Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 84

84. fundur

Bæjarstjórn Hornafjarðar 84. fundur

Fundur haldinn í Ekru, fimmtudaginn 7. apríl 2005 kl. 16:00.

Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, forseti, Björk Pálsdóttir, Einar Karlsson, Björn Emil Traustason, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.

Forseti bæjarstjórnar setti fund og óskaði eftir að bætt verði við lið á dagskrá bókanir vegna útbús Fiskistofu á Höfn og samgönguáætlunar 2005-2008 sem lið 3.

Gengið var til dagskrár.

1. Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar 285. fundur 10. mars 2005.

· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 66. fundur 3.mars 2005.

· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 59. fundur 7. mars 2005.

· Stjórn Sambands ísl. Sveitarfélaga 722. fundur 18. febrúar 2005 til kynningar.

Reynir Arnarson spurðist fyrir um framlengingu á samstarfssamningi um Háskólasetur og um stöðu í jarðhitaleit. Hjalti Þór upplýsti að samningur hafi verið gerður til eins árs varðandi Háskólasetrið. Jarðhitaleitarmálið er í vinnslu. Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 286. fundur 18. mars 2005.

· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 17. fundur 14. mars 2005.

· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 57. fundur 10. mars 2005.

· Félagsmálaráð Hornafjarðar 123. fundur 8. mars 2005.

· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 66. fundur 9. mars 2005.

· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 50. fundur 14. mars 2005.

Kristín G. Gestsdóttir ræddi um fundargerð atvinnumálanefndar þar sem rætt er um á hugmundum um betrunarheimili í sveitarfélaginu og annað sem skapar ný atvinnutækifæri í sveitarfélaginu hún tekur undir bókun atvinnumálanefndar varðandi atvinnumál. Hjalti tók undir orð Kristínar. Reynir upplýsti að á fundi með forsætisráðherra að gerður verði vaxtasamningur milli sveitarfélagsins og ríkisins. Björn Traustason spurðist fyrir um vindbrjót við Almannaskarð. Hjalti upplýsti að samband var haft við Vegagerðina . Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 287. fundur 31. mars 2005.

· Félagsmálaráð Hornafjarðar 124. fundur 22. mars 2005.

· Skólanefnd Hornafjarðar 69. fundur 16. mars 2005.

· Heilbrigðisnefnd Austurlands 53. fundur 16. mars 2005 til kynningar.

Kristín G. Gestsdóttir ræddi um fundargerð skólanefnd m.a. þar sem samþykkt var að hefja kennslu í 8 bekk í Grunnskólanum í Hofgarði. Einnig undi 5 lið varðandi leikskólamál og skólastefnu. Einnig ræddi hún um breytingu á námsskipan til stúdentsprófs og um þá kostnaðaraukningu sveitarfélagsins sem hún telur að verði samfara því. Hún ræddi einnig um vinnu við aðalskipulags og spurði formann byggingarnefndar um þá vinnu sem er í gangi. Björn Emil Traustason taldi að vel þyrfti að fara yfir leikólamálin áður en farið verði í stórtækar breytingar. Ólafur Sigurðsson upplýsti varðandi vinnu við aðalskipulag. Hjalti Þ. Vignisson ræddi um breytingu í skólamálum í Öræfum og telur að málið hafi verið vel unnið, hann upplýsti einnig að gagnaöflun er farin af stað varðandi skólastefnu. Leikskólamálin eru í ákveðnum farvegi.

Fundargerð samþykkt.

 Bæjarstjórn Hornafjarðar 83. fundur 10. mars 2005 fundargerð áður samþykkt.

2. Breytingar á aðalskipulagi við Fagurhólmsmýri í Öræfum

·         Lagðir voru fram uppdrættir á fundinum.

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Fyrir lá uppdráttur af breytingu á aðalskipulagi vegna stækkunar á verslunar- og þjónustureit við Fagurhólsmýri í Öræfum.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að um óverulega breytingu er að ræða og vísar henni áfram til Skipulagsstofnun til afgreiðslu og auglýsingar. 

Einnig liggur fyrir uppdráttur af tillögu að deiliskipulagi vegna hótelbyggingar á Fagurhólsmýri, en skipulagsnefnd hefur áður samþykkt tillöguna fyrir sitt leiti.

Sveitarstjórn samþykkir deiliskipulagstillöguna samhljóða og vísar henni áfram til Skipulagsstofnunar til afgreiðslu og auglýsingar í framhaldi af því, samhliða breytingu á aðalskipulagi

Kristín G. Gestsdóttir minnti enn á endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins.  Reynir Arnarson taldi að svona mál ættu ekki að bíða eftir endurskoðun á aðalskipulagi og ekki rétt að tefja framkvæmdir vegna þessa.  Björn Emil Traustason tekur undir orð Reynis.  Hjalti Þór Vignisson tekur undir orð Reynis og Björns.

3. Bókanir bæjarstjórnar

Bókun vegna Fiskistofu Bæjarstjórn Hornafjarðar lýsir yfir ánægju með ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að færa hluta af starfsemi Fiskistofu út á land og setja m.a. á stofn starfsstöð á Hornafirði. Margvísleg opinber starfsemi á höfuðborgarsvæðinu á frekar heima vítt og breytt um landið þar sem þjónustan fer fram. Bæjarstjórn bendir á að ákvörðun sjávarútvegsráðherra sé til eftirbreytni og skorar á önnur ráðuneyti að fylgja fordæmi hans.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

Bókun vegna Hornafjarðarfljót Bæjarstjórn lýsir yfir vonbrigðum sínum með að í tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2005-2008 sem lögð er fyrir Alþingi skuli framkvæmdum við Hornafjarðarfljót vera frestað um tvö ár. Eins og kunnugt er var upphaflega áætlað að til þeirra framkvæmdar kæmi 200 m.kr. fjárveiting árið 2006. Bæjarstjórn hefur á undanförnum árum margítrekað nauðsyn þess að ljúka rannsóknum og umhverfismati vegna fyrirhugaðs vegar- og brúarstæðis og hér með er það undirstrikað einu sinni enn. Bæjarstjórn treystir því að við endanlega ákvörðun um fjárveitingar í verkið verði framkvæmdatíminn sem stystur til að vega upp á móti frestun. Því er gerð sú krafa að umhverfismati verði lokið og að ákvörðun um brúarstæði og legu vegarins liggi fyrir eigi síðar en sem fyrst.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

4. Fyrirspurnir

Engar.

Fundi slitið kl. 17.20




Fundargerðir

Dag.grein
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
19.02.2003 Bæjarráð Hornafjarðar
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica