjölskyldna vegna leikskólagöngu, tónlistarnáms, lengdrar viðveru og iðkendagjöld í æskulýðs og íþróttastarfi. Undir þessum þætti stefnunnar bar stýrihópnum sérstaklega að skoða systkinaafslátt og kanna kosti þess að taka upp frístundakort. Stýrihópurinn hefur nú skilað tillögum sínum um lækkun leikskólagjalda og gjalda fyrir lengda viðveru. Þá hefur stýrihópurinn tekið afstöðu til systkinaafsláttar. Að lokum gerði stýrihópurinn tillögu um stuðning við fjölskyldur vegna íþróttaiðkunar. Stýrihópurinn mun ekki ljúka vinnu sinni fyrr en vorið 2009 þegar heildstæða fjölskyldustefna verður gefin út fyrir sveitarfélagið.
Næstkomandi miðvikudag verður ný útiþrekstöð vígð sem starfsmenn Sveitarfélagsins eru að koma upp á túninu milli Júllatúns og heilsugæslustöðvarinnar með þessu glæsilega útsýni. Þrekstöðin samanstendur af upphífingarslá, dýfu grind, lyftingarslá, stigbekk, bekk fyrir kviðæfingar, göngugrind og svifrá sjá meðfylgjandi teikningar og myndir. Stöðinni er ætlað að efla heilsu íbúa á Höfn ásamt því að auka á fjölbreytni útivistar innan Hafnar fyrir íbúa sveitarfélagsins og því kjörið að koma þar við á heilsubótargöngunni til að taka þar hinu ýmsu æfingar.Hugmyndin af þrekstöðinni er spunnin út frá ósk bæjarráðs um fjölskylduvænt umhverfi.
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdarstjóri umhverfis og tæknisviðs Hornafjarðar vill koma því á framfæri við þá vegfarendur sem þurfa að fara Víkurbrautina á morgun miðvikudag að hún verður lokuð á móts við Heppuskóla. Vegfarendum er bent á að fara Hafnarbrautina á meðan framkvæmdin stendur yfir. Þessi framvæmd tengist nýju sundlaugarbyggingunni því verið er að leggja nýja heitavatnslögn í nýju sundlaugina.
Sveitarfélagið Hornafjörður stendur fyrir verkefni sem felur í sér að bæta lýsingu í dreifbýli. Fyrr á árinu voru reglur um úthlutun styrkja vegna þessa verkefnis samþykktar og í kjölfarið sent út dreifibréf á heimili í sveitum. Umsóknarfrestur var þá auglýstur til 20. júní og bárust fimm umsóknir fyrir þann tíma. Bæjarráð hefur samþykkt þær umsóknir og verður greiddur til þeirra hámarksstyrkur á hvert heimili samkv. reglum. Á fundi bæjarráðs í morgun var samþykkt að framlengja umsóknarfrestinn til 1.ágúst n.k.
Tillaga að deiliskipulagi lóðar og byggingarreits fyrir
knattleikjahús og tilheyrandi þjónustubyggingu á Höfn
sbr. auglýsingu 2008008103, í Lögbirtingablaði, útgefin 22.maí 2008.
Vegna rangs birtingardags auglýsingarinnar í héraðsblaðinu Eystrahorni
29. maí sl., í stað 22. maí 2008, framlengist hér með athugasemdafresturinn
til miðvikudagsins 16. júlí 2008.
Hornafirði 7. júlí 2008.
Hákon Valdimarsson, byggingarfulltrúi Hornafjarðar
Umhverfið hefur verið til umræðu í fjölmiðlum upp á síðkastið og því vel við hæfi að benda áhugasömum á það fræðslustarfi sem umhverfisráðuneytið stendur fyrir. Við getum öll sem í þessu sveitarfélagi búum lagt okkar af mörkum til að styðja við umhverfismálin en eins og Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra segir þá eru úrlausnarefnin á sviði umhverfismála eru hvort tveggja í senn, brýn og margslungin. Hversdagsleg störf eins og það að fara út með ruslið gefa okkur færi á að breyta rétt gagnvart umhverfinu. Stærri ákvarðanir eins og t.d. hvers konar samgöngur við notum eru ekki síður dæmi um val sem hvert okkar stendur frammi fyrir.
Nú standa yfir þó nokkrar framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins ásamt því að vinnuskólinn hefur unnið að því að snyrta bæinn fyrir Humarhátíð. Sundlaugarframkvæmdir ganga ágætlega. Verktakar hafa unnið að krafti í byggingunni undanfarnar vikur og það má sjá hvernig mannvirkið tekur á sig nýja og nýja mynd frá degi til dags. RARIK eru að undirbúa tengingu á heitu vatni inn í sundlaugarbyggingu og vinna hörðum höndum við að sjóða saman heitavatnslagnir undir Fiskhólnum þar sem starfmenn vélsmiðjunnar Foss sjá um suðuvinnu. Frágangur Sindravalla er að klárast starfmenn Hans Christensen eru að leggja lokahönd á frágang girðingar umhverfis völlinn ásamt því að koma niður varamannaskýlum.
Nú líður senn að því að unglingar í 8., 9. og 10. bekk hefja störf við vinnuskóla Hornafjarðar. Flokkstjórar eru þegar byrjuð að undirbúa vinnuskólann og sláttuhópur er byrjaður að slá opin svæði. Unglingarnir hefja vinnu mánudaginn 9. júní og vinna að því að halda bænum snyrtilegum fram að mánaðarmótum júlí/ágúst. Helstu verkefni vinnuskólans sumarið 2008 verða með hefðbundnu sniði svo sem að hirða upp rusl, snyrta opin svæði, raka eftir sláttuhóp, viðhalda beðum, halda gangstéttum snyrtilegum, þökulagning og önnur tilfallandi verkefni. Jafnframt verður lögð áhersla á að viðhalda göngustígum í Óslandi og Ægisíðu, mála grindverk, leiktæki og staura fyrir umferðarmerki.
Ársreikningar Sveitarfélagsins Hornafjarðar A- og B hluti voru lagðir fram til fyrri umræðu í Bæjarstjórn Hornfjarðar 5. maí sl. Samkvæmt rekstrarreikningi í ársreikningi Sveitarfélagsins Hornafjarðar árið 2007 námu rekstrartekjur í samanteknum ársreikningi sveitarsjóðs 1.508,6 milljónum króna, en þar af voru rekstrartekjur A-hluta stofnana 1.352,4 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða í samanteknum reikningsskilum var jákvæð um 360,2 milljónir króna. Í A-hluta var rekstrarniðurstaðan jákvæð um 341,7 milljónir króna en jákvæð um 18,5 milljónir króna hjá B-hluta stofnunum. Heildareignir samkvæmt samanteknum ársreikningi voru 2.588,2 milljónir króna, en heildareignir sveitarsjóðs voru 2.102,4 milljónir króna.
Hin árvissa vorhreinsun á Hornafirði hefst laugardaginn 10. maí og stendur til miðvikudagsins 14. maí. Íbúar eru hvattir til að taka til í görðum sínum og starfmenn Áhaldahúss aðstoða garðeigendur með að fjarlægja garðaúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk dagana 13. og 14. maí.
Starfsmenn Áhaldahúss biðja garðeigendur um að hafa eftirfarandi í huga:
• Setja garðúrgang í poka.
• Ekki blanda við jarðúrgang lausum jarðvegi og öðru rusli.
• Ágætt er að binda greinaafklippur í knippi.
Vakin er athygli á að ekki verða fjarlægð stór tré eða trjástofnar. Eingöngu verður fjarlægður garðaúrgangur. Þeim sem þurfa að losa sig við annað rusl eða muni er bent á gámaport við Áhaldahús. Athygli er vakin á því að allan garðaúrgang á að losa út við Fjárhúsavík.
Eftirfarandi pistill er tekinn af bloggi Hjalta Þórs Vignissonar bæjarstjóra.
Þann 29. apríl var fundur Pakkhúsinu með bæjarstjórn og ráðgjöfum um Hafnarvík og Heppu. Gísli Sverrir Árnason, ráðgjafi hjá R3, fór yfir endurgerð gamalla húsa og þyrpinga víða um land. Greindi hann frá stöðu í endurgerð húsa á Hornafirði og ræddi hugmyndir um nýtingu mannvirkja við Hafnarvík og á Heppu. Hugmyndir eru uppi um frekari uppbyggingu atvinnulífs, menningar, ráðstefnuhalds og útivistar. Sagði hann frá hugmyndum um nýtingu á Miklagarði, Graðaloftinu, Pakkhúsinu, Gömlubúð, Kaupfélagshúsi og kartöfluhúsi. Dæmi um hugmyndir voru sjóminjasafn, aðstaða fyrir sýningar og fundaraðstöðu, smáverslanir, kaffibar og veitingahús, gestastofu fyrir listamenn og verbúð, opnar vinnustofur handverks- og listamanna, skrifstofur, beitningaraðstaða, lúxusgisting, Listasafn Svavars Guðnasonar, krambúð, upplýsingamiðstöð fyrir svæðið, listamannaíbúð, náttúruminjasafn og sýningarsalir.
Þriðjudaginn 29. apríl verður opinn fundur um framtíð hafnarsvæðisins. Gísli Sverrir Árnason, Árni Kjartansson og starfsmenn Glámu-Kím kynna verkefnið Hafnarvík Heppa í Pakkhúsinu kl. 20:00 og eru íbúar sveitarfélagsins hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um framtíð svæðisins. Unnin hefur verið skýrsla þar sem farið er yfir framtíðar skipulag svæðisins, starfsemi og endurgerð húsa og verður afrakstur þeirrar vinnu kynntur á fundinum. Hafnarsvæðið býður uppá mikla möguleika og mikilvægt að íbúar sveitarfélagsins, fyrirtæki og stofnanir taki þátt í framtíðar skipulagi og uppbyggingu svæðisin, velti fyrir sér þeirri starfsemi sem þar á að vera og framtíð þeirra húsa sem til umræðu eru í þessu verkefni.
Nú um helgina var haldinn fundur um aðalskipulag sveitarfélagsins. Þar var rætt um að fara í endurskoðun aðalskipulags og að sögn Hjalta Þórs Viginsonar bæjarstjóra er þar tvennt sem kallar sérstaklega á breytingar. Í fyrsta lagi tilkoma þjóðgarðs sem hefur mikil áhrif á gildandi skipulag og í öðru lagi miklar breytingar á atvinnuháttum og samfélagsþróun sem er að nokkru leyti í aðra átt en gildandi aðalskipulag spáði fyrir um. Hjalti segir sem dæmi að sjávarútvegur hafi breyst mikið og því kalli það á endurskoðun í hafnarmálum og síðan hefur ferðaþjónusta vaxið umtalsvert.
Skrifað var undir kaupsamning á húsnæði Nesjaskóla á Degi umhverfisins þann 25. apríl 2008. Guðjón Pétur Jónsson og Ásta H. Guðmundsdóttir kaupir húsnæðið af ríki og sveitarfélagi og hyggst nýta húseignirnar fyrir ferðaþjónustu. Þær húseignir sem afhendast nú eru heimavist, mötuneyti og annað húnsæði sem er sambyggt þessum eignum. Kennsluhúsnæði sem enn er notað af sveitarfélaginu afhentist ekki strax. Sveitarfélagið Hornafjörður óskar Guðjóni Pétri og Ástu til hamingju með eignina og óskar þeim góðs gengis með þá starfsemi sem þau hyggja á í Nesjaskóla.
Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir laust til úthlutunar beiti- og slægjulönd í eigu sveitarfélagsins. Öll gögn er málið varðar má nálgast hér og í afgreiðslu sveitarfélagsins í Ráðhúsi.
Umsóknarfrestur er frá og með miðvikudeginum 22. apríl til 6. maí 2008.
Allar nánari upplýsingar veitir Haukur Ingi Einarsson í síma 895-9946 eða á netfanginu haukuri@hornafjodur.is
Í desember 2007 var hafist handa við að greina vinnuumhverfi starfsmanna Sveitarfélagsins Hornafjarðar, samskipti á vinnustað, aðbúnað, möguleika til starfsþróunar, hollustu starfsmanna við vinnustaðinn og jafnréttismál. Greining sem þessi er forsenda að hægt sé að taka upp árangursstjórnun í starfsmannamálum í sveitarfélaginu og þannig að efla Sveitarfélagið Hornafjörð sem vinnuveitanda. Í desember og janúar var spurningalisti hannaður og bakgrunnsbreytur valdar. Haft var samráð við forstöðumenn og trúnaðarmenn í stofnunum sveitarfélagsins um gerð spurningalistans.
