Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 101
101. fundur
Fundur haldinn í Ekru þriðjudaginn 30. maí 2006 kl. 16:00.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, forseti, Einar Karlsson, Björn E. Traustason, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir, Ólafur Sigurðsson og Kristín G. Gestsdóttir.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir , Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 336. fundur, dags. 11. maí 2006.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 144. fundur, 2. maí 2006.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 78. fundur, 3. maí 2006.
· Æskulýðs- og tómstundaráð, 78. fundur, 3. maí 2006.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar, 67. fundur, 3. maí 2006.
· Heilbrigðisnefnd Austurlands 61. fundur 26. apríl 2006.
Elín Magnúsdóttir óskar eftir því að það verði greidd atkvæði um efni 5. liðar fundargerðarinnar og lagði fram eftirfarandi tillögu:
Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir að leikskólarnir Krakkakot og Lönguhólar verði hér eftir reknar sem tvær sjálfstæðar skólastofnanir fyrir eins til sex ára börn.
Kristín G. Gestsdóttir ræddi um 5 lið varðandi bréf starfsfólks leikskólanna um tvær sjálfstæðar stofnanir hún telur þetta sögulega stund þar sem meirihluti fráfarandi sveitarstjórnar er fallinn á síðasta fundi bæjarstjórnar. Kristín er fylgjandi því að þessir tveir leikskólar séu reknir sem tveir heilstæðir leikskólar. Einnig ræddi hún um 3 lið varðandi aukafjárveitingu til umf. Sindra og er hún ánægð með það.
Halldóra B. Jónsdóttir vill leiðrétta það að meirihlutinn féll ekki í kosningunum þar sem hann var skipaður 6 bæjarfulltrúum og misti einn. En ljóst væri að Framsóknarmenn ætluðu að leita eftir meirihlutasamstarfi við Samfylkinguna.
Einnig sagði hún að það væri á ábyrgð nýrra bæjarstjórnar að framfylgja skólastefnu og breyta skipulagi leikskólanna og lagði fram eftirfarandi bókun:
Við undirrtuð teljum ekki rétt að fráfarandi bæjarstjórn afgreiði jafn umdeilt mál og stjórnskipulag leikskóla er á sínum síðasta fundi, þar sem framkævmd skólastefnu er á ábyrgð nýrrar bæjarstjórnar og því eðlilegt að hún taki þessa ákvörðun. Því greiðum við atkvæði móti tillögunni. Sign: Einar Karlsson og Halldóra B. Jónsdóttir . Hún fagnar því að umf. Sindri hefur ráðið framkvæmdastjóra til að sjá um rekstur félagsins.
Elín Magnúsdóttir sagði að ekki væri verið að breyta stjórnun á leikskólunum heldur innra starfi skólanna. Kristín G. Gestsdóttir telur mikilvægt að þessi ákvörðun verði tekin sem fyrst.
Forseti bar upp framlagða tillögu. Bæjarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum og 2 á móti.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 337. fundur, dags. 18. maí 2006.
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 66. fundur 10. maí 2006.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 79. fundur 10. maí 2006.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 70. fundur 10. maí 2006.
· Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs 30. fundur 10. maí 2006.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 338. fundur, dags. 30. maí 2006 (fundargerð dreift á fundinum).
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 58. fundur, 15. maí 2006.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 145. fundur, dags. 16. maí 2006.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar, 78. fundur, dags. 17. maí 2006.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 16. fundur, dags. 17. maí 2006.
· Æskulýðs- og tómstundaráð, 79. fundur, dags. 22. maí 2006.
· Húsnæðisnefnd, 68. fundur, dags. 23. maí 2006.
· Skólanefnd, 82. fundur, dags. 24. maí 2006.
· Atvinnumálanefnd, 23. fundur, dags. 24. maí 2006.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 80. fundur, dags. 24. maí 2006.
Reynir Arnarson spurði hvort bæjarstjóri gæti upplýst um það nýjasta í jarðhitaleit
Hjalti Þór Vignisson sagði frá fundi með Rarik og landeigendum Miðfells varðandi jarðhitaleitina.
Fundargerð samþykkt.
Ósamþykkt fundargerð 98. fundar Bæjarstjórnar Hornafjarðar dags. 6. apríl 2006 til samþykktar.
Fundargerð Bæjarstjórnar Hornafjarðar 100. fundur dags. 11. maí 2006 áður samþykkt.
2. Ársreikningar 2005 ? síðari umræða
Hjalti Þór Vignisson upplýsti að þær athugasemdir sem koma fram í endurskoðunarskýrslu væru til athugurna og úr þeim yrði bætt sem fyrst.
Ársreikningar fyrir árið 2005 samþykktir með 6 atkvæðum, einn sat hjá. Forseti þakkaði starfsfólki sveitarfélagsins fyrir vinnu við ársreikninga.
3. Fyrirspurnir
Engar.
Kristín G. Gestsdóttir þakkar starfsfólki sveitarfélagsins fyrir samvinnunna á liðnu kjörtímabili og einnig þakkar hún bæjarfulltrúum fyrir samstarfið.
Halldóra B. Jónsdóttir þakkar bæjarfulltrúum og starfsmönnum sveitarfélagsins fyrir samstarfið á liðnu kjörtímabili.
Fundi slitið kl: 16:55


