Bæjarstjórn
Fundargerð Bæjarstjórnar 74
74. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 3. júní 2004, kl. 16:00 í Ekru.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Einar Karlsson, Björn E. Traustason, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson og Eyjólfur Guðmundsson. Einnig Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár.
1.Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 250. fundur 5. maí 2004.
• Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga frá 16. apríl 2004 til kynningar.
Eyjólfur spurði um beiðni Búmanna um kaup sveitarfélagsins á búseturétti einnar íbúðar sem nýlega hefur verið byggð af samtökunum. Bæjarstjóri sagði Búmenn hafa ítrekað beiðni sína en að afstaða hafi ekki enn verið tekin til málsins.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 251. fundur 12. maí 2004.
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 110. fundur 4. maí 2004.
Eyjólfur spurði um hvað liði gerð varnargarða við Hólmsá og hvort öllum formsatriðum hafi verið sinnt varðandi framkvæmdina. Hann spurði einnig um aðgerðir til að hindra ásókn hreindýra vestur yfir Jökulsá og að koma veiðum í sveitarfélaginu í eðlilegan farveg. Halldóra sagði frá viðræðum við Búmenn þar sem velt var upp hugmyndum um frekari byggingu þjónustuíbúða hér. Halldóra sagði stöðu hreindýraveiða í sveitarfélaginu afleita sem stafar m.a. af því að stórum svæðum er lokað fyrir veiði. Bæjarstjóri sagði landgræðslustjóra hafa fullvissað sig um að þess verði gætt að allar framkvæmdir við Hólmsá verði í samræmi við lög og reglur. Bæjarstjóri upplýsti að erindi um viðræður um hreindýramál væru hjá landbúnaðarráðuneytinu.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 252. fundur 19. maí 2004.
• Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 56. fundur 12. maí 2004.
• Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 50. fundur 12. maí 2004.
• Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 58. fundur 13. maí 2004.
• Menningarmálanefnd Hornafjarðar 57. fundur 12. maí 2004.
• Haust 47. fundur 12. maí 2004 til kynningar.
• Fundargerð aðalfundar Menningarráðs Austurlands 4. maí 2004 til kynningar.
Eyjólfur ræddi stöðu Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands og þá umgjörð sem stofnunin hefur í stjórnskipulagi sveitarfélagsins. Hann telur að skerpa þurfi á stöðu heilbrigðis- og öldrunarráðs gagnvart stofnuninni þ.e. hvort hún sé ráðgefandi nefnd eða formleg stjórn. Eins telur hann tengsl formanns heilbrigðis- og öldrunarráðs og hjúkrunarforstjóra geta valdið tortryggni. Bæjarstjóri ræddi um erfiða fjárhagsstöðu stofnunarinnar og sagði að þrátt fyrir vilyrði frá ráðuneytinu um ákveðna leiðréttingu væri vandinn ærinn. Hann sagðist sjálfur ekki í vafa um stöðu Hör sem stjórnar enda áriti hún reikninga stofnunarinnar. Bæjarstjóri sagði skipan formanns Hör endurspegla nauðsyn þess að hafa mikil og bein tengsl á milli stofnunarinnar og bæjarstjórnar vegna umfangs rekstursins þótt vissulega geti umrædd tengsl valdið tortryggni. Hann sagði brotthvarf framkvæmdastjóra HSSA hafa verið óhjákvæmilegt en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um ástæður þess. Halldóra sagði frá því að fengnir hafi verið ráðgjafar til að taka út stjórnun og skipulag á stofnuninni. Hún sagði fulltrúa Hör ætíð hafa litið á sig sem stjórn yfir stofnuninni en ljóst sé að fara þurfi nákvæmlega yfir erindisbréf þessara fulltrúa og skerpa á hlutverki ráðsins. Halldóra sagðist ætíð hafa gætt þess að víkja af fundum þegar rædd hafi verið málefni sem gerðu hana vanhæfa vegna tengsla við hjúkrunarforstjóra.
Halldóra spurði um hvort Siglingastofnun hafi lokið samningum vegna framkvæmda við Krosseyjarbakka. Einnig spurði hún um framkvæmdir við Grynnslin. Halldóra fagnaði því framtaki að „ Skáldið og sekkjapípuleikarinn“ sem var hluti af dagskrá listahátíðar 2004 skyldi vera frumflutt hér á Höfn. Bæjarstjóri sagði að verksamningi vegna Krosseyjarbakka væri ekki lokið en vonandi takist það á næstu dögum. Hann sagði undirbúning framkvæmda á Grynnslunum á lokastigi.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 253. fundur 26 maí 2004.
• Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 57. fundur 18. maí 2004.
• Skólanefnd Hornafjarðar 60. fundur 18. maí 2004.
• Þjónustuhópur aldraðra 13. fundur 23. apríl 2004.