Fimmtudaginn 10. apríl kl: 20:30 er boðað til íbúafundar í Hrollaugsstöðum þar sem fjallað verður um fráveitur, úrgangsmál og lýsingu. Einnig kynnir Gústaf Magnús Ásbjörnsson verkefni Landgræðslu ríkisins er miðar að uppgræðslu innan héraða. Markmið með fundinum er að kynna fráveitusamþykkt sem er til umræðu innan sveitarstjórnar. Fráveitusamþykktin miðar að því að skilgreina almennar reglur sem eru í gildi í þéttbýli og koma fráveitumálum í sveitum í eðlilegt horf. Sveitarfélagið mun koma á reglubundnum tæmingum á rotþróm, eins og gengur og gerist annars staðar á landinu, og tryggja með þeim hætti virkni rotþróa. Hér er um viðamikið verkefni að ræða svo það er nauðsynlegt að kynna það vel áður en hafist er handann.
Fimmtudaginn 3. apríl boða bæjarstjórn Hornafjarðar og Heilbrigðis – og öldrunarráð Hornafjarðar til málþings í Nýheimum um heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Málþingið hefst kl. 09:00 í Nýheimum með setningarávarpi Guðlaugs Þór Þórðarsonar heilbrigðisráðherra.
|nl|Þessi mál hafa verið í miklum brennidepli hér á Hornafirði þar sem sveitarfélagið hefur stýrt þessum málaflokki í gegnum þjónustusamning við heilbrigðisráðuneytið. Á málþinginu verður rætt um þann mun sem er á uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar á landsbyggðinni annars vegar og á fjölmennari stöðum landsins hins vegar. Einnig verður fjallað um hvaða starfsemi er mikilvægt að byggja upp heima fyrir og hvernig samskipti landsbyggðar við Landspítala Háskólasjúkrahús verði best háttað. Á málþinginu mun Óttar Ármannsson, formaður Félags dreifbýlislækna greina frá starfsumhverfi lækna á landsbyggðinni. Þá mun Anna Björg Aradóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Landlæknisembættinu fjalla sérstaklega um starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga. Starfsmenn HSSA munu síðan gera grein fyrir þróun þjónustunnar á vegum HSSA og þeirri starfsemi sem þar fer fram í dag. Að loknum erindum taka vinnuhópar til starfa og munu ræða ýmsa þætti sem tengjast málefninu. Í vinnuhópunum verður t.d. fjallað um rekstrarform heilbrigðisstofnana, verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, starfsumhverfi heilbrigðisstétta á landsbyggðinni, aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að heilbrigðisþjónustu og margt fleira. Ásta Möller, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis, mun í lok málþingsins taka umræður dagsins saman og flytja lokaerindi málþingsins.
Í undirbúningi er bygging knattspyrnuhúss á Hornafirði sem verður u.þ.b. 70 metrar að lengd, 50 metrar að breidd og 12 metrar að hæð. Knattspyrnuhúsið mun koma til með að bæta verulega æfingaraðstöðu fyrir knattspyrnu og fleiri íþróttagreinar. Auk þess léttir það álagi á núverandi íþróttahúsi og þannig skapast svigrúm fyrir aðrar íþróttagreinar að eflast enn frekar og e.t.v munu nýjar íþróttagreinar ryðja sér til rúms á Hornafirði í framtíðinni.
|nl|Knattspyrnuhúsið, sem fyrirhugað er að reisa á Höfn, á sér fyrirmynd úr Hafnarfirði. Íþróttafélagið FH reisti þar dúkhús sem veitir skjól yfir hálfan knattspyrnuvöll. Ennfremur eru Grindvíkingar að reisa sambærilegt hús.
Þriðjudaginn 18. mars kl: 20:00 er boðað til íbúafundar í Mánagarði þar sem fjallað verður um fráveitur, úrgangsmál og lýsingu. Einnig kynnir Gústaf Magnús Ásbjörnsson verkefni Landgræðslu ríkisins er miðar að uppgræðslu innan héraða. Markmið með fundinum er að kynna fráveitusamþykkt sem er til umræðu innan sveitarstjórnar. Fráveitusamþykktin miðar að því að skilgreina almennar reglur sem eru í gildi í þéttbýli og koma fráveitumálum í sveitum í eðlilegt horf. Sveitarfélagið mun koma á reglubundnum tæmingum á rotþróm, eins og gengur og gerist annars staðar á landinu, og tryggja með þeim hætti virkni rotþróa. Hér er um viðamikið verkefni að ræða svo það er nauðsynlegt að kynna það vel áður en hafist er handann.
Nú fyrir stuttu skipaði bæjarstjórn stýrihóp sem móta á fjölskyldustefnu fyrir Sveitarfélagið Hornaförð. Stýrihópinn skipa Matthildur Ásmundardóttir, formaður hópsins, Gauti Árnason og Elín Magnúsdóttir. Hlutverk stýrihópsins er að móta fjölskyldustefnu fyrir 1. júní 2009. Hópurinn hefur tekið til starfa.
|nl|Markmið með gerð stefnunnar er fyrst og fremst að ná fram heildarsýn og markvissu starfi í málefnum fjölskyldunnar. Samkeppnishæfni sveitarfélagsins ræðst ekki síst af því hvort fjölskyldum sé boðið upp á sem best búsetuskilyrði. Mikilvægur áfangi á þeirri leið er metnaðarfull opinber þjónusta á vegum sveitarfélagsins. Markmið með mótun fjölskyldustefnu er að auka ánægju íbúa með bættri þjónustu. Vert er að skoða örlítið skilgreiningu á fjölskyldunni í upphafi þessarar vinnu:
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands kynnir nýtt hvatningar- og átaksverkefni, Lífshlaupið, sem höfðar til allra aldurshópa. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að hreyfa sig meira hvort sem er í frítíma, heimilisstörfum, vinnu eða skóla. Farið er eftir hreyfiráðleggingum Lýðheilsustöðvar þar sem börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag. Vefsíða Lífshlaupsins er og en þar gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í: Vinnustaðakeppni frá 4.-14. mars fyrir 16 ára og eldri Hvatningarleik fyrir grunnskóla frá 4. - 14.mars, fyrir 15 ára og yngri. Einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð niður sína hreyfingu allt árið.
Í Pakkhúsinu í gær var undirritaður nýr þriggja ára samningur Sveitarfélagsins við UMF Sindra. Með því eykur Sveitarfélagið umtalsvert við stuðning sinn við félagið. Markmiðið er að fylgja sem best eftir mikilli uppbyggingu á íþróttamannvirkjum í sveitarfélaginu. Samningurinn byggir á fyrri samningum sem þessir aðilar hafa gert sín á milli en hinn nýi leggur áherslu á að Sindri geti eflt enn frekar æskulýðsstarf á sínum vegum, þróað íþróttaviðburði, eflt jaðaríþróttir, tekið upp markvisst samstarf við önnur félög á svæðinu og að Sindri móti sér forvarnar- og lýðheilsustefnu og verði leiðandi í þeim málaflokki í sveitarfélaginu.
Sunnudaginn 2. desember sem er fyrsti dagur í Aðventu verður kveikt á jólatré Hornafjarðar við hátíðlega athöfn kl. 17:00. Jólatréð verður komið fyrir við Sindrahúsið í miðbænum Við athöfnina leikur Lúðrasveit Hornfjarðar, Kvennakór Hornafjarðar og Leikskólabörn syngja jólalög. Flutt verður ávarp og hugvekja. Ungur Hornfirðingur mun tendrar jólaljósin að vanda. Tréð kemur úr Haukafelli á Mýrum. Það er víst mikill atgangur á fjöllum núna og hafa rjúpnaskyttur talið að þær hafi séð eitthvað rautt á fleygiferð langt í fjarska og heyrt mikinn hávaða. Er talið líklegt að Grýlu gamla sé að safna jólasveinunum saman og sauma á þá og gera við rauðu fötin þeirra til að búa þá undir árlegt ferðalag til byggða. Það er því ekki ólíklegt að þeir fyrstu kæmu til byggða á Hornafirði um svipað leiti og kveikt yrði á jólatrénu því gott sleða- og skautafæri væri á fjöllum og færðin góð.
Á föstudaginn 23.nóvember verður haldinn fræðsludagur í Nýheimum um geðheilbrigðismál og er hann opin fyrir alla. Veitingar verða í boði Vís. Fundarstjóri verður Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri. Að sögn Marenar Sveinbjörnsdóttur iðjuþjálfa er þetta frábært framtak um mál er varða okkur öll þ.e. geðheilbrigðismál. Þarna er blandað saman frumkvöðlum í nýjungum í geðheilbrigðisþjónustu, opinberum stefnumótunaraðilum, notendum, aðstandendum og fagfólki úr heimabyggð. Fræðslan er öllum opin og fólk má koma á einn og einn fyrirlestur, hálfan eða allan daginn, eftir því sem það hefur tök á. Fólk er hvatt til að nýta sér eitthvað af því sem að þarna fer fram. Munum að það er engin heilsa án geðheilsu.
Á fundi bæjarstjórnar í gærkvöldi fylgdi bæjarstjóri fjárhagsáætlun 2008 úr hlaði og voru helstu niðurstöðutölur við fyrri umræðu þessar: A-hluti: Skatttekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar 1.039,7 m.kr. Rekstur málaflokka eru áætlaður 899,4 m.kr. Mismunur tekna og gjalda A-sjóðs sveitarfélagsins er því afgangur um 126,4 m.kr. Handbært fé frá rekstri 212,6 m.kr., fjárfestingar 550 m.kr., tekin ný langtímalán 200 m.kr., afborganir langtímalána 87,0 m.kr. og handbært fé í árslok 143,6 m.kr. B-hluti: Hornafjarðarhöfn: Gert er ráð fyrir að tekjur verði 84,9 m.kr. en rekstrargjöld 74,3 m.kr. Tekjur umfram gjöld verði því um 10.7 m.kr. Fjármagnsgjöld eru 9,2 m.kr. Tekjur umfram gjöld eru því um 1,4 m.kr. Handbært fé frá rekstri 13,3 m.kr., fjárfestingar 39,6 m.kr., tekin ný langtímalán 35 m.kr., afborganir langtímalána 7,4 m.kr. og handbært fé í árslok 2,6 m.kr.
Sumarbæklingur æskulýðs- og tómstundaráðs Hornafjarðar "Hornfirskt sumar" fyrir sumarið 2007 er kominn út. Verður bæklingnum dreift í öll hús á Hornafirði. Í bæklingnum er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um íþróttir og aðrar tómstundir fyrir börn og unglinga í sumar og eins er vel minnt á Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fer hér á Hornafirði um verslunarmannahelgina. Eru Hornfirðingar hvattir til að kynna sér efni bæklingsins og eins er hann að finna á vefnum hornafjordur.is. Æskulýðs- og tómstundaráð hvetur heimamenn og aðra til þátttöku í viðburðum sumarsins og undirbúning þeirra.
Undanfarna daga hefur sólin yljað okkur og minnt okkur á að vorið er komið. Við á tækni- og umhverfissviði Hornafjarðar óskum eftir því við forstöðu- og umsjónarmenn fyrirtækja og opinberra stofnanna, sem og bæjarbúa alla, að taka saman höndum og gera vorhreinsun á lóðum sínum og nánasta umhverfi. Nokkuð hefur borið á rusli í bænum okkar sem safnast m.a. saman í runnum og beðum okkur til ósóma. Starfsmenn tækni og umhverfissviðs Hornafjarðar hvetja til sameiginlegs átaks bæjarbúa til að gera dagana 19. og 20. að umhverfisdögum og taka til á lóðum sínum. Varðandi bílhræ bendum við á að móttaka bílhræja er í gámastöð og er hægt að fá greitt fyrir þau hjá sýslumanni.
