Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 57
57. fundur
Bæjarstjórn Hornafjarðar 57. fundur
FUNDARGERÐ Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 14. nóvember 2002, kl. 16:00 í Ekru.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Björn E. Traustason, Enar Karlsson, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig Inga Jóna Halldórsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 184. fundur fimmtudaginn 10. október 2002.
· Æskulýðs- og tómstundaráð 43. fundur 23. september 2002.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 185. fundur fimmtudaginn 17. október 2002.
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 39. fundur 10. október 2002.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 80. fundur 8. október 2002.
· Menningarmálanefnda Hornafjarðar 40. fundur 9. október 2002.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 32. fundur 14. október 2002.
Kristín lýsti áhyggjum vegna fyrirhugaðrar fækkunar stöðugilda hjá lögreglunni á Hornafirði úr fjórum í þrjú og skoraði á sýslumann að gera allt sem í hans valdi stendur til að halda núverandi fjölda stöðugilda. Bæjarstjóri sagði að beðið væri upplýsinga úr dómsmálaráðuneyti um málið og verði það tekið til umfjöllunar í bæjarstjórn þegar þær liggja fyrir. Hann sagði bæjarstjórn hafa komið alvöru málsins á framfæri við alla hlutaðeigandi aðila sem bera ábyrgð á málinu.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 186. fundur fimmtudaginn 24. október 2002.
· Almannavarnanefnd Hornafjarðar 21. fundur 17. október 2002.
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 3. fundur 21. október 2002.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 78. fundur 10. september 2002.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 44. fundur 21. október 2002.
· Skólanefnd Hornafjarðar 43. fundur 16. október 2002.
· Launanefnd sveitarfélaga og Félags leikskólakennara 4. október 2002 til kynningar.
Kristín spurði hvort starfshópur sem skipaður var til að fylgja eftir „Stefnu Hornafjarðar í atvinnumálum“ hafi verið kallaður saman. Bæjarstjóri sagði að starfsmaður atvinnumálanefndar Inga Jóna myndi kalla nefndina saman fljótlega.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 187. fundur þriðjudaginn 29. október 2002.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 188. fundur þriðjudaginn 5. nóvember 2002.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 81. fundur 22. október 2002.
· Æskulýðs og tómstundaráð Hornafjarðar 44. fundur 28. október 2002.
· Starfshópur vegna björgunaræfingar 28. október 2002 til kynningar
· Heilbrigðisnefnd Austurlands 32. fundur 9. október 2002 til kynningar.
· Launanefnd sveitarfélaga 16. október 2002 til kynningar.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarstjórn Hornafjarðar 56. fundur 10. október 2002, fundargerð áður samþykkt.
2. Ákvörðun um álagningarprósentu og gjaldskrár fyrir árið 2003
Bæjarstjóri fór yfir eftirfarandi tillögur að álagningareglum og gjaldskrám fyrir árið 2003 :
Útsvar (samþykkt í bæjarráði 29/10 sl.) 13,03%
Fasteignaskattur á íbúðahúsnæði 0,43%
Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæi 1,50%
Lóðaleiga (kr/m2)
Íbúðarhúsnæði 3,50
Iðnaðarlóðir 7,00
Verslunar- og aðrar atv.lóðir (geymslul) 10,50
Holræsagjöld (af fasteignamati) 0,30%
Vatnsgjöld (af fasteignamati) 0,18%
Sorphreinsigjald kr/einingu 9.600
Sorpurðunargjald kr/einingu 4.700
Hundaleyfisgjöld: Skráning, trygging og hreinsun 6.600
Leikskólagjöld hækka um 10% 1. janúar 2003
Mötuneytisgjöld hækka um 10% 1. janúar 2003 Sundlaugargjöld hækka um 10% 1. janúar 2003
Tónskólagjöld hækka um 10% 1. september 2003
Halldóra sagði ekki ljúft að hækka álögur í sveitarfélaginu en að aukning skatttekna sveitarfélagsins dugi ekki til að mæta auknum kröfum um þjónustu. Halldóra sagði einnig ljóst að á meðan tekjustofnar séu ekki fullnýttir þá skerði það framlög jöfnunarsjóðs til sveitarfélagsins.
