Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 119

119. fundur

Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn  9. ágúst 2007, kl. 16:00 í Ekru.

 

Mætt voru:  Árni Rúnar Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Björn Ingi Jónsson og Halldóra B. Jónsdóttir.  Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.  

 

Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.  

1.  Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar, 383. fundur, dags. 19. júní 2007.

·    Skólanefnd Hornafjarðar, 94. fundur 13. júní 2007.

·    Æskulýðs- og tómstundaráð, 89. fundur, 4. júní 2007.

Hjalti Þór Vignisson bað um orðið og bar upp eftirfarandi bókun:

Bæjarstjórn Hornafjarðar færir öllum þeim sem komu að 10. Unglingalandsmóti UMFÍ sem fram fór á Hornafirði um liðna helgi sínar bestu þakkir. Félagar í Ungmennasambandinu Úlfljóti, stjórn og starfsmenn Ungmennafélags Íslands, unglingalandsmótsnefnd, sjálfboðaliðar og starfsmenn sveitarfélagsins unnu bæði fyrir mótið og alla mótsdagana frábært starf sem vert er að hrósa og þakka fyrir. Þá ber að þakka sérstaklega gestum þeim sem komu á mótið. Þar fór saman prúðmennska og þakklæti. Íbúum sveitarfélagsins sem fjölmenntu á viðburði alla mótsdagana eru einnig færðar bestu þakkir fyrir þeirra þátt í að gera dagana 2. ? 6. ágúst 2007 að sannkallaðri hátíð.  

 

Elín ræddi fundargerð skólanefndar og spurði um ráðningu kennara. Einnig spurði hún um stöðuna varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja, sbr. fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs.  Hjalti greindi frá stöðunni í kennararáðningum sem að mestu er lokið. Þá greindi hann frá stöðunni í uppbyggingu íþróttamannvirkja. Samþykkt hafi verið tilboð í uppsteypu sundlaugar og að samningar við verktaka liggi fyrir á næstunni. Einnig ræddi hann byggingu knattspyrnuhúss. 

Fundargerð samþykkt samhljóða.

 

Bæjarráð Hornafjarðar, 384. fundur, dags. 25. júní 2007. Fundargerð samþykkt.

·        Ráðgjafarnefnd Vatnajökulsþjóðgarðs 1. fundur 31. maí 2007.

·        Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 78. fundur, 21. júní 2007.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

 

Bæjarráð Hornafjarðar 385. fundur, dags. 9. júlí 2007.

·        Félagsmálaráð Hornafjarðar, 166. fundur 26. júní 2007.

·        Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 93. fundur, 8. júní og 94. fundur, 26. júní 2007.

·        Nefnd um íþróttamannvirki 39. fundur, 26. júní 2007.

·        Byggingar- og skipulagsnefnd 78. fundur, 21. júní 2007.

·        Samband ísl. sveitarfélaga 744. fundur, 22. júní 2007.

Reynir ræddi niðurskurð á þorskkvóta og áhrif hans. Hann sagði niðurskurðinn hafa áhrif hjá okkur á Hornafirði sem annars staðar, bæði til sjós og lands auk þess sem þetta hefði áhrif á fjárhag sveitarfélagsins. Reynir ræddi bókun bæjarráðs og sagði hafna vinnu hér heima fyrir að mótvægisaðgerðum.

Hjalti tók undir með Reyni að niðurskurður á aflaheimildum valdi áhyggjum. Hann muni hafa mikil áhrif í sjávarbyggðum landsins. Takast þurfi á við þessar breytingar. Hjalti sagðist hafa mestar áhyggjur af smærri fyrirtækjum. Sagðist hann hafa rætt við ýmsa sem vinna í sjávarútvegi hér í sveitarfélaginu. Hjalti sagði okkur þurfa að herða róðurinn og auka fjölbreytni í atvinnulífinu, eftir því væri kallað af íbúum. Þá greindi hann frá ýmsum hugmyndum um eflingu stofnana þeirra sem eru í Nýheimum.  Í því sambandi nefndi hann framtíð Frumkvöðlaseturs Austurlands og Háskólaseturs.  Nefndi hann einnig rannsóknir á sviði loftslags- og jöklafræði sem og haf- og matvælarannsóknir á vegum Matís. Einnig greindi hann frá umræðum í atvinnumálanefnd þann 8. ágúst sl.