Í gær 9. maí var skrifað undir samning um sorpflutning (endurvinnslu samningur) frá Hornafirði. Það er mjög ánægjulegt að þessu ferli er lokið en þetta mál hefur verið til umræðu innan sveitafélagsins um allnokkurn tíma. Nú geta Hornfirðingar verið fullvissir um að ákveðnir sorpflokkar sem skila sér á gámaportið fara ekki til urðunar í Lóni eins og verið hefur sem er mikið ánægjuefni. Þess bar að geta að við höfum verið að taka frá öll spilliefni sem eru meðhöndluð sérstaklega og brotajárn frá í þó nokkurn tíma, en nú bætist við bylgjupappi, sléttur pappi, dagblöð/tímarit, dekk og filmuplast sem hægt er að flytja burt. Heimilin geta einnig byrjað á moltugerð sem fram fer í heimahúsum þar er hægt að ná allt upp í 40% af almennu heimils sorpi úr urðun. Næstu skref er að finna farveg fyrir Heyrúlluplast sem er vel á veg komið, þar á eftir gler og timbur.
Víða má sjá fólk vinna í görðum sínum og greinilegt að "sumarfílingurinn" er kominn í fólk með græna fingur. Eitt af því sem kemur alltaf upp þegar farið er að vinna í garðinum er að það þarf að losa sig garðúrgang svo sem afklippur, greinar og gras. Umhverfis- og Tæknisvið hefur útbúið aðstöðu við gömlu ruslahaugana við Fjárhúsavík og þar er hægt að losa sig við greinar, afklippur og gras. Mikilvægt er að þegar grasi er hent að það sé ekki skilið eftir í plastpokum. Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs sveitarfélagsins segir að til standi að kurla greinar og því skipi miklu máli að fólk passi að ekki lendi neitt með greinunum sem gæti skemmt kurlvélina svo sem grjót, járn annað líkt efni.
Ísland á iði - Hreyfa sig - er landsverkefni Íþrótta- og ólympíusambands Íslands. Með þessu verkefni eru starfsmenn fyrirtækja hvattir til að hjóla eða ganga í vinnuna. Verkefnið er sett upp sem keppni milli fyrirtækja og sveitarfélaga. Keppnin hefst miðvikudaginn 2.maí og stendur til 22.maí. Allar upplýsingar um verkefnið er að finna á vefnum www.isi.is. Í fyrra tóku 6 vinnustaðir á Hornafirði þátt í verkefninu og hjóluðu starfsmenn þeirra alls 2666 km. í 850 daga sem dugði í 6. sæti fyrir sveitarfélagið í heildina. Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar hvetur fyrirtæki og alla bæjarbúa til að taka þátt í þessu verkefni og um leið að hreyfa sig sem mest ekki bara meðan þetta verkefni stendur heldur allan ársins hring. Gott er t.d. að hjóla, ganga, synda og skokka. Mynda hópa sem hafa það að markmiði að auka hreyfingu.
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur gert samning við Capacent Gallup um að gera viðhorfskönnun meðal íbúa um þjónustu sveitarfélagsins og ýmsa aðra þætti sem varða samfélagið. Könnunin verður framkvæmd á næstu vikum þar sem spurt er um mat íbúa á sveitarfélaginu og þeirri þjónustu sem það veitir. Spurt er út í ólíka þjónustuþætti eins og leik- og grunnskóla, félagsþjónustu, bókasafn, heilbrigðisstofnanir og aðra þjónustu á vegum sveitarfélagsins. Niðurstöður úr þessari könnun verða nýttar til að efla þjónustu sveitarfélagsins enn frekar. Stefnt er að því eftir tvö ár að fara af stað með framhaldskönnun til að meta árangurinn af því starfi. Næstu daga og vikur verður hringt í u.þ.b. 1000 íbúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar, 18 ára og eldri, sem valdir hafa verið af tilviljun, og þeim boðið velja á milli þess að fá rannsóknina senda heim í pósti eða að fylla hana út á netinu.
Bæjarráð Hornafjarðar er fylgjandi stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs og styður frumvarp til laga um stofnun hans að því tilskyldu að aðkoma heimamanna að stjórn þjóðgarðsins sé tryggð. En bæjarráð telur að svo sé í framlögðu frumvarpi. Með samþykkt þessa frumvarps verður stigið skref sem ekki mun aðeins verða til hagsbóta fyrir þá sem búa í nágrenni þjóðgarðsins heldur einnig aðra Íslendinga og sannanlega mun áhrifanna gæta langt út fyrir landsteinana. Lögð er áhersla á að nægjanlegt fé fáist til uppbyggingar og reksturs þjóðgarðsins. Einnig leggur sveitarstjórn áherslu á að öryggismál á jöklinum fái ítarlega umfjöllun og þar með hver hefur lögsögu á jökli og aðkomu björgunarsveita.
Að gefnu tilefni vill tækni- um umhverfissvið Hornafjarðar koma eftirfarandi ábendingum til hundaeiganda í Sveitarfélaginu Hornafirði. Í samþykkt um hundahald fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð, 2 gr. í málsliðum e. og f., segir eftirfarandi: Hundur skal ávallt bera ól um hálsinn. Á ólinni skal vera plata sem í er greipt skráningarnúmer dýrsins og símanúmer eiganda hans. Óheimilt er með öllu að láta hunda ganga lausa nema á þar til afmörkuðum svæðum. Hundar skulu annars ávallt vera í taumi utanhúss og í fylgd manneskju sem hefur fullt vald yfir þeim. Þegar hundur er í festi á lóð skal lengd festarinnar við það miðuð að óhindrað megi ganga að aðaldyrum hússins.
Næsti fundur bæjarstjórnar Hornafjarðar verður haldinn í Holti á Mýrum næstkomandi þriðjudag (6.feb.) og hefst hann kl. 17:30 . Það sem er á dagskrá fundarins eru fundargerðir, 3ja ára áætlun, deiliskipulag við Haukafell, aðalskipulagsbreyting vegna Falljökulskvíslar, aðalskipulagsbreyting vegna Víkurbrautar 11 og 13, aðalskipulagsbreyting vegna lagningar ljósleiðara í Sveitarfélaginu Hornafirði og í lokin verða fyrirspurnir. Fundurinn verður tekinn upp að venju og verður hann sendur út á SkjáVarpi fimmtudagskvöldið 8. febrúar kl.20.
Innheimta fasteignagjalda verður á hendi fjármálasviðs sveitarfélagsins en ekki á vegum Gjaldheimtu Austurlands eins og verið hefur. Sendir verða út greiðsluseðlar skv. gjalddögum, ef álagning er lægri en 12.000.- verður sendur út einn greiðsluseðill á gjalddaga 1. febrúar. Ekki er gert ráð fyrir að hægt sé að greiða á annan hátt en skv. greiðsluseðli nema ef fólk er í greiðsluþjónustu banka og leggst þá ekki á seðilgjald. Hægt er að hafa samband við fjármálasvið ef óskað er eftir öðrum greiðslumáta svo sem ef nýttur er staðgreiðsluafsláttur. Gjalddagar verða fimm 1. febrúar 1. mars 1. apríl 1. maí og 1. júní Eindagi verður 25 dögum eftir gjalddaga og reiknast þá dráttavextir frá gjalddaga.
Á fundi bæjarráðs Hornafjarðar þann 11.desember s.l. voru samþykktar nýjar reglur vegna daggæslu á einkaheimilum og niðurgreiðslu vegna dagvistargjalda. Hinar nýju reglur eru ítarlegar og er m.a. kveðið á um talsverða aukningu í niðurgreiðslu til foreldra barna sem eru í vistun hjá dagforeldrum auk þess sem nú er greitt niður með börnum hjóna og sambúðarfólks. Niðurgreiðsluflokkarnir eru tveir, annar fyrir hjón og sambúðarfólk og hinn fyrir einstæða foreldra eða þegar annað foreldrið er í námi. Niðurgreiðsla dagvistargjalda fyrir hjón og sambúðarfólk getur hæst numið 14.000,- kr. á mánuði en fyrir aðra er greitt niður um 20.000,- kr. að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Miðvikudaginn 17. janúar kl. 14:30 verður haldinn kynningarfundur á starfsemi ráðgjafarmiðstöðvarinnar Sjónarhóls, samtökum fyrir börn með sérþarfir. Að Sjónarhóli standa eftirfarandi samtök: ADHD samtökin, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Landssamtökin Þroskahjálp og Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum. Á fundinum verða Guðríður Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri Sjónarhóls, Hrefna Haraldsdóttir fjölskylduráðgjafi hjá Sjónarhóli en auk þeirra verður með í för Ingibjörg Karlsdóttir framkvæmdastjóri ADHD samtakanna. Gert er ráð fyrir umræðum og munu þær svara fyrirspurnum foreldra og annarra er koma að uppeldi eða kennslu barna.
Þessa dagana auglýsir Umhverfisnefnd Hornafjarðar eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna fyrir árið 2006. Tilnefningar geta meðal annars verið fyrir snyrtilegt umhverfi, náttúruverndarstörf eða náttúrurannsóknir einstaklinga, fyrirtækja eða stofnana. Umhverfisverðlaunin eru ávalt afhent við hátíðlega athöfn í Nýheimum ásamt afhendingu á menningarverðlauna. Fyrir 2004 kom það í hlut Elínar Sigríðar Harðardóttur að taka á móti verðlaununum og fékk hún þau fyrir langt og farsælt starf að umhverfismálum í sveitarfélaginu. Á síðasta ári var það Skinney-Þinganes sem hlaut verðlaunin (fyrir árið 2005) einkum fyrir að hafa komið upp fituskilju og þannig komið í veg fyrir mengun í höfninni og um leið endurnýtt fituna.
Árið sem er að líða markaðist mjög af sveitarstjórnarkosningunum í maí sl. Albert Eymundsson kvaddi vettvang sveitarstjórnar í Hornafirði eftir áratuga starf. Hann á skilið miklar þakkir fyrir störf sín í þágu byggðarlagsins og er óskað velfarnaðar á nýjum stað. Miklar breytingar urðu á skipan mála í sveitarfélaginu í kjölfar kosninga. Nýr meirihluti hefur lagt áherslu á málefni fjölskyldunnar, uppbyggingu íþróttamannvirkja og stuðning við atvinnulífið. Af fjölmörgum verkefnum sveitarfélaga eru velferðarmálin stærst, s.s. fræðslu- og uppeldismál. Rekstur fræðslumála er flókin, einkum vegna þess að þarfirnar eru miklar en fjármunirnir takmarkaðir. Því þarf í sífellu að jafna út kröfur um viðbótarþjónustu og þá fjármuni sem eru í sveitarsjóði á hverjum tíma. Fræðslu- og uppeldismál eru mikilvæg fyrir framtíð samfélagsins og gegna lykilhlutverki í að tryggja jafna möguleika einstaklinga til að ná markmiðum sínum í lífinu.
Bæjarstjórn Hornafjarðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 1998-2018, samkvæmt 2. mgr. 21. gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73/1997. Breytingin felst í því, að tekið er í notkun nýtt efnistökusvæði vestan Falljökulskvíslar, í landi Sandfells í Öræfum, um 2,0 km. norð-vestan þjóðvegar nr. 1. fyrir allt að 50.000m3, þar af um 33.000m3 af fastri klöpp. Jafnhliða opnun svæðisins verður aflögð grjótnáma við Virkisá í Öræfum. Breytingartillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, og í Hofgarði í Öræfum, frá fimmtudeginum 21. des. 2006 til fimmtudagsins 11. janúar, 2007. Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna, eigi síðar en fimmtudaginn 11. janúar, 2007.
Markmið bæjarstjórnar fyrir árið 2007 er að viðhalda þjónustustigi og efla það en jafnframt að halda áfram að reka bæjarsjóð með ábyrgum hætti. Árið 2007 einkennist af miklum framkvæmdum og viðhaldi eigna sveitarfélagsins. Ennfremur eru stigin mikilvæg skref í stuðningi við atvinnulíf. Heildarvelta sveitarfélagsins og tengdra fyrirtækja er áætluð 1.585 m.kr. en heildargjöld 1.466 m.kr. að frádregnum fjármagnsliðum. Fjármagnsliðir eru neikvæðir um 104 m.kr.. Niðurstaðan er því jákvæð um 15 m.kr. Handbært fé frá rekstri er 167 m.kr. Gert er ráð fyrir framkvæmdum upp á 318 m.kr. og lántöku upp á 236 m.kr. Afborganir langtímalána eru 114 m.kr. Handbært fé í árslok 2007 er áætlað 49 m.kr.
