Svið
Stjórnsýslusvið
Helstu þættir sem falla undir starfssvið framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs eru starfsmannamál, tölvu- og upplýsingamál, skrifstofustjórn á bæjarskrifstofu og umsjón með heilbrigðis- og atvinnumálum bæjarfélagsins. Framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs er starfsmaður atvinnumálanefndar og situr auk þess fundi heilbrigðis- og öldrunarráðs og menningarmálanefndar. Hann er einnig ritari bæjarráðs og bæjarstjórnar ásamt því að vera staðgengill bæjarstjóra í fjarveru hins síðarnefnda.