Sigurlaug þakkaði atvinnumálanefnd, einkum formanni hennar, sem og forstöðumanni Menningarmiðstöðvar fyrir atvinnulífssýninguna sem fram fór í Nýheimum.

Halldóra gerði að umtalsefni áhrif kvótaskerðingar í sjávarútvegi og tók undir fram komnar áhyggjur manna. Sagði skerðinguna einkum bitna illa á þeim sem eru með einhæfan rekstur. Þá ræddi hún mótvægisaðgerðir og lagði áherslu á samgöngubætur sem þátt í þeim, svo sem á endurbætur á flugvelli og jarðgöng undir Lónsheiði. Benti á að skert hefði verið starfsemi flugvallarins þar sem ekki væri hægt að fá þar tollafgreiðslu í millilandaflugi. Halldóra sagðist bjartsýn á að við fáum hingað höfuðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarð. Einnig gerði hún að umtalsefni eflingu starfsemi stofnana í Nýheimum sem hún taldi mjög mikilvæga. Þá benti hún á að ná mætti í verkefni til Siglingastofnunar, verkefni sem auðveldlega megi flytja hingað. Þá óskaði hún eftir upplýsingum um þá vinnu sem hafin er í ráðhúsinu um þessi mál.

Reynir tók undir orð Halldóru að bókun bæjarráðs hefði mátt vera ítarlegri. Hann sagði að um göng undir Lónsheiði væru allir sammál. Þá sagði hann að óskað hafi verið eftir fundi með starfsmönnum Siglingastofnunar þar sem ræddur yrði möguleika á flutningi starfa. Reynir sagði ekki hafna formlega vinnu í ráðhúsinu en menn vera farna að kasta fram ýmsum hugmyndum. Formlega vinna með aðkomu bæjarráðs muni hefjast fljótlega.

Hjalti greindi frá samstarfi sem verið hefur við Siglingastofnunar og möguleika á að flytja hingað ákv. starf. Þá sagði hann mikilvægt að hefja vinnu að umhverfisskýrslu vegna jarðganga undir Lónsheiði og vegalagningu tengda göngunum. Mikilvægt væri að hafa tilbúna umhverfisskýrslu vegna Lónsheiðarganga. Þá greindi Hjalti frá þeirri vinnu sem hafin er í ráðhúsi vegna mótvægisaðgerða.

 

Fundargerð samþykkt samhljóða.

 

Bæjarráð Hornafjarðar 386. fundur, dags. 23. júlí 2007.

·        Æskulýðs- og tómstundaráð 90. fundur 2007.

·        Umhverfisnefnd 68. fundur, 9. júlí  og umhverfisnefnd 69. fundur 16. júlí 2007.

Sigurlaug ræddi fund umhverfisnefndar um að efnt yrði til íbúaþings þar sem farið yrði yfir ýmis mál sem snerta umhverfi og skipulag á Höfn.  Þá ræddi hún umhverfisskýrslu og bókun byggingar- og skipulagsnefndar um vegstæði yfir Hornafjarðarfljót. Sagðist hún mjög hlynnt leið 3 og að mjög brýnt væri að niðurstaða liggi sem fyrst fyrir um væntanlegt vegstæði og spurði hvort eitthvað væri að frétta frá Vegagerðinni.

Hjalti sagði að starfsmenn Vegagerðarinnar væru að leggja lokahönd á þá vinnu, umhverfismat o. fl., sem er í þeirra höndum vegna vegstæðisins.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

 

Fundargerðir bæjarstjórnar Hornafjarðar, 117. fundar, 14. júní og 118. fundar 20. júní 2007 áður samþykktar.

 

2.      Samþykkt um hundahald

Hjalti fylgdi samþykktinni úr hlaði og lagði til að hún verði samþykkt af bæjarstjórn.

Forseti bar samþykkt um hundahald undir atkvæði og var hún samþykkt samhljóða með 7 greiddum atkvæðum.

3.      Samþykkt um kattahald

Hjalti fylgdi samþykktinni úr hlaði og lagði til að hún verði samþykkt af bæjarstjórn.

Forseti bar samþykkt um kattahald undir atkvæði og var hún samþykkt samhljóða með 7 greiddum atkvæðum.