Síðasta opnunardagur sundlaugarinnar fyrir áramót er sunnudagurinn 17.desember. Eftir það verður lauginni lokað fram til mánudagsins 8.janúar á næsta ári. Þennan síðasta sunddag fyrir jól verða jólalögin leikin og gestir fá gott í skóinn. Meðan á lokun stendur verður unnið að viðhaldi í lauginni að venju. Á þessu ári hafa um 25,000 gestir komið í sundlaugina en það er nokkur fækkun frá fyrra ári. Að venju var aðsókn mest á sumarmánuðum. Sundlaugin á sína fastagesti sem flestir taka daginn snemma og fá sér sundsprett og láta líða úr sér í pottunum áður en gengið er til daglegra starfa.
Á sunnudaginn kemur kl. 17:00 verða ljósin tendruð á jólatré Hornafjarðar í miðbænum skammt frá Sindrahúsinu. Við athöfnina leikur Lúðrasveit Hornafjarðar jólalög undir stjórn Jóhanns Morávek. Samkór Hornafjarðar syngur undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur og leikskólabörn taka lagið. Von er á fleiri góðum gestum í heimsókn. Samkvæmt upplýsingum frá Grýlu gömlu er fyrstu jólasveinarnir farnir að hugsa sér til hreyfings til byggða og er ekki ólíklegt að þeir taki stefnuna í miðbæinn þegar þeir sjá ljósin á trénu.
Bæjarráð ákvað á síðasta fundi að ráða Hauk Inga Einarsson, hagfræðing, sem framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs. Haukur Ingi er fæddur 1980 og hefur starfað sem fyrirtækjaráðgjafi hjá Kaupþing banka. Um langt árabil bjó hann á Hornafirði og spilaði m.a. knattspyrnu fyrir Sindra við góðan orðstír. Unnusta Hauks er Berglind Steinþórsdóttir, frá Hala í Suðursveit.Þau eiga Tómas Nóa sem er 2ja ára og svo munu þau fjölga Hornfirðingum í mars því þá eiga þau von á barni. Berglind er að ljúka námi í ferðamálafræðum við Háskóla Íslands. Foreldrar Hauks eru Einar Sveinn Ingólfsson og Ingibjörg Hauksdóttir sem eru flestum Hornfirðingum góðkunn.
Krakkarnir sem sóttu landsmót SAMFÉS eru komin heim eftir skemmtilega og uppbyggjandi ferð. Þau sóttu ýmsar smiðjur t.d. dans, ljósmynda, og hljóðfærasmiðjur. Á mótinu var Þyrí Imsland kjörin í Ungmennaráð SAMFÉS en hlutverk þess er að taka þátt í mótun stærri viðburða á landsvísu. Á fimmtudaginn verður haldið hið árlega Sundstuð Þrykkjunnar í sundlauginni. Þá fyllast allir pottar og laugarkerið af fjörmiklum krökkum og farið er í ýmsa skemmtilega leiki, spiluð tónlist og sett upp skrautljós. Á föstudaginn er ráðgert að halda með 10. bekkinga á svonefnt Fjarðaball sem að þessu sinni er haldið á Seyðisfirði. Þar spilar hljómsveitin Á móti sól en með henni syngur enginn annar en Magni sem gerði garðinn frægan í RockStar þáttunum. Á Fjarðaballi koma saman unglingar af öllum austfjörðum. Á næstunni hefst undirbúningur fyrir Hrekkjavökuna (Draugahúsið) sem er alltaf mjög spennandi. Á milli þessara stóru viðburða hittast krakkarnir í Þrykkjunni og taka sér ýmislegt fyrir hendur.
Þessi yfirskrift eru einkunnarorð þróunarverkefnis sem Sveitarfélagið Hornafjörður , ásamt 24 öðrum sveitarfélögum er að vinna í samvinnu við Lýðheilsustöð. Markmiðið með verkefninu er að bæta lífshætti barna og fjölskyldna þeirra. Aðaláherslan er lögð á hreyfingu og góða næringu. Með verkefninu er leitast við að vekja fólk til umhugsunar um heilsuna, standa fyrir fræðslu um það sem hefur áhrif á heilsuna, skoða hvaða þættir sem hafa áhrif á heilsuna eru í lagi og hvaða þætti er hægt að bæta í sveitarfélaginu og virkja sem flesta á öllum aldri til að eiga hlutdeild í verkefninu.
Reglur um útivistartíma barna og unglinga, skv. barnverndarlögum, breyttust 1. september. Frá 1. september til 1. maí mega börn 12 ára og yngri vera úti til kl. 20 en 13 – 16 ára börn mega vera úti til kl. 22. Mikilvægt er að árétta að þetta er sá tími sem þau mega vera úti, foreldrar og forráðamenn geta að sjálfsögðu þrengt þennan tímaramma. Það skiptir miklu máli fyrir vellíðan barna að foreldrar standi saman um að halda útivistarreglurnar t.d. hvað varðar svefn, slys og einnig dregur það úr líkum á að börnin fari að fikta við áfengi eða önnur vímuefni að útivistarreglunum sé fylgt. Vonandi er svona segulspjald á ísskápnum heima hjá ykkur til að minna á mikilvægi þess að standa saman í því að virða útivistarreglurnar.
Eins og undanfarin sumur hefur Hornafjarðarbær starfrækt skólagarða fyrir krakka á aldrinum 7 – 12 ára. Í ár voru þátttakendur 17 sem er aðeins færra en síðustu ár. Starfið hefur gengið vel og hafa krakkarnir staðið sig með stakri prýði. Mæting hefur verið mjög góð og uppskeran eftir því. Á þriðjudaginn 15. ágúst, var haldin uppskeruhátíð. Yfirmenn skólagarðanna grilluðu fyrir krakkana og glatt var á hjalla. Eftir það voru veitt verðlaun fyrir besta garðinn og bestu ástundunina. Þeir sem fengu verðlaun voru Birgitta Karen Sveinsdóttir og Rannver Olsen. Einnig fengu allir krakkarnir viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna í sumar.
Þriðjudaginn 25. júlí var farið í hina árlegu útilegu Vinnuskólans í Haukafell. Ferðin hefur verið uppskeruhátíð Vinnuskólans að loknu erfiði sumarsins. Eins og við var að búast af krökkunum fór ferðin ótrúlega vel fram. Veðrið var ótrúlega gott og allir í góðu skapi. Í ferðinni var gert margt skemmtilegt eins og t.d hoppað í ána, grillaðir hamborgarar, spilaður fótbolti og að lokum var brekkusöngur og varðeldur. Það var mál flestra að ferðin hafi verið í betri kantinum og vonum við að allir hafi skemmt sér vel því það er jú tilgangurinn með þessari ferð okkar að skemmta okkur saman eftir erfiði sumarsins. Eins og þeir sem horfðu á Mastrið vita þá var rústapartý Vinnuskólans fimmtudaginn 20. júlí. Margar helstu hljómsveitir Hornafjarðar spiluðu og stóð þar uppúr endurkoma stórhljómsveitarinnar Parket sem hefur ekki sést spila saman í aldaraðir. Þar var fremstur í flokki Friðrik "danaprins" sem gerði sér ferð heim til að koma fram.
Eins og flestir hafa tekið eftir er Vinnuskóli Hornafjarðar kominn á fullt skrið og hefur bærinn okkar verið að taka á sig blómlegan svip. Þegar eru um 30 unglingar komnir til starfa og hafa þau auk ruslatínslu, hreinsun beða, sláttar og annarra hefðbundinna sumarstarfa einnig unnið við sléttun undir sáningu og þökulagningu.
|nl|Eitt af markmiðum Vinnuskólans er að undirbúa unglingana fyrir almennan vinnumarkað. Sem liður í þeim markmiðum voru haldin fræðslunámskeið fyrir starfsmenn Vinnuskólans mánudaginn 12. júní og fimmtudaginn 22. júní í fyrirlestrarsal Sindrabæjar. Mánudaginn 12. júní var Guðbrandur Jóhannsson með námskeið í skyndihjálp, Borgþór Freysteinsson, eldvarnareftirlitsmaður og heilbrigðisfulltrúi fræddi unglingana um eldvarnir, meðferð slökkvitækja og þær hættur sem geta leynst í umhverfinu, verkstjóri Vinnuskólans Gísli Örn Reynisson fór yfir helstu verkefni sumarsins og hvernig vinnunni yrði háttað þetta sumarið, Haukur Þorvaldsson ræddi um félags og forvarnarþátt skólans, Rannveig Einarsdóttir garðyrkjufræðingur fræddi unglingana um umhverfið og náttúruna ásamt því að fara yfir umhirðu blóma og beða og að lokun sýndi Hulda Laxdal unglingunum rétta líkamsbeitingu við vinnu.
Allt hefur áhrif - einkum við sjálf! Þetta eru einkunnarorð þróunarverkefnis sem Sveitarfélagið Hornafjörður, ásamt 24 öðrum sveitarfélögum er að vinna í samvinnu við Lýðheilsustöð. Markmiðið er að bæta lífshætti barna og fjölskyldna þeirra. Aðaláhersla er á hreyfingu og góða næringu Með verkefninu er leitast við að: Vekja fólk til umhugsunar um heilsu, Standa fyrir fræðslu um það sem hefur áhrif á heilsu, Skoða hvaða þættir sem hafa áhrif á heilsu eru í lagi og hvaða þætti er hægt að bæta í sveitarfélaginu og virkja Virkja sem flesta, á öllum aldri, til að eiga hlutdeild í verkefninu.
Bæjarráð Hornafjarðar hefur samþykkt 25 þúsund króna framlag til að styðja unga Hornfirðinga til þátttöku í Listahátíð ungs fólks Austurlandi, LungA sem haldin verður dagana 17.-23. júlí nk. á Seyðisfirði. Hátíðin er ætluð ungmennum á aldrinum 16 – 25 ára og er samblanda af fræðslu og skemmtun. Boðið er upp á 7 mismunandi listasmiðjur og fjölbreytta dagskrá alla dagana. LungA hlaut menningarverðlaun SSA fyrir árið 2004 og Eyrarrósina í janúar. Umsóknir berist á bæjarskrifstofur Hornafjarðar fyrir 20. júní. Nánari upplýsingar veitir Ólafía I.Gísladóttir.
Nú liggja endanleg úrslit fyrir í verkefninu Hjólað í vinnuna 2006. Verkefnið er liður í fræðslu og hvatningarverkefni ÍSÍ, Ísland á iði. Glæsilegur árangur náðist í heildina og voru öll þau met sem hægt var að slá sleginn. Alls áttu 246 vinnustaðir frá 34 sveitarfélögum lið í Hjólað í vinnuna í ár. Farnir voru hvorki meira né minna en 230,543 km eða 172,18 hringir í kringum landið. Til samanburðar þá voru farnir í fyrra 173.762 km eða 129,8 hringir í kringum landið. Ferðamáti var í 59,98% tilfella á hjóli, 38,37% gangandi, 1,18% með strætó, 0,17% á línuskautum og í 0,29% ferða nýttu þátttakendur eigin orku á annan hátt.
|nl|Hér á Hornafirði tóku 6 vinnustaðir þátt í verkefninu og hjóluðu starfsmenn þeirra alls 2666 km. í 850 daga sem dugði í 6. sæti fyrir sveitarfélagið í heildina.
