Bæjarstjórn
Fundargerð Bæjarstjórnar 76
76. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 7. október 2004, kl. 16:00 í Ekru.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Einar Karlsson, Björk Pálsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig Albert Eymundsson, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 263. fundur 9. september 2004
? Félagsmálaráð Hornafjarðar 113. fundur 24. ágúst 2004.
? Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 61. fundur 1. september 2004.
Reynir spurðist fyrir um lánamál sveitarfélagsins og hvort vinna væri hafin að skuldbreytingu lána.
Kristín vakti máls á málefnum sundlaugarinnar. Hún tók undir með æskulýðs- og tómstundaráði að framkvæmdir við sundlaug skuli vera forgangsmál hjá sveitarfélaginu í íþróttamálum. Ennfremur vakti hún máls á staðsetningu nýs sparkvallar og tók undir með æskulýðs- og tómstundaráði að staðsetningin væri óhentug vegna fyrirhugaðrar byggingar sundlaugar við íþróttahúsið.
Björk vakti máls á hugsanlegu ungmennahúsi og taldi brýnt að koma upp slíku húsi á Hornafirði. Ennfremur spurðist hún fyrir um hvort það væri eitthvað til í því að sveitarfélagið myndi ekki leggja áherslu á að versla í heimabyggð.
Halldóra vakti máls á stækkun Skaftafellsþjóðgarðs og nú væri gott tækifæri til að taka þátt í umræðu um stækkaðan þjóðgarð.
Bæjarstjóri upplýsti að vinna væri hafin að endurfjármögnun óhagstæðra lána og tilboð væru komin í því efni. Vegna umræðu um sundlaugabyggingu benti bæjarstjóri á að sundlaugabyggingar eru í eðli sínu mjög dýr mannvirki og fjárfrekar í rekstri og þess vegna ekki raunhæft að hefjast handa á næstunni.
Bæjarstjóri ræddi einnig um staðsetning sparkvallar og sá ekki að sú staðsetning hindri framkvæmd við sundlaug á svæði við íþróttahúsið ef til kæmi.
Bæjarstjóri ræddi athugasemd Bjarkar um uppbyggingu á ungmennahúsi og upplýsti að nýlega hafi hann ásamt öðrum starfsmönnum sveitarfélagsins átt fund með fulltrúa menntamálaráðuneytisins. Á þeim fundi kom fram í máli fulltrúa ráðuneytisins að ákveðinna efasemda gætti um gildi slíkra húsa. Því gæti verið skynsamlegra að beina fjármunum í æskulýðsmálum í annan farveg en þennan.
Bæjarstjórn ræddi um athugasemdir varðandi að sveitarfélagið sniðgangi heimamenn varðandi kaup á vörum og þjónustu. Hann óskaði eftir því að gengið væri hreint til verks og dæmi tiltekin um hvort slíkt hafi átt sér stað. Hann lagði áherslu á að sveitarfélagið myndi eftir fremsta megni versla í heimabyggð en sagði jafnframt að forstöðumönnum og stjórnendum hjá sveitarfélaginu væri uppálagt að gæta hagkvæmni í rekstri. Bæjarstjóri sagði að eflaust mætti finna dæmi um að starfsmenn sveitarfélagsins yrði á í þessum efnum.
Bæjarstjóri hvatti fundarmenn til að kynna sér vandlega fyrirhugaða stækkun Skaftafellsþjóðgarðs. Hann lagði áherslu á að ákveðin völd og áhrif væru að færast úr héraðinu til ríkisstofnana vegna þessara breytinga og því væri mikilvægt að gæta vel að hagsmunum þeirra aðila sem reka atvinnustarfsemi í tengslum við jökulinn og annarra sem kunna að hafa hagsmuna að gæta við þessa breytingu.
Kristín vildi koma því á framfæri að hún hafi haft langtímaáætlun fyrir bæjarfélagið í huga þegar hún ræddi um hugsanlegar framkvæmdir varðandi sundlaug. Kristín tók undir orð bæjarstjóra varðandi ungmennahús og vakti máls á ÚFFF málþingi sem fór fram fyrir nokkru og þeirri vinnu sem farið hefur fram í kjölfarið. Hún taldi að akkilesarhæll félagsstarfs ungs fólks í héraðinu væri vegna þess hversu ungur framhaldskólinn væri en með tilkomu nýrrar byggingar undir skólann horfi til betri vegar.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 264. fundur 23. september 2004
? Félagsmálaráð Hornafjarðar 114. fundur 14. september 2004.
? Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 61. fundur 9. september 2004.
? Menningarmálanefnd Hornafjarðar 59. fundur 15. september 2004.
? Skólanefnd Hornafjarðar 63. fundur 14. september 2004.
? Umhverfisnefnd Hornafjarðar 45. fundur 13. september 2004.
? Heilbrigðisnefnd Austurlands 49. fundur 13. ágúst 2004 og 50. fundur 15. september 2004 til kynningar.
? Fundargerð Launanefndar sveitarfélaga 195. fundur 15. september 2004.
Reynir spurðist fyrir um hvernig vinnu við þjónustusamning við ríkið varðandi heilbrigðismál miðaði. Hann spurðist einnig fyrir, í tengslum við söluna á Hæðargarði 7, um hvort tilboð hafi komið í aðrar eignir sveitarfélagsins.
Bæjarstjóri upplýsti að töluverð vinna hafi farið fram á síðustu dögum og frekari stoðum rennt undir að Heilbrigðisstofnun Suðausturlands hafi setið eftir varðandi fjárframlög frá ríkinu samanborið við aðrar heilbrigðisstofnanir á landinu. Bæjarstjóri upplýsti að ráðherra hafi lýst yfir vilja til að leysa málið farsællega. Bæjarstjóri upplýsti einnig að ráðgjafi sem fengin var til að fara yfir rekstur HSSA hafi komist að þeirri niðurstöðu að stofnunin væri þegar á heildina er litið vel rekin og skipulag í góðu ástandi. Bæjarstjóri lagði áherslu á að ef ekki fengist viðunandi niðurstaða í viðræðum við ráðuneytið væri enginn annar kostur í stöðunni en að segja samningnum við heilbrigðisráðuneytið upp.
Bæjarstjóri upplýsti að Hæðargarður 7 hafi verið seldur nærri markaðsverði en engin tilboð hafi komið í aðrar eignir sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 265. fundur 30. september 2004
? Heilbrigðis- og öldrunarráð 53. fundur 2004.
? Æskulýðs- og tómstundaráð 62. fundur 27. september 2004.
Björk spurðist fyrir um hvenær væri fyrirhugað að hefja viðbyggingu við hjúkrunarheimilið.
Reynir spurðist fyrir um leikssvæði barna í Nesjahverfi og hvort vinna væri farin í gang. Hann spurði einnig hvernig vinnu væri háttað við tengingu á götunum í Nesjahverfi.
Kristín vakti athygli á hugmyndum um starfsemi HSSA að Hvannabraut 3-5, gamla Skjólgarði. Hún lagði áherslu á að þetta væri hugmynd til umræðu. Hún ræddi einnig um fyrirhugaða byggingu við hjúkrunarheimili og óskaði eftir að bæjarstjóri upplýsti um hvernig áætlað sé að vinna að málinu.
Bæjarstjóri upplýsti að ekki verði byrjað á viðbyggingu við hjúkrunarheimili á næsta ári. Hann upplýsti jafnframt að viljayfirlýsing væri undirrituð af hálfu sveitarfélagsins og ríkisins og búið væri að hanna bygginguna. Bæjarstjóri ræddi einnig um starfsemi HSSA að Hvannabraut 3-5 og þær hugmyndir sem fram hafa komið varðandi hana. Hann taldi nauðsynlegt að hugmyndirnar yrðu skoðaðar vandlega. Hann ræddi um breytingar á leikvelli í Nesjahverfi og lagði áherslu á að íbúar hverfisins hefðu sem mest að segja um hvar völlurinn yrði staðsettur. Varðandi tengingu á Hæðargarði og Hraunhól þá hefðu íbúar tækifæri að koma athugasemdum um þá tillögu á framfæri og taldi að framkvæmdir væru á næsta leyti.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarstjórn Hornafjarðar 75. fundur, 2. september 2004 , fundargerð til samþykktar og undirritunar.
Fundargerð samþykkt
2. Fyrirspurnir
Engar fyrirspurnir bárust.
Fundi slitið kl. 17.20