4.      Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald

Hjalti fylgdi gjaldskránni úr hlaði. Sagði hann slíka gjaldskrá verða að byggja á rökstuddum kostnaði. Lagði til að gjaldskráin verði samþykkt af bæjarstjórn.

Varaforseti bar gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald undir atkvæði og var hún samþykkt samhljóða með 7 greiddum atkvæðum.

5.  Umhverfisskýrsla vegna vegalagningar yfir Hornafjarðarfljót send út í tölvupósti

Árni fór yfir umhverfisskýrslu þá sem unnin hafi verið. Sveitarfélaginu hafi borið skylda til að vinna skýrslu vegna umhverfismats áætlana. Skýrslan hafi verið unnin af Háskólasetri Hornafjarðar.  Árni gerði grein fyrir hverjir hafi fengið skýrsluna til umfjöllunar. Hann sagði nýjan veg vera mjög mikilvægan fyrir íbúa sveitarfélagsins einkum með styttingu vegalengda innan héraðs í huga. Þá las Árni upp niðurstöðu byggingar- og skipulagsnefndarvegna þessa þar sem nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að valið standi á milli leiðar 1 og 3. Með ákveðnum rökum kemst byggingar- og skipulagsnefnd að því að sé besti kosturinn, bæði með tilliti til öryggis vegfarenda og styttingu vegalengda innan héraðs sé að velja leið 3. Lagði Árni það til að umhverfisskýrslan verði samþykkt með þeim lokaorðum að leið 3 verði fyrir valinu.

Halldóra sagðist ekki hafa undir höndum endanlegt eintak af umhverfisskýrslunni, einungis drög frá því í júní. Óskaði hún eftir því að fá yfirlit yfir þær breytingar sem orðið hafa á skýrslunni. Lagði hún áherslu á að vanda þurfi til verka. Hún sagði hér liggja fyrir niðurstöðu byggingar- og skipulagsnefndar en bæjarstjórn þurfi að samþykkja umhverfisskýrsluna.

Hjalti greindi frá formasatriðum málsins og sagði að það sé ekki fyrr en aðalskipulagsbreyting verði samþykkt að umhverfisskýrslan fái endanlegt samþykki. Hjalti sagði engar efnislegar breytingar hafa orðið á skýrslunni.  Lagði hann áherslu á að skýrslan væri hér til umræðu og kynningar en ekki til endanlegrar samþykktar.

Halldóra sagði að bæjarstjórn Hornafjarðar bæri að láta vinna umhverfisskýrslu og lagði áherslu á að farið verði yfir þær breytingar sem gerðar hafa verið á skýrslunni.

Hjalti fór yfir þann farveg sem málið hefur verið í. Sagði málið hafa fengið eðlilegan framgang í stjórnkerfinu og nefndum þess.

Reynir sagðist hafa litið svo á að þetta plagg væri fullunnið og tilbúið til samþykktar. Sé svo ekki verði hægt að afgreiða skýrsluna endanlega um leið og breyting á aðalskipulagi verður tekin til afgreiðslu.

Björn Ingi lagði til að skýrslan verði ekki afgreidd endanlega á þessum fundi. Hún sé hér til kynningar.

Árni sagðist líta svo á að skýrslan hafi fengið góða umfjöllun í nefndum og meðal starfsmann. Hann lagði til að bæjarstjórn taki afstöðu til skýrslunnar þó að ekki verði hún samþykkt endanlega.

Halldóra lagði áherslu á að hún hefði engar efnislegar athugasemdir við skýrsluna og lýsti yfir ánægju með að fram sé komin tillaga um að skýrslan verði ekki afgreidd endanlega á fundinum. 

Hjalti sagði að vandað hafi verið til verka varðandi allan formlegan feril málsins og sagðist líta svo á að umræðan hér í bæjarstjórn væri hluti af ferli málsins.

Árni sagðist e.t.v. hafa verið of hvass þegar hann hvatti til að skýrslan verði samþykkt. Lagði hann til að eftirfarandi bókun verði samþykkt.

 

Í ljósi úrskurðar umhverfisráðuneytisins 11. maí 2007, í kæru Vegagerðarinnar vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar um matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum lagningar Hringvegar um Hornafjarðarfljót, sér Bæjarstjórn Hornafjarðar ekki ástæðu til þess að taka afstöðu til leiða 4 og 5 sem fjallað er um í Umhverfisskýrslunni.

 

Um þrjár leiðir er að ræða