Helgarnar 20.-21. og 27.-28. maí verður áframhaldandi hreinsunarátak í þéttbýli Hafnar og Nesjum. Garðeigendur og lóðahafar eru hvattir til þess að hreinsa til á lóðum sínum og einnig að líta til nánasta umhverfis. Á Leirusvæði má einungis losa ómengaðan jarðveg s.s grjót, möl, sand, leir, mold, ójárnbundin steypu- og múrbrot, hellur og aðrar smærri framleiðslueiningar úr steinsteypu. Ekki má losa garðaúrgang á Leirusvæði heldur verður losun garðaúrgangs inní Fjárhúsavík (gömlu ruslahaugunum inná Ægissíðu). Óskað er eftir því að fólk flokki garðaúrgang í þrjá flokka: 1 gras, 2 trjágreinar og afklippur, 3 annar garðaúrgangur s.s blómaafskurður, illgresi, þökuafgangar og mold í minna mæli. Mikilvægt er að garðaúrgangurinn sé ekki blandaður öðrum úrgangi þar sem hann verður nýttur til jarðgerðar eða landgræðslu. Munið því að tæma úr pokum.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornfjarðar og tengdra fyrirtækja fyrir árið 2005 var lagður fram í bæjarstjórn 11. maí sl. Í endurskoðunarskýrslu kemur fram að innra eftirlit hjá sveitarfélaginu sé virkt og starfsmenn og stjórnendur séu meðvitaðir um mikilvægi þess. Jafnframt segir að allar kennitölur beri með sér trausta fjárhagsstöðu og rekstur. Samkvæmt þessu má fullyrða að rekstur og afkoma sveitarfélagsins var í mjög góðu horfi árið 2005. Afkoma samstæðunnar er 74,0 m.kr. betri en árið 2004. Langtímaskuldir lækka milli ára um 81,6 m.kr. Ef aðeins er litið á A-hluta, bæjarsjóð, þá er hagnaður ársins 105,5 m.kr. Langtímaskuldir A-hluta eru 565,8 m.kr. og lækka milli ára um 71,0 m.kr.
Í gær tók Jón Kristján Rögnvaldsson til starfa sem félagsmálastjóri Hornafjarðar. Jón Kristján hefur nýverið lokið námi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Forveri hans í starfi Félagsmálastjóra Hornafjarðar var Birgir Þ. Kjartansson sem nú hefur sótt á önnur mið. Jón Kristján er ættaður frá Akureyri en hélt síðan til náms í Reykjavík þar sem hann hefur búið undanfarin fjögur ár við nám og störf. Hann flytur til Hornafjarðar ásamt sambýliskonu sinni Eyrúnu Unni Guðmundsdóttur og dóttur þeirra. Eyrún er einnig útskrifuð úr félagsráðgjöf við Háskóla Íslands.
|nl|
Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar vill vekja athygli á þessu verkefni og hvetja vinnustaði á Hornafirði til þátttöku. Þetta er fyrirtækjakeppni og er meginmarkmið verkefnisins að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum , hagkvæmum og umhverfisvænum samgöngumáta. Keppnin er byggð í kringum heimasíðu verkefnisins sem er vistuð á isisport.is. Keppt er í 6 fyrirtækjaflokkum um flesta daga og flesta kílómetra, hlutfallslega miðað við fjölda starfsmanna í fyrirtækjum. Gott er að einn í hverju fyrirtæki haldi utan um verkefnið. Allir þeir sem nýta eigin orku til að koma sér til vinnu s.s. hjóla eða ganga geta tekið þátt. Aðalatriðið að fá sem flesta með, sem oftast. Þátttaka hefur tvöfaldast á milli ára og tífaldast þau þrjú ár sem verkefnið hefur farið fram.
Tækni- og umhverfissvið vill koma á framfæri þakklæti til bæjarbúa vegna samstöðu við árlega vorhreinsun í sínu nánasta umhverfi. Í tilefni af opinberri heimsókn forseta Íslands óskuðum við eftir því við forstöðu- og umsjónarmenn opinberra stofnana, sem og bæjarbúa alla, að taka saman höndum og gera vorhreingerningu á lóðum sínum, runnum, beðum og nánasta umhverfi í fyrra falli þetta vorið. Að okkar mati hefur það skilað árangri og má greinilega víða sjá árangur erfiðisins, þó svo að víða sé enn þá ýmsu ábótavant. Því langar okkur að hvetja til áframhaldandi átaks og halda bænum okkar hreinum og snyrtilegum. Starfsmenn Áhaldahúss geta lagt garðeigendum lið. Hafa má samband við tækni- og umhverfissvið og við munum gera það sem við getum til að aðstoða.
Ágætu íbúar!
Forseti Íslands og forsetafrú koma í opinbera heimsókn í Austur-Skaftafellssýslu dagana 25. og 26.apríl. Við skulum taka vel á móti góðum gestum. Íbúar eru hvattir til að taka virkan þátt í dagskrá heimsóknarinnar eins og kostur er, draga þjóðfánann að húni meðan á heimsókninni stendur og nota tækifærið til að huga að fegrun og snyrtingu á sínu nánasta umhverfi. Ég vil sérstaklega hvetja alla Austur-Skaftfellinga til að sækja fjölskylduhátíðina í Íþróttahúsinu á Höfn að kvöldi þriðjudagsins 25. apríl.
Bæjarstjórn hefur samþykkt meðfylgjandi teikningar af sundlaug við Heppuskóla. Um er að ræða 25 metra langt sundlaugarker sem er 8,5 metrar á breidd. Þar er einnig gert ráð fyrir 36 fermetra vaðlaug og tveimur staðsteyptum pottum, hvor 10 manna. Sambyggt sundlaugarkerinu er síðan lendingarker fyrir vatnsrennibraut 4 x 6 metrar og gert er ráð fyrir minni rennibraut og vatnsleikjatækjum í vaðlaug. Möguleiki er því á að skipta lauginni upp í tvö svæði auk þess sem hægt er að synda bæði 12, 5 metra og 25 metra. Í fyrsta áfanga, sem áætlað er að verði tilbúinn um sumarið 2007, er gert ráð fyrir tveimur tvöföldum búningsklefum, með aðstöðu fyrir fatlaða, gufubaði, starfsmannaðstöðu og móttöku. Einnig verður tækjakjallari undir mannvirkinu að hluta. Stærð byggingarinnar er um 400 fermetrar auk tækjakjallara. Samþykkt hefur verið að heildarkostnaður mannvirkisins verði um 330 mkr.
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og eiginkona hans Dorrit Moussaieff koma í opinbera heimsókn í Austur-Skaftafellssýslu 25. og 26.apríl næstkomandi. Þriðjudaginn 25. apríl heimsækja forsetahjónin og fylgdarlið skóla, fyrirtæki og stofnanir á Höfn og dagskránni lýkur þann dag með fjölskylduhátíð í Íþróttahúsinu kl. 20:00 til heiðurs forsetahjónunum og eru allir velkomnir þangað. Miðvikudaginn 26. apríl halda forsetahjónin fyrst upp í Lón um Almannaskarðsgöngin og til baka um Almannaskarð að Seljavöllum í Nesjum. Þaðan liggur leiðin út í Nýheima á Höfn þar sem forsetinn mun ávarpa málþing um skapandi atvinnugreinar.
Þessa dagana er Tækni- og umhverfissvið sveitafélagsins að auglýsa eftir fólki í sumarstörf, um er að ræða störf sem öll tengjast Vinnuskólanum sem sveitarfélagið starfrækir á hverju sumri. Þau störf sem eru í boði: Verkstjóri Vinnuskólans, starfið felst í stjórn Vinnuskólans, skipulagningu og umsjón verkefna í samráði við deildarstjóra á tækni- og umhverfissviði. Umsækjendur þurfa að vera 20 ára eða eldri, hafa uppeldismenntun og/eða reynslu af umgengni við unglinga. Einnig er reynsla af stjórnun verkefna og almennum garðyrkjustörfum æskileg. Einnig er auglýst eftir Flokksstjórum í Vinnuskólann á Höfn og í Nesjum. Það starf felst í að vinna með unglingum, aðallega í umhirðu grænna svæða. Einnig er æskilegt að umsækjendur séu 20 ára eða eldri, hafi uppeldismenntun og/eða reynslu af umgengni við unglinga sem og reynslu af almennum garðyrkjustörfum.
Opinn borgarafundur á vegum Sveitarfélagsins Hornafjarðar um endurskoðun á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar verður haldinn í Nýheimum í kvöld, fimmtudaginn 6.apríl og hefst fundurinn kl. 20:00. Á fundinum verða meðal annars kynntar breytingartillögur á þjóðvegi 1. Fulltrúar sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar munu gera grein fyrir tillögum og svara spurningum fundargesta. Ætla má að þetta verði fjölmennur fundur þar sem menn hafa ekki verið á eitt sáttir með þær breytingar sem áætlað er aðverði á vegstæði í Öræfum og við Hornafjarðarfljót.
Bæjarstjórn Hornafjarðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 1998 – 2018, skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Breytingin felst í því að tveimur lóðum við Hvannabraut 3 – 5 verði breytt úr íbúðarsvæði í verslunar og þjónustusvæði. Lóðirnar er um 1.840 fermetrar og á henni hefur hin síðustu ár verið starfrækt dvalarheimili fyrir aldraða á vegum sveitarfélagsins. Breytingartillagan verður verður til sýnis á bæjarskrifstofu Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, á venjulegum opnunartíma, frá og með fimmtudeginum 23. mars 2006, til og með fimmtudeginum 13 apríl 2006. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til fimmtudagsins 13. apríl 2006
Nú er lokið dúkskiptum í sundlauginni og verður hún opnuð laugardag. Nýi dúkurinn var keyptur frá Á. Óskarssyni og sá fyrirtækið Pappi ehf. um að leggja hann með dyggri aðstoð starfsmanna laugarinnar og annarra starfsmanna sveitarfélagsins. Við framkvæmdina þurfti m.a. að byggja yfir laugarkerið til að skapa góða vinnuaðstöðu. Verkið tók lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir og spilaði þar ýmislegt inn í eins og vill verða við endurnýjun gamalla mannvirkja. Í þessari aðgerð var steypufylling tekin úr rennunum og þær færðar í upprunalegt horf og bætt við niðurföllum til að auðvelda að þær hreinsi sig. Þetta er sennilega þriðja klæðningin sem fer á laugarkerið. Upphaflega var kerið steypt síðan var það trefjahúðað svo dúkklætt og nú þessi síðasta aðgerð. Í tilefni af því að nýi dúkur er kominn í laugina og dráttur varð á opnun laugarinnar er öllum bæjarbúum boðið í sund á opnunardaginn.
Hjá Sveitarfélaginu Hornafirði er það áhaldahús sér almennt um hálkueyðingu og snjómokstur í sveitarfélaginu. Verkstjóri áhaldahúss eða yfirmenn hans meta aðstæður hverju sinni og ráða aðra verktaka eftir þörfum. Hafa skal eftirfarandi verklagsreglur til viðmiðunar. Varðandi snjómokstur þá fer Vegagerðin fer eftir þeirri leið sem kallast þjóðvegur í þéttbýli þ.e. frá hafnarbakka við Álaugarey norður Sæbraut að gatnamótum við Álaugarveg til vesturs og eftir Víkurbraut til norðurs að gatnamótum Hafnarbrautar og til norðurs út úr bænum. Um er að ræða einfalda braut. Áhaldahús ryður síðan betur þessa leið, þ.e. tvíbreitt og fer síðan í aðrar hliðargötur þar sem áhersla er lögð á stofnanir sveitarfélagsins s.s.
Undanfarið hefur verið unnið að almennu viðhaldi og undirbúningi að dúkaskiptum í sundlauginni. Vonir standa til að hægt verði að opna laugina almenningi seinnipartinn í þessum mánuði ef ekkert sérstakt tefur framkvæmdir. Staðfestur opnunartími verður auglýstur í fjölmiðlum. Framkvæmdahópur um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Hornafirði hélt fund í fyrri viku með starfsmönnum íþróttamannvirkja þar sem farið var yfir þær hugmyndir og upplýsingar sem uppi eru um nýbyggingu sundlaugar og hvernig best sé að tengja hana við íþróttahúsið. Að sögn formanns framkvæmdahópsins Friðriks Ingvaldssonar formanns æskulýðs- og tómstundaráðs er reiknað er með að ný sundlaug verði staðsett vestan við íþróttahúsið á Höfn og hefur hópurinn undanfarið verið að við að sér upplýsingum um sundlaugarmannvirki víðsvegar að af landinu.
