Bæjarstjórn
Fundargerð Bæjarstjórnar 77
77. fundur Bæjarstjórnar
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, miðvikudaginn 27. október 2004, kl. 17:30 í Hofgarði.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, forseti, Einar Karlsson, Björk Pálsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig Albert Eymundsson, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 266. fundur 7. október 2004.
· Fundur um náttúrustofu Suðausturlands, 1. október 2004.
Einar spurðist fyrir um framkvæmdir við Hafnarbraut, fráveitumál og hvort von væri á forhönnunarskýrslu vegna fráveitumála innan tíðar. Albert gerði grein fyrir tilboðum sem bárust í framkvæmdir við Hafnarbraut. Þá upplýsti hann að forhönnunarskýrslu yrði dreift á allra næstu dögum. Hann gerði grein fyrir ákvörðun á síðasta fundi bæjarráðs um að bjóða út fyrsta áfanga við framkvæmdir á fráveitu.
Fundargerð samþykkt
Bæjarráð Hornafjarðar 267. fundur 14. október 2004.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 115. fundur 5. október 2004.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 62. fundur 6. október 2004.
Björk taldi Norðurljósaverkefnið afar áhugavert. Þá ræddi hún kennaraverkfallið og lagði fram þá spurningu hvort sveitarfélagið gæti komið til móts við grunnskólabörn í yfirstandandi verkfalli.
Reynir spurðist fyrir um dælingar á Grynnslunum.
Kristín ræddi Norðurljósaverkefnið og taldi margvísleg tækifæri felast í því fyrir ferðaþjónustuaðila innan sveitarfélagsins. Þá lýsti hún því yfir að vegna stöðu sinnar sem bæði kennari og bæjarfulltrúi hygðist hún ekki ræða kennaraverkfallið á opinberum fundum.
Bæjarstjóri tók undir orð Kristínar og Bjarkar um Norðurljósaverkefnið. Hann sagði að verktaki við dælingar á Grynnslunum hafi tafist vegna annarra verka en upplýsti að starfsmenn bæjarfélagsins væru í nánast daglegum samskiptum við Siglingastofnun til að ýta á að verkið hæfist sem fyrst. Bæjarstjóri upplýsti að framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs hafi verið falið að leita leiða til að koma á móts við þarfir barna og unglinga í yfirstandi verkfalli grunnskólakennara.
Elín tók undir áhyggjur Bjarkar vegna þeirrar stöðu sem hefur skapast vegna verkfalls. Hún upplýsti að bæjarráð hafi samþykkt að halda fjölskyldudag þann 6. nóvember.
Björk fjallaði um lögreglusamþykkt og taldi brýnt að hægja á umferð innan bæjarmarka. Hún lagði til að í íbúagötum yrði hámarkshraði 30 km.
Halldóra vakti máls á því að lögreglusamþykkt hafi verið vísað til nefnda sveitarfélagsins og í framhaldi yrði hún rædd tvívegis í bæjarstjórn. Hún ræddi grunnskólaverkfallið og tók undir orð Elínar og Bjarkar.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 268. fundur 21. október 2004.
· Bygginga- og skipulagsnefnd 55. fundur 14. október 2004.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 116. fundur 12. október 2004.
Kristín fagnaði hækkun hámarkslána Íbúðalánasjóðs og sagði hagræði af þessari breytingu fyrir sveitarfélagið.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð 76. fundar Bæjarstjórnar Hornafjarðar 7. október 2004, áður samþykkt.
2. Endurskoðun á fjárhagsáætlun 2004.
Bæjarstjóri fór yfir endurskoðaða fjárhagsáætlun fyrir árið 2004 sem bæjarráð vísaði til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Helstu breytingar á fjárhagsáætluninni eru þær að skatttekjur í heild hækka um 6,4 milljónir. Heildarupphæð skatttekna er þá 713,1 milljón.
Útgjöldin aukast hins vegar um 10 milljón. Heildarupphæð útgjalda eru 777,3 milljónir. Húseignin að Hæðargarði 7 var seld og nettó hagnaður vegna þess var 3,6 mkr. sem sett var á áætlun til framkvæmda í Nesjahverfi. Breyting á hreinu veltufé er því óbreytt frá samþykktri áætlun.
Samkvæmt endurskoðaðri fjárhagsáætlun ársins 2004 verður því A- hluti sveitarsjóðs rekinn með 64,1 milljón kr. halla. Þegar tekið hefur verið tillit til afskrifta eigna, 46 milljónir, og reiknaðra lífeyrisskuldbindinga, 16 milljónir, er peningalegt tap 2,1 milljón.
Erfiðara rekstrarumhverfi sveitarfélaganna vegna meiri krafna íbúanna og hærra þjónustustig er staðreynd sem blasir við stjórnendum sveitarfélaga í landinu. Það er brýnt að sveitarfélögin með Samband íslenskra sveitarfélaga í fararbroddi þrýsti á um að sveitarfélögin fái hærri hlutdeild í heildarskatttekjum landsmanna þar sem þær tekjur sem þau hafa nú duga vart fyrir rekstri, hvað þá að standa undir afborgunum lána og nauðsynlegum framkvæmdum.
Fjárhagslegt umhverfi sveitarsjóðs kallar á að allir starfsmenn sveitarfélagsins, sérstaklega forstöðumenn, leggist á eitt um að gera reksturinn sem hagkvæmastan.
