Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 103
103. fundur
Vinnufundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 5. júlí 2006, kl. 10.00 í Ráðhúsi. Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson, forseti, Erna Gísladóttir, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Halldóra B. Jónsdóttir og Björk Pálsdóttir.
1. Vatnajökulsþjóðgarður
Tilefni vinnufundarins er fyrirhugaður fundur með fulltrúum umhverfisráðuneytis n.k. mánudag.
Þrír dagskrárliðir láu fyrir. Í fyrsta lagi störf ráðgjafarnefndar um Vatnajökulsþjóðgarð, í öðru lagi ósk um umsögn á makaskiptum í landi Flateyjar og í þriðja lagi aðsetur þjóðgarðsvarðar.
Umræður voru ekki bókaðar en útbúið minnisblað fyrir fund með fulltrúum umhverfisráðuneytisins, dags. 6. júlí 2006.
Fundi slitið kl. 12.35