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árið 2006 var samþykkt í bæjarstjórn 1. desember sl. Þar kemur fram að heildarvelta bæjarsjóðs, stofnana og fyrirtækja bæjarins (Heilbrigðistofnunar Suðausturlands, Hornafjarðarhafnar, vatnsveitunnar og húsnæðiskerfisins) verður um 1,7 milljarður . Launakostnaður er afgerandi útgjaldaþáttur með um 65,6% af skatttekjum og fræðslu- og uppeldismál vega þyngst með um 57,4% af skatttekjum. Bæjarstjórn hefur á síðustu árum beitt aðhaldi í útgjöldum og lækkað skuldir bæjarsjóðs verulega. Með því móti skapast svigrúm til að framkvæma stærri verkefni. Á næsta ári er áætlað að verja 150 m.kr. til framkvæmda á vegum bæjarsjóðs. Forgangsverkefni eru sundlaug og íþróttasvæði. Jafnframt verður framkvæmt á vegum vatnsveitu fyrir 4 m.kr. og hafnarsjóðs fyrir 110,7 m.kr. en af þeirri upphæð koma 75,0 m.kr. af samgönguáætlun.
Af gefnu tilefni er bent á að í gildi eru reglur um farandsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Samkvæmt reglunum er öllum er heimilt að stunda farandsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði, enda fullnægi þeir skilyrðum laga nr. 28/1998 um verslunaratvinnu til að stunda slíka starfsemi og þeim skilyrðum sem sett eru í reglum þessum. Til þess að heimild fáist þarf að skila inn öllum nauðsynlegum gögnum, þar á meðal staðfesting á skráningu rekstraraðila í firma- eða hlutafélagaskrá, eintak nafnspjalds skv. 2. mgr. 5. gr. laga nr. 28/1998 og upplýsingar um fasta starfsstöð og prókúruhafa. Þar þarf að koma fram nafn, kennitala, VSK númer rekstraraðila, hvaða vörur viðkomandi hyggst selja, og hvar og hvenær salan mun eiga sér stað. Sveitarfélagið getur látið stöðva farandsölu, komi í ljós að upplýsingar standist ekki.
Í dag, 1. desember 2005, heimsóttu nemendur og starfsfólk Hafnarskóla ráðhús sveitarfélagsins. Bæjarráð ásamt starfsmönnum í ráðhúsi tók á móti hópnum framan við húsið. Nemendur sungu nokkur lög og færðu bæjarráði, bæjarstjóra og framkvstj. fræðslu- og félagssviðs áletraða boli að gjöf. Á bolunum er merki Hafnarskóla og áletranirnar Byggjum betra samfélag og VIRÐING FRELSI VINÁTTA
Nú fer sá tími að koma að þeir aðilar sem þeir sem búsettir eru í Sveitarfélaginu Hornafirði, en voru ekki skráðir með lögheimili þar samkvæmt síðustu íbúaskrá þurfa að tilkynna um rétt lögheimili. Hið sama gildir um þá sem flutt hafa heimili sitt innan sveitarfélagsins. Tilkynna á um flutning eigi síðar en sjö dögum eftir að hann á sér stað en eins og oft vill verða þá getur það farist fyrir og því skorar Sveitarfélagið á alla þá sem ekki hafa þegar gengið frá þeim málum að ljúka því hið fyrsta eða fyrir 1.desember n.k.
Í vinnu að nýrri skólastefnu er leitað eftir þátttöku allra sem hagsmuna eiga að gæta og láta sig skólamál varða. Nú leitum við eftir þátttöku forráðamanna og annarra sem áhuga hafa á þessum málaflokki. Með því að mæta á fund í Hafnarskóla þriðjudaginn 25. október næstkomandi kl. 20:00 gefst fólki kjörið tækifæri til að láta rödd sína heyrast og hafa þannig áhrif á skipulag skólamála í næstu framtíð.
Skólanefnd Hornafjarðar
Úrkoma á Höfn og nágrenni frá hádegi föstudagsins 14. október til um kl. 21 á laugardagskvöld er áætluð um 185 mm. Í Akurnesi mældist á þessum tíma 220 mm úrkoma. Á föstudagskvöld tók að bera á vatnsflóðum í íbúðarhús og hafist var handa við dælingu sem var framhaldið þá um nóttina og á laugardaginn. Það voru starfsmenn í áhaldahúsi, slökkviliði og tæknideild sem unnu við dælingar og notuðu til verksins allar tiltækar dælur frá Króm og Hvítt, Rarik og Rósaberg, auk öflugra dælubíla slökkviliðsins. Fráveitukerfi Hafnar, líkt og almennt gerist með slík kerfi, er hannað til að taka á móti fljóðatjónum sem koma á 5-10 ára fresti. Ef kerfi eru hönnuð til að geta flutt vatn vegna meiri úrkomu eru mun dýrari og virkni þeirra verri, t.d. vegna sjálfhreinsunar. Veðrið sem hér geisaði frá hádegi á föstudag til laugardagskvölds er talið endurtaka sig á 100 ára fresti og er umtalsvert meira flóð en fráveitukerfið er hannað til að taka á móti, samkvæmt upplýsingum frá Línuhönnun.
Á laugardaginn kemur eða nánar tiltekið Fyrsta vetrardag verður mikill rokkdagur hjá starfsmönnum Sveitarfélagsins Hornafjarðar en þá ætla þeir ásamt mökum sínum að gera sér dagamun og bregða sér á rokkveisluna Rokk í 50 ár á Hótel Höfn með öllu tilheyrandi mat, drykk og dansi. Á annað hundrað manns mæta þar. Átta ár eru liðin síðan slík starfsmannahátíð var haldin síðast sem var á 100 ára afmælishátið Hafnar í íþróttahúsinu. Í það skipti fór einmitt fram keppnin um afmælislag Hafnar og var það lag Heiðars Sigurðssonar Kæra Höfn sem bar sigur úr býtum en hann er tónlistarstjóri Rokk í 50 ár. Undirbúningsnefnd hefur unnið að undirbúningi hátíðarinnar í nokkra mánuði og hefur þegar gert tillögu að næstu hátíðarnefnd sem verður formlega opinberuð á hátíðarkvöldinu.
Anna Lilja Ottósdóttir hefur verið ráðinn á fjármálasvið Sveitarfélagsins í stað Luciar Óskarsdóttur, sem áður auk, almennra skrifstofustarfa, sá um afgreiðslu Ráðhússins og greiddi götu þeirra sem þangað áttu erindi. Um er að ræða 100 % stöðugildi. Anna Lilja er fædd á Vestfjörðum, nánar til tekið á Patreksfirði og ólst upp á Bíldudal, en hefur búið hér á Hornafirði síðastliðin 15 ár. Hún útskrifaðist á skrifstofubraut FAS s.l. vor, en áður hefur hún meðal annars. unnið hjá Sveitarfélaginu við störf í Sundlauginni og á leikskólanum Lönguhólum, auk þess sem hún hefur unnið við önnur þjónustu- og verslunarstörf. Hún er gift Birni J Ævarssyni og eiga þau hjónin 2 börn.
Össur Imsland hefur verið ráðinn á tækni- og umhverfissviðs Sveitarfélagsins í stað Vals Sveinssonar, sem hætti störfum í júní s.l. Um er að ræða 100 % stöðugildi. Össur er borinn og barnfæddur Hornfirðingur og hefur lengst af búið hér á Hornafirði fyrir utan námsár sín í Reykjavík og í Danmörku.Össur er menntaður húsasmiður frá Iðnskólanum í Reykjavík og rak á tímabili byggingarfyrirtækið Imstak ehf, hér á Höfn með bróður sínum, Birni Imsland sem einnig starfar á tæknideild sveitarfélagsins. Hann öðlaðist meistararéttindi við Tækniskóla Íslands þar sem hann stundaði nám, en hélt síðan til Óðinsvé, þar sem hann lauk prófi nú í júlí s.l. sem byggingarfræðingur. Á skólagöngu sinni hefur Össur oftar en einu sinni verið verðlaunaður fyrir framúrskarandi árangur.
Borgþór Freysteinsson hefur verið ráðin í stöðu eldvarnareftirlitsmanns hjá sveitarfélaginu í stað Ragnars Imslands sem gegnt hafði stöðunni til fjölda ára. Um er að ræða 60 % stöðugildi. Borgþór er borinn og barnfæddur Hornfirðingur, alinn upp í Hagartúninu. Hann er menntaður mjólkurfræðingur og vann við það í fjölda ára auk annara starfa s.s. sjúkraflutningsmaður og lögregluþjónn. Borgþór hefur starfað hjá Slökkviliði Hornafjarðar frá 1988 og tekið þátt í flest öllum námskeiðum sem þar hafa verið í boði, auk þess sem hann hefur farið til Finnlands og lokið þar eiturefnanámskeiði.
Sveitarfélagið auglýsir nú eftir fólki í sumarstörf eins og undanfarin ár, um er að ræða starf verkstjóra vinnuskólans en það starf felst í stjórnun hans, skipulagningu og umsjón verkefna í samráði við deildarstjóra tækni- og umhverfissviðs Hornafjarðar. Æskilegt er að umsækjendur í starfið séu 20 ára eða eldri, hafi uppeldismenntun og/eða reynslu af umgengni við unglinga. Einnig er reynsla af stjórnun verkefna og almennum garðyrkjustörfum æskileg. Auglýst eftir starfsmanni sem sér um flokksstjórn í vinnuskólans á Höfn og í Nesjum, það starf felst í að vinna með unglingum í umhirðu grænna svæða sveitarfélagsins. Umsækjendur þurfa helst að vera 20 ára eða eldri, æskilegt er að þeir hafi uppeldismenntun og/eða reynslu af umgengni við unglinga og er reynsla af almennum garðyrkjustörfum æskileg.
|nl|
Síðastliðinn laugardag var haldið skólamálaþing í Nýheimum á vegum sveitarfélagsins. Fyrir hádegi var unnið í þremur málstofum þar sem fram komu fulltrúar leikskóla, grunnskóla, tónskóla, framhaldsskóla og foreldra. Eftir hádegi var safnast saman á sal þar sem fram komu þrír gestafyrirlesarar auk heimamanna. Samtals voru fluttir 17 fyrirlestrar á þinginu.
Fimmtudaginn 24. febrúar kl. 20-22 verður málþing í Nýheimum á Höfn um atvinnumál á norðurslóðum. Fjallað verður um hvernig jaðarbyggðum í Færeyjum, Íslandi og Noregi hefur tekist að laga sig að breyttum atvinnuháttum. Efnið er áhugavert því gerður er samanburður á reynslu samfélaga víðsvegar á norðurslóðum. Þess vegna er fróðlegt að vita hvort þau vandamál sem Hornfirðingar glíma við séu einkennandi fyrir aðrar norðlægar byggðir eða einsdæmi. Á málþinginu mun Unnur Dís Skaptadóttir, dósent við Háskóla Íslands, gera grein fyrir helstu niðurstöðum samnorrænnar rannsóknar um efnið sem birtar voru í bókinni Innovations in the Nordic Periphery.
|nl|
Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir nú eftir umsóknum í þróunar- og endurmenntunarsjóð sveitarfélagsins og skulu þær berast í afgreiðslu Ráðhúss eigi síðar en 28. febrúar n.k. Vakin er athygli á að 5.gr. í reglugerð sjóðsins hefur breyst og hljóðar nú þannig: "Unnt er að sækja um styrk til sjóðsins tvisvar á ári, í febrúar og september. Auglýsa skal úthlutun og úthlutunarreglur á heimasíðu sveitarfélagsins. Sjóðsstjórn skal svara öllum styrkumsóknum skriflega. Að öllu jöfnu styrkir sjóðurinn ekki sama einstaklings oftar en tvisvar sinnum vegna sama náms og að hámarki kr. 100.000."
Eins og fram hefur komið hér á vefnum lét Gísli Sverrir Árnason af störfum sem forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Hjalti Þór Vignisson verið ráðinn forstöðumaður Menningarmiðstöðvarinnar. Nýtt skipurit hefur tekið gildi og í því felast miklar breytingar á þessu starfi. Hjalti Þór var áður framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs í Sveitarfélaginu Hornafirði. Á fundi bæjarstjórnar þann 22. desember var samþykkt nýtt skipurit fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð sem tók gildi 1. janúar 2005 sem tilraun til eins árs. Með hinu nýja skipuriti er verið að fækka um eina stjórnunarstöðu í yfirstjórn Sveitarfélagsins. Breytingin felst í því að verkefni sem áður heyrðu undir framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs var dreift á aðra stjórnendur.