Undir þessum lið gerði bæjarstjóri grein fyrir málefnum HSSA vegna þeirrar vinnu sem fram hefur farið um rekstur stofnunarinnar undanfarin ár og endurskoðun á fjárhagsáætlun 2004. Fram kom í máli hans að ýmsar leiðréttingar hefðu náðst fram sem staðfesta að stofnunin hefur ekki fengið eðlileg fjárframlög frá ríkinu. Samkvæmt þeim leiðréttingum kemur í ljós að reksturinn árið 2003 er í jafnvægi og sömuleiðis áætlun fyrir 2005. Ennþá stendur út af rúmlega 7 miljón króna rekstrarhalli árið 2004 og uppsafnaður halli vegna aukinnar heimaþjónustu á síðustu árum.
Kristín ræddi um endurskoðun á fjárhagsáætlun. Þá lagði hún áherslu á að tekjuskipting á milli ríkis og sveitarfélaga yrði endurskoðuð. Kristín ræddi einnig málefni HSSA.
Halldóra ræddi um erfitt rekstrarumhverfi sveitarfélaga í tengslum við endurskoðun á fjárhagsáætlun. Þá ræddi hún stöðu HSSA.
Breytingar á fjárhagsáætlun samþykkt samhljóða.
Forseti bæjarstjórnar bar upp eftirfarandi bókun:
,,Bæjarstjórn Hornafjarðar telur að ekki hafi enn fengist leiðréttingar vegna HSSA og leggur áherslu á að ef ekki náist samkomulag um uppgjör á næstu dögum verði núverandi þjónustusamningi sagt upp frá og með næstu áramótum.“
Samþykkt samhljóða.
3. Reglur Félagsmálaráðs Hornafjarðar vegna barnaverndarmála
· Verklagsreglur barnaverndarnefndar Hornafjarðar um könnun og meðferð mála sem undir hana heyra og umboð starfsmanns.
· Reglur um könnun og meðferð einstakra barnaverndarmála eða málaflokka hjá starfsmanni félagsmálaráðs Hornafjarðar.
· Reglur um styrk til greiðslu lögmannskostnaðar sbr. 2.gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Bæjarstjóri upplýsti að reglurnar væru tilkomnar vegna breytinga á barnaverndarlögum.
Kristín lýsti ánægju sinni með framkomnar reglur og taldi brýnt að þær fengju góða kynningu meðal íbúa sveitarfélagsins.
Reglurnar samþykktar samhljóða.
4. Reglugerð um Skaftafellsþjóðgarð
Bæjarstjóri gerði grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið vegna mótun reglugerðar fyrir Skaftafellsþjóðgarð.
Bæjarstjóri las upp eftirfarandi bókun:
,,Bæjarstjórn Hornafjarðar fagnar stækkun Skaftafellsþjóðgarðs. Bæjarstjórn telur að hér sé um mikið hagsmunamál fyrir íbúa Austur-Skaftafellssýslu að ræða sem feli í sér margvísleg tækifæri til uppbyggingar atvinnu og þjónustu.
Bæjarstjórn Hornafjarðar lýsir yfir ánægju með samráð umhverfisráðuneytisins við heimamenn vegna endanlegrar mótunar reglugerðar fyrir þjóðgarðinn og væntir góðs samstarfs um málefni þjóðgarðsins í framtíðinni.
Jafnframt hvetur Bæjarstjórn Hornafjarðar til þess að nú þegar verði hafin vinna að endurskoðun á lögum um náttúruvernd með það að markmiði að af afloknum sveitarstjórnarkosningum 2006 verði skipuð stjórn fyrir þjóðgarðinn í stað ráðgjafanefndar.
Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi drög að reglugerð fyrir Skaftafellsþjóðgarð.“
Reynir vakti máls á þeim tækifærum sem stækkun þjóðgarðsins hefur í för með sér.
Ólafur fagnaði stækkun þjóðgarðsins og tók undir orð Reynis. Hann vísaði til jákvæðrar reynslu Öræfinga og annarra sýslubúa af nærveru við þjóðgarðinn í Skaftafelli.
Kristín lýsti yfir ánægju með þennan áfanga. Hún lagði áherslu á að reglugerðin væri til bráðabirgða þar til lög um náttúruvernd verða endurskoðuð. Hún ræddi um mikilvægi þátttöku heimamanna í stofnun og starfrækslu þjóðgarðsins.
Halldóra benti á að í núverandi drögum að reglugerð væri hlutverk ráðgjafanefndar mun betur skilgreint en áður. Hún lýsti yfir ánægju sinni með jákvæðar undirtektar í umhverfisráðuneytinu varðandi athugasemdir sem bárust frá sveitarfélaginu. Hún tók undir orð Kristínar um að reglugerðin væri til bráðabirgða.
Forseti bæjarstjórnar las upp tillögu bæjarstjóra að bókun. Samþykkt samhljóða.
5. Kosningar
Þorsteinn Sigfússon hefur óskað eftir að vera leystur undan setu sem aðalmaður í heilbrigðis- og öldrunarráði. Aðalmaður í hans stað var kosin Elínborg Baldursdóttir og Elín Magnúsdóttir varamaður.
6. Fyrirspurnir
Engar.
Fundi slitið kl. 19.25