Kristín sagði að gera eigi kröfu til ríkisvaldsins um að sveitarfélögin fái auknar tekjur til að standa undir lögbundnum verkefnum. Núverandi ástand sé óviðunandi og í andstöðu við byggðastefnu ríkisstjórnarinnar.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða ofangreinda tillögu um álagningarprósentur og gjaldskrár.
3. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2002
Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði og upplýsti um helstu breytingar og niðurstöður. Töluverðar breytingar verða á fjárhagsáætlun 2002 nú við endurskoðun. Tekjur aukast um 34,4 milljónir og gjöld aukast um svipaða upphæð. Hér er ekki tekið tillit til hærri byggingarkostnaðar vegna Nýheima en gert var ráð fyrir. Lokauppgjör vegna byggingarinnar liggur ekki fyrir og verður það tekið fyrir í fjárhagsáætlunargerð 2003. Helstu breytingar eru:
Tekjur
· Staðgreiðsla skatta hækkar um 32 milljónir króna
· Fasteignaskattur er lækkaður um 2 milljónir króna
· Jöfnunarsjóðsframlög hækkuð um 4,4 millnónir króna Útgjaldaliðir
· Launabreytingar 14,5 milljón króna · Jarðhitaleit 3,5 milljón króna
· Hlutabréfakaup 3,8 milljón króna
· Viðbótarframlag í lífeyrissjóð 1,2 milljón króna
· Lækkun á gjaldskrá leikskóla 3,1 milljón króna
· Upplýsingamiðstöð 1,5 milljón króna
· Endurskoðun og uppgjör 1,0 milljón króna
· Kaup á líkamsræktartækjum 2,5 milljón króna
· Annað 3,3 milljón króna
Ekki er lagt til að breyta áætlunum um framkvæmdir né skerða þjónustu. Bæjarstjóri lagði til að áætlunin verði samþykkt eins og hún liggur fyrir.
Bæjarstjórn samþykkti tillöguna samhljóða.
4. Erindisbréf nefnda
Lögð voru fram drög að nýjum erindisbréfum fastanefnda sveitarfélagsins, atvinnumálanefndar, byggingar- og skipulagsnefndar, félagsmálaráðs, hafnarstjórnar, heilbrigðis- og öldrunarráðs, húsnæðisnefndar, menningarmálanefndar, skólanefndar, umhverfisnefndar og æskulýðs- og tómstundaráðs. Einnig drög að erindisbréfi almannavarnarnefndar Hornafjarðar.
Bæjarstjóri fór lauslega yfir uppbyggingu erindisbréfanna en þar er kveðið á um skipan nefndanna, hlutverk, starfshætti, eftirfylgni, réttindi og skyldur nefndarmanna og helstu lög og reglugerðir sem stuðst er við í hverjum málaflokki.
Bæjarstjórn samþykkir fram lögð erindisbréf með öllum greiddum atkvæðum.
5. Yfirlýsing um kjarnorkuvopnalaust sveitarfélag
Elín fór yfir forsögu málsins og þá afgreiðslu sem það hlaut á 47. fundi bæjarstjórnar.
Kristín sagði 88 af 105 sveitarfélögum landsins hafa undirritað yfirlýsingu um kjarnorkuvopnalaust sveitarfélag og telur að Sveitarfélagið Hornafjörður eigi að gera slíkt hið sama til að sína samstöðu í þeirri alheimsbaráttu gegn kjarnorkuvopnum sem nú á sér stað. Kristín lagði fram eftirfarandi tillögu: Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir að Sveitarfélagið Hornafjörður verði yfirlýst kjarnorkuvopnalaust sveitarfélag.
Björn Traustason lagði fram eftirfarandi frávísunartillögu: Sama tillaga um kjarnorkuvopnalaust sveitarfélag var tekin fyrir á 47. fundi bæjarstjórnar Hornfjarðar 7. febrúar 2001. Þar fékk málefnið eðlilega málsferð, var afgreitt og tillagan felld. Með tilliti til þessa legg ég til að málinu verði vísað frá.
Forseti bar upp frávísunartillöguna. Bæjarstjórn samþykkir frávísunartillöguna með 5 atkvæðum, 1 greiddi atkvæði gegn og 1 sat hjá.
6. Fyrirspurnir
Engar
Fundi slitið kl. 17:15