Fjárhagsáætlun Hornafjarðar fyrir árið 2005 var samþykkt við 2. umræðu 22. desember sl. Þar er launakostnaður afgerandi útgjaldaþáttur í áætluninni með um 68% af skatttekjum og fræðslu og uppeldismál vega þyngst með um 60% af skatttekjum. Heildarvelta bæjarsjóðs, stofnana og fyrirtækja bæjarins (Heilbrigðistofnunar Suðausturlands, Hornafjarðarhafnar, vatnsveitunnar og húsnæðiskerfisins) verður um 1,7 milljarður
|nl|
Á fundi Bæjarráðs Hornafjarðar í morgun lá fyrir beiðni um framkvæmdaleyfi við vegarstæði við Dynjanda í Nesjum. Ætlunin er að leggja nýjan vegarkafla um 1.4 km langan sem yrði framlenging á endurbyggingu vegarins að Almannaskarði. Mikil bót verður að þessari framkvæmd því blindbeyjan niður fyrir Krosshraunsklettinn verður löguð og einnig beyjan við heimreiðina að Dynjanda. Á fundi bæjarráðs lá einnig fyrir bréf frá Skipulagsstofnun þar sem óskað var eftir áliti hvort framkvæmdin væri háð umhverfismati. Eftirfarandi var bókað á fundi bæjarráðs:
|nl|Bæjarráð telur að ekki sé ástæða til mats á umhverfisáhrifum þar sem framkvæmdin hafi ekki umtalsverð umhverfisáhrif hvorki vegna eðlis né umfangs hennar. Þó telur bæjarráð rétt að bíða umsagnar annarra aðila um hvort framkvæmdin sé háð umhverfismati áður en framkvæmdaleyfi er veitt, sbr. bréf skipulagsstofnunar
Bæjarráð samþykkti fyrr á þessu ári að fara í gang með að gera breytingar á yfirbragði Hafnargötunnar allt frá gatnamótum Víkurbrautar að gatnamórum Svalbarðs. Breytingarnar felast m.a. í því að gatan verður mjókkuð og hellulögð auk þess sem hugmyndir hafa verið unnar af nánasta nágrenni hennar, en Ulla R Pederse landslagsarkitekt hefur gert tillögur að umhverfinu og síðan er þetta unnið áfram hjá tæknideild sveitarfélagsins. Hugmyndin kviknaði út frá frétt frá Keflavík ( Reykjanesbæ ) en þar hefur verið unnið að því að endurgera Hafnarbrautina og gamla bæinn á glæsilegan hátt á síðustu árum, en Hafnarbrautin þar var landsþekkt fyrir óglæsileika frama af. Blómaland er nú að byrja vinnu við fyrsta áfangann, en þeir skiluðu lægstu verðum í verkið á sínum tíma. Byrjað verður við gangbrautina milli Sýsluskrifstofuna og gamla Shell og hellulagt í áttina að Litlubrú. Einnig verður gatan hækkuð á þessu svæði þannig að ekki myndist þarna stór pollur eins og stundum áður fyrir framan Sparisjóðinn.
Í gær urðu bæjarbúar varir við að vatnsleysi sem stafaði af bilun í stýrikerfi vatnsveitunnar í dæluhúsi við vatnsmiðlunargeyminn á Höfn. Við vatnsbólið í Hólmslindum í Laxárdal eru 5 dælur sem afkasta um 60 l/s, en reiknað er með að vatnsbólið gefi að jafnaði um 80 l/s. Miðlunargeymirinn við tjaldstæðið á Höfn er 1.900 rúmmetrar ( 1.900.000 lítrar ) og miðlunargeymir í Ketilaugarfjalli í Nesjum er 300 rúmmetrar ( 300.000 lítrar ). Dælur í miðlunargeymi á Höfn stýra síðan vatnsþörfinni út á dreifikerfið á Höfn og þrýstingur er um 2 kg. en það sem gerðist í gær var að dæla stöðvaðist vegna bilunar og við það fellur þrýstingur og fyrst hjá þeim sem búa hæðst yfir sjávarmáli. Mesta vatnsþörf er í kringum vinnslu á uppsjávarfiski og fara um 70 l/s þegar mest er. Fiskvinnslan í Krossey er hinsvegar með dælur á sínu vatnskerfi og skammta sér þrýsting inn í hús þannig að þar kemur þetta ekki að sök.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar auglýsir nú tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 1998–2018. Breytingin felst í að fyrri landnotkun á svæðinu neðan þjóðvegs nr. 1 við Freysnes í Öræfum verður breytt þannig að hefðbundin landbúnaðarsvæði, beitarlönd og ræktuð tún auk svæðis til sérstakra nota er tengdust ferðaþjónustu á svæðinu verður breytt þannig að aukið verður við opin svæði til sérstakra nota, nýtt svæði verður fyrir frístundabyggð og gert verður ráð fyrir litilli íbúðarbyggð á svæðinu. Breytingartillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum Hornafjarðar að Hafnarbraut 27 frá og með deginum í dag og til föstudagsins 22. október 2004.
Hornfirðingurinn Hjalti Þór Vignisson var valinn úr hópi tólf umsækjenda í starf framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs hjá Sveitarfélaginu Hornafirði. Hjalti lauk í vetur námi í stjórnmálafræði og hefur hann störf næstkomandi mánudag. Hjalti bjó í Reykjavík frá 19 ára aldri en kom alltaf heim á sumrin m.a. til að spila knattspyrnu og á hann að baki yfir 100 deildarleiki fyrir Sindra. Síðustu þrjú árin hefur hann síðan búið í Reykjavík og erlendis. Hjalti segist þess fullviss að mjög holt sé fyrir ungt fólk að fara að heiman og kynnast nýjum stöðum utanlands og innan og víkka þannig sjóndeildarhringinn, þá er maður svo tilbúinn að koma heim aftur. Fyrir okkur er Hornafjörður draumastaðurinn og við Guðrún, konan mín, og Salvör Dalla, litla dóttirin, erum alsæl að vera komin aftur hingað heim. Hjalti segist hlakka til að takast á við nýja starfið og núna ætla þau að fara að leita að húsnæði til að kaupa og búið er að fá leikskólapláss fyrir dótturina sem er á öðru árinu.
Hjónin Jón Sölvi Ólafsson kokkur og Guðbjörg Stefánsdóttir hafa afhent sveitarfélaginu kr. 486.851 sem er ágóði af styrktarveislu sem þau hjón stóðu fyrir í Nesjaskóla sl. vetur.
Fjárhæðinni verður ráðstafað samkvæmt ósk aðstandenda veislunnar til kaupa á góðum lyftustól í sundlaug Hafnar sem bæta á aðgengi fatlaðra að sundlauginni. Næsta skref er að velja rétta tækið og koma því fyrir.
Kjörskrá liggur nú frammi vegna forsetakosninga sem fara fram 26.júní n.k. Í yfirkjörstjórn eru Jón Stefán Friðriksson, Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir og Sigfinnur Gunnarsson
Hægt er að nálgast kjörskránna á eftirfarandi stöðum sjá
Æskuliðs og tómstundarráð kannar nú áhuga krakka á Hornafirði á jaðaríþróttum og að þessu sinni er það hjólabretti og línuskautar. Fyrirhugað er að stofna klúbb og í framhaldi af því verður fenginn sérfræðingur í slíkum jaðaríþróttamálum sem heimsækir klúbbinn til skrafs og ráðagerðar þar sem m.a. verða skoðuð þau svæði sem koma til greina að setja upp brautir fyrir þessar íþróttir. Borist hefur erindi frá Rauðakrossdeildinni á Höfn þar sem segir að komið hafi til tals að deildin gefi brettapalla fyrir þá krakka sem eru á hjólabrettum hér. Haukur Þorvaldsson æskulýðsfulltrúi segir að það sé vaxandi áhugi á jaðaríþróttum hér og nefndi hann sem dæmi stofnun Mótorkross klúbbsins, Litboltafélagið og þá sem sigla um fjörðinn á kajak.
Árlegur fundur og kynnisferð bæjarstjóra á landinu verður á Hornafirði 6. og 7. maí n.k. Aðal efni fundarins verður verkefnaflutningur frá ríki til sveitarfélaga og efling sveitarstjórnarstigsins. “Hér er rétta umhverfið til að ræða og kynna sér þessi mál þar sem Austur-Skaftafellssýsla var fyrsta héraðið sem sameinaðist í eitt sveitarfélag og Sveitarfélagið Hornafjörður hefur síðan tekið að sér fleiri verkefni frá ríkinu með þjónustusamningum en önnur sveitarfélög” sagði Albert Eymundsson bæjarstjóri.” Eftir að hafa fundað um þessi málefni og farið í heimsóknir á viðeigandi stofnanir mun hópurinn fá kynningu og fræðslu á ýmsum verkefnum og málefnum sveitarfélagsins ásamt heimsóknum í fyrirtæki.
Til sölu eru líkamsræktartæki í eigu sveitarfélagsins sem notuð hafa verið í Orkuverinu við Hafnarbraut 34. Hægt er að fá upplýsingar og nálgast lista yfir tækin á bæjarskrifstofum Hornafjarðar og sömuleiðis að semja um tíma til að skoða tækin.
Óskað er eftir tilboðum í tækin í einum heildarpakka sem verður fyrsti valkostur. Hægt að gera tilboð í einstaka tæki og verða þau tilboð tekin til skoðunar fáist ekki viðunandi tilboð í heildarpakkann.
Ákveðið er að upplýsingamiðstöð fyrir ferðaþjónustuna verði opnuð í Nýheimum í maí. Bæjarstjórn lét kanna þann möguleika að upplýsingamiðstöðin yrði í umsjón Menningarmiðstöðvar og yrði til húsa í Nýheimum, þar sem hún væri vel staðsett. Gísli Sverrir Árnason forstöðumaður Menningarmiðstöðvarinnar er samþykkur því að upplýsingamiðstöðin verði í Nýheimum enda leiðir það til betri nýtingar á húsnæði og starfsfólki. Ljóst er að umferð um Nýheima mun aukast og þessi starfsemi gæðir húsið auk þess auknu lífi sem er í samræmi við upphaflega hugmyndafræði þegar ákvörðun um byggingu Nýheima var tekin. Sagðist hann líta á þetta sem sameiginlegt markmið Menningarmiðstöðvar og sveitarfélagsins.
Á fundi Bæjarstjórnar Hornafjarðar í gær var tekin ákvörðun um að leikskólanum Óla Prik skyldi lokað og starfrækslu hans hætt við lok skólaársins sem er um miðjan júlí. Lokun skólans var samþykkt með 5 atkvæðum, 1 sat hjá og fulltrúi Kríunnar greiddi atkvæði gegn lokuninni. Miklar umræður hafa verið um að loka skólanum og sendu foreldrar þeirra 11 barna sem í skólanum eru bæjarstjórn bréf þar sem lokuninni var mótmælt og m.a. segir þar;
Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru íbúar í Sveitarfélaginu Hornafirði 2.304 þann 31. desember 2003. Íbúum sveitarfélagsins hefur því fækkað um 28 á milli ára. Kynjaskipting í sveitarfélaginu er konum heldur í hag að margra mati, en konur eru 1.104 á móti 1.200 karlmönnum. Fjölmennasti árgangurinn er fæddur 1991, samtals 53 einstaklingar, 30 karlar og 23 konur. Fast á hæla þeim koma síðan þeir sem eru fæddir 1988 samtals 49 einstaklingar. Íbúar í sveitarfélaginu 67 ára og eldri eru 253 samkvæmt sömu heimildum og eru karlarnir aðeins fleiri eða 129 á móti 124 konum.
Á fundi bæjarráðs Hornafjarðar í gær fimmtudag var m.a. fjallað um skólaakstur fyrir skólaárið 2004-2005. Fram kom í upplýsingum frá bæjarstjóra og framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að nokkur óvissa ríkir um fyrirkomulag sérleyfa til hópferðaflutninga allt til ársins 2005, en þá verða öll sérleyfi boðin út. Þessi óvissa hefur áhrif á allt umhverfi fyrirtækja í þessari atvinnugrein. Það er mat aðila, sem leitað hefur verið álits hjá, að vafasamt sé að efna til útboðs á skólaakstri við þessar aðstæður.