Eyjólfur ræddi ósk íbúa í Öræfum um að kennsla í 8.bekk verði í Grunnskólanum í Hofgarði á næsta skólaári. Eyjólfur tekur undir bókun Þorbjargar þess efnis að funda eigi með forráðamönnum skólaskrifstofu, skólanefndar , starfsmönnum skólans og íbúum Öræfa um framtíðarskipan kennslu þar. Halldóra upplýsti að rætt hafi verið við foreldra barna í Öræfum sem fara í Heppuskóla í haust og þar hafi komið fram að vilji foreldra var ekki samhljóma. Að ýmsum þáttum þurfi að huga, faglegur ávinningur sé ekki af því að hafa kennsluna heima í héraði en því fylgi talsverður kostnaður. Fyrirhugað sé að halda málþing um stöðu skólanna í haust og sé það góður vettvangur til að ræða þetta mál. Halldóra hvatti til þess að unnið verði með Lýðheilsustöð að verkefninu „ Bætt mataræði, aukinni hreyfing barna og unglinga.“ Halldóra spurði um stöðu Norðuríss og starfsemi Vinnuskólans.
Eyjólfur sagði að nýta eigi umrædda beiðni foreldra í Öræfum til að kalla alla aðila saman á fund til að ræða málin og horfa til þess sem samfélagið í heild óskar.
Reynir sagðist hafa túlkað umræður síðast bæjarráðsfundar á þann veg að þrátt fyrir að ekki sé unnt að verða við beiðni foreldranna með svo skömmum fyrirvara þá hafi staðið til að fara í ítarlegar umræður um málið. Halldóra tók undir orð Reynis.
Albert upplýsti að staða Norðuríss er óbreytt frá því sem upplýst var á bæjarráðsfundinum en unnið er að sameiningu við bragðefnavinnslu Primex á Siglufirði. Bæjarstjóri sagði talsverða aukningu vera á umsóknum í vinnuskólann. Reynir sagðist meta það svo að verði af sameiningu Norðuríss þá séu talsverðar líkur á því að staðsetning fyrirtækisins verði hér á Höfn þar sem aðstaða, tæknibúnaður og mannauður er þegar til staðar. Reynir ræddi um svæði fyrir motocross en samþykkt hefur verið að úthluta svæði við Drápskletta tímabundið til þeirra sem ástunda íþróttina.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarstjórn Hornafjarðar 73. fundur, 5. maí 2004, fundargerð áður samþykkt.
2. Ársreikningar 2003 –seinni umræða
Bæjarstjóri sagði engar athugasemdir hafa komið fram við ársreikninga 2003 frá fyrri umræðu og lagði til að bæjarstjórn samþykkti reikningana.
Eyjólfur benti á mismun sem fram kemur í málaflokk götur og holræsi á stöðu miðað við áætlun en mismunur er um 10 milljónir kr. í ónotaða fjárveitingu .Einnig spurðist hann fyrir um framkvæmdir við fraveitukerfi. Bæjarstjóri upplýsti vegna fyrirspurnar Eyjólfs að mismunurinn stafi af því að frestað hafi verið hluta af framkvæmdum við Hafnarbraut. Hann upplýsti að verið sé að ljúka hönnun á fráveitukerfi.
Forseti bar ársreikninga 2003 upp til atkvæða. Bæjarstjórn samþykkti ársreikninganna samhljóð.
3. Kosningar í nefndir og embætti til eins árs og aðrar breytingar
Bæjarstjórn:
Forseti bæjarstjórnar: Halldóra B. Jónsdóttir
Varaforseti bæjarstjórnar: Elín Magnúsdóttir
2. varaforseti bæjarstjórnar: Björn Emil Traustason
Bæjarstjórn samþykkir ofangreinda skipan með 5 atkvæðum, einn sat hjá.
Aðalfundur SSA:
Aðalmenn Varamenn
Reynir Arnarson Elín Magnúsdóttir
Ólafur Sigurðsson Aðalheiður F. Björnsdóttir
Þóra V. Jónsdóttir Friðrik Þ. Ingvaldsson
Halldóra B. Jónsdóttir Einar Karlsson
Björn E. Traustason Vignir Júlíusson
Björk Pálsdóttir Halldóra Guðmundsdóttir
Kristín G. Gestsdóttir Eyjólfur Guðmundsson
Albert Eymundsson Inga Jóna Halldórsdóttir
Bæjarstjórn samþykkir skipan fulltrúa á SSA þing með öllum greiddum atkvæðum.
Bæjarráð
Aðalmenn Varamenn
Elín Magnúsdóttir, formaður Reynir Arnarson varamaður
Halldóra B. Jónsdóttir,varaformaður Björn E. Traustason
Einar Karlsson Björk Pálsdóttir
Bæjarstjórn samþykkir ofangreinda skipan bæjarráðs með fimm atkvæðum, einn sat hjá.
Breytingar
Bæjarstjórn
Kristín Gestsdóttir kemur inn aftur eftir leyfi sem aðalfulltrúi Kríunnar
Skoðunarmenn
Ragnar Jónsson er tilnefndur skoðunarmaður sveitarfélagsins í stað Guðjóns Þorbjörnssonar.
Undirkjörstjórnir
Aðalmaður á Höfn í stað Hrollaugs Marteinssonar verður Hrefna Lúðvíksdóttir
Nefndir:
Sigurbjörn Karlsson er tilnefndur sem varamaður í félagsmálaráði í stað Egils Jóns Kristjánssonar.
Grétar M. Þorkelsson er tilnefndur sem varamaður í umhverfisnefnd í stað Egils Jóns Kristjánssonar.
Bæjarstjórn samþykkti breytingarnar með fimm atkvæðum, einn sat hjá.
4. Fyrirspurnir
Engar.
Fundi slitið kl. 18:10