Auglýst var eftir tilnefningum í annað skipti til umhverfisverðlauna og þær tilnefningar sem bárust voru: Friðrik Jónsson bóndi Hraunkoti. Hann var tilnefndur vegna áratuga skógræktarstarfa í landi Hraunkots í Lóni og einstakrar umgengni við náttúruna. Þjóðgarðurinn í Skaftafelli vegna mjög góðarar aðkomu og aðgengi fyrir þá sem sækja þjóðgarðinn heim. Einnig komu nefndarmenn með tillögur að umhverfisverðlaunum og voru þær, Félag fuglaáhugamanna á Hornafirði fyrir kynningu á svæðinu og á undirbúningi að fuglaskoðunarstöð. Elín Sigríður Harðardóttir fyrir ötult starf við SD 21 á Hornafirði og starf með vistverndarhópa.
Um miðjan febrúar verður fyrri úthlutun úr Þróunar- og endurmenntunarsjóði Sveitarfélagsin Hornafjarðar. Umsóknarfrestur rennur út 13. febrúar n.k. Í reglugerð sjóðsins segir m.a. “Allir fastir starfsmenn Sveitarfélagsins Hornafjarðar eiga rétt á að sækja um styrk úr sjóðnum. Einnig eiga forstöðumenn stofnana rétt á að sækja um styrki til námskeiðahalds. Markmið sjóðsins er að koma til móts við starfsmenn vegna kostnaðar af námi sem beinlínis er við það miðað að þeir geti tileinkað sér framfarir og tæknibreytingar á sínu sérsviði. Einnig að veita starfsmönnum fjárhagslegan styrk til að sækja námskeið, sem gerir þeim mögulegt að taka að sér vandasamari störf og gera þá hæfari einstaklinga. Ef störf eru lögð niður vegna tækni- eða skipulagsbreytinga eiga starfsmenn kost á fjárhagslegum styrk til endurmenntunar sem geri þeim mögulegt að taka að sér önnur störf fyrir sveitarfélagið”.
Á fundi Menningarmálanefndar miðvikudaginn 14. janúar s.l. voru lagðar fram tilnefningar til menningarverðlauna fyrir árið 2004. Eftirtaldir hlutu tilnefningar að þessu sinni:
Leikhópurinn Lopi fyrir öflugt leiklistarstarf ungmenna
Haukur H. Þorvaldsson fyrir áratuga starf að tónlistar- og menningarmálum
Ungmennafélag Öræfinga/ritnefnd fyrir útgáfu Félagsvinarins
Þorbjörg Arnórsdóttir fyrir vinnu við stofnun Þórbergsseturs
Parket fyrir tónlitarstarf fyrir ungt fólk
Aðstandendur sýningarinnar Með allt a hreinu fyrir metnaðarfulla skemmtidagskrá
Á fundi Bæjarráðs þann 15. janúar s.l. var gengið frá úthlutun styrkja fyrir árið 2004. Eftirtaldir hlutu úthlutun að þessu sinni:
Sóknarnefnd Kálfafellssóknar 50.000 kr.
Björgunarfélag Hornafjarðar 200.000 kr.
Búnaðarsamband A-Skaft. 50.000 kr.
Félag Fuglaáhugamanna á Hornafirði 50.000 kr.
Skógræktarfélag A-Skaft. 150.000 kr.
Ferðafélag A-Skaft. 50.000 kr.
Félag aldraðra 350.000 kr.
Samtals 900.000 kr.
Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2004 var samþykkt á bæjarstjórnarfundi 19. desember s.l. Heildarvelta sveitarfélagsins og fyrirtækja þess er áætluð um 1,5 miljarður árið 2004. Lang stærsti málaflokkurinn eru fræðslumál og tekur hann til sín 58% af skatttekjum sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að skuldir lækki um 15 mkr. á árinu. Áætlað er að framkvæmdir við fyrsta áfanga í fráveitumálum hefjist á árinu og verður til þeirrar framkvæmdar varið 37,5 mkr. en heildarkostnaðurinn er áætlaður 200 mkr. Helst verkefni hafnarsjóðs verða endurbygging Krosseyjarbakka og dýpkun á Grynnslunum.
Hagstofa Íslands hefur sent frá sér bráðabirgðatölur um íbúafjölda á Íslandi hinn 1. desember sl. Íbúar á landinu öllu voru þá 290.490 sem er fjölgun milli ára um 0,79% sem er heldur meiri fjölgun en í fyrra en talsvert minni en áratuginn þar á undan. Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Hagstofunni eru íbúar Hornafjarðar 2.304 1. desember 2003 en voru 2.332 árið 2002, sem er fækkun um 28 íbúa.
Starfsmenn sveitarfélagsins í ráðhúsi sóttu í síðustu viku námskeið sem heitir Þjónusta og viðmót en aðalmarkmið þess námskeiðs er að skerpa á grundvallaratriðum þjónustu í þeim tilgangi að ná betri árangri í samskiptum og viðskiptum. Framkoma, viðmót og afstaða til
Fræðslu og félagssvið Hornafjarðar í samvinnu við landlæknisembættið stóð fyrir námskeiði s.l. mánudag á Hótel Höfn. Yfirskrift námskeiðsins var “Þjóð gegn þunglyndi” Það voru m.a. starfsmenn skóla, heilbrigðisstofnunar, lögreglu og fl. sem sóttu námskeiðið. Alls 33 þátttakendur. Þátttakendur létu vel af námskeiðinu og var almenn ánægja með hvernig til tókst. Námskeiðinu stýrðu Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur, Óttar Guðmundsson, geðlæknir og Wilhelm Norðfjörð, sálfræðingur.
Sveitarfélagið Hornafjörðu fékk úthlutað í sinn hlut 26, 3 þorsígildistonn í úthlutun á byggðakvóta. Kvótanum er úthlutað af Sjávarútvegsráðuneytinu og er honum ætlað að styrkja þau byggðarlög sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Stærsta úthlutun byggðakvóta var til Ísafjarðarbæjar, 118,9 þorsígildistonn. Sveitarfélagið Hornafjörður mun ekki gera tillögur til ráðuneytisins um skiptingu byggðakvótans og mun ráðuneytið því úthluta kvótanum eins og reglugerðir kveða á um. Samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu mun skipting kvótans liggja fyrir innan skamms.
Undanfarið hefur töluverð umræða verið hér í samfélaginu í tengslum við líkamsræktarstöðvar á Hornafirði. Á bæjarstjórnarfundi sem haldin var í gær, fimmtudag var eftirfarandi bókað eftir Ingu Jónu Halldórsdóttir settum bæjarstjóra um aðdraganda og stöðu mála í tengslum við líkamsræktarstöðvarnar.
Sveitarfélagið Hornafjörður fékk úthlutað 26,3 þorskígildislestum af þeim 1500 tonnum sem ætluð eru til stuðnings sjávarbyggðum. Ekki hefur verið tilkynnt hverjir hljóta hnossið. Fulltrúar í bæjarráði Hornafjarðar voru sammála um að ef kæmi hluti ofangreindra veiðiheimilda í hlut sveitarfélagsins verði farið að tillögu Sjávarútvegsráðuneytisins um skiptingu þeirra milli einstakra fiskiskipa.
Samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands hefur gefið út fækkaði Hornfirðingum um 20 á tímabilinu júlí til september 2003. Ef teknir eru fyrstu 9 mánuðir ársins hefur íbúum sveitarfélagsins fækkað um 40. Á sama tímabili fjölgaði íbúum Austur Héraðs um 74, íbúum Fellahrepps fjölgaði um 14 og Fjarðarbyggðar um 10. Í Djúpavogshrepp fækkaði um 9 íbúa og í Vopnafjarðarhrepp fækkaði um 15. Íbúum Austurlands fjölgaði því um 54 fyrstu 9 mánuði ársins samkvæmt tölum Hagstofu Íslands.
Félagsmálaráðherra hefur fallist á tillögu ráðgjafanefndar um úthlutun framlaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti. Sveitarfélagið Hornafjörður fær nú í sinn hlut 8.516.317 kr. og kemur sú upphæð til greiðslu í október. Endanlegt framlag til sveitarfélagsins er því 27.064.032 kr. á árinu 2003. Höfuðborgarsvæðið fær minnst í sinn hlut eða rúmar 12,3 milljónir. Suðurland fær aftur á móti hæstu greiðsluna sem er rúmar 290 milljónir. Austurland fær í sinn hlut rúmar 206 milljónir.
Slökkviliðsmenn á Hornafirði hafa um helgina sótt námskeið sem Brunamálaskólinn stendur fyrir. Kennsla fór fram í Áhaldahúsi bæjarins. Brunamálaskólinn stendur fyrir alhliða kennslu fyrir slökkviliðsmenn og eru námskeið haldin á hverju ári hjá öllum slökkviliðum á landinu. Á námskeiðinu var m.a. farið yfir og kennd grunnatriði í slökkvi- og björgunarstarfi, hvernig unnið er með björgunarklippur þar sem orðið hafa umferðarslys og meðhöndlun eiturefna.
Sveitarfélagið Hornafjörður fær tæpar 68 miljónir í útgjaldajöfnunarframlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem gerir rúmar 29.000 krónur á hvern íbúa sveitarfélagsins. Þau sveitarfélög sem fá hærri upphæð en Hornafjörður eru Skagafjörður með tæpar 96 miljónir, Ísafjarðarbær tæpar 76 miljónir og Borgarbyggð með rúmar 73 miljónir. Framlög úr útgjaldajöfnunarsjóði er aðeins einn hluti af greiðslum úr Jöfnunarsjóði og er tilkomin m.a. vegna skólaaksturs úr dreifbýli, fækkun íbúa o.fl.
“Samskipti í skólum” er yfirskrift námskeiðs sem haldið er þessa dagana á vegum grunnskólanna í Hornafirði og skólaskrifstofunnar. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru sálfræðingarnir Wilhelm Norðfjörð og Hugo Þórisson. Námskeiðið sækja 58 starfsmenn skólanna, kennarar, skólaliðar, stuðningsfulltrúar o.fl. Á námskeiðinu er farið í samskipti starfsmanna annars vegar og samskipti starfsmanna og nemenda hins vegar. Í stuttu spjalli sagði Wilhelm að svona námskeið væru af hinu góða og það góða við samskipti er að þau geta alltaf verið betri. Samskipti á vinnustað þurfa því ekki að vera slæm til þess að réttlæta svona námskeið.
Ragnheiður Jóhannsdóttir hefur verið ráðin sérkennslufulltrúi í stað Ragnhildar Jónsdóttur. Ragnheiður er uppalin á Sauðárkrók en kemur til Hornafjarðar frá Borgarnesi þar sem hún átti heima og starfaði í 22 ár. Í Borgarnesi starfaði hún við kennslu og sérkennslu við grunnskólann í 12 ár og kennsluráðgjöf hjá Fræðsluskrifstofu Vesturlands í 10 ár. Ragnheiður gekk í Samvinnuskólann á Bifröst og varð síðan stúdent frá Samvinnuskólanum í Reykjavík. Kennarapróf tók hún frá KHÍ 1981 og sérkennarapróf frá sama skóla árið 2003.
Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði og dreifði ítarlegri greinargerð þar að lútandi. Helstu tölur í áætlun sveitarsjóðs eru að skatttekjur eru áætlaðar 657,7 milljónir og rekstrargjöld 595,9 milljónir. Reksturinn skilar því afgangi upp á 61,8 milljón.
Staðfestingar bæjarstjórnar lánasamningur milli Sveitarfélagsins og Íslandsbanka. Lánsfjárhæð er 125 milljónir kr. Lánið er verðtryggt miðað við vísitölu neysluverðs og ber fasta 6,9 % vexti. Lánstími er 10 ár en möguleiki er á uppgreiðslu eftir 5 ár.
Forvarnir ná til allra þátta hins daglega lífs í sveitarfélaginu. Þær byrja hjá fjölskyldunni og því er það grundvallaratriði að hún standi traustum fótum. Mikilvægar stofnanir sem að forvörnum koma eru skólar, félagsmálaráð, heilsugæsla, lögregla, kirkja, frjáls félagasamtök og vinnustaðir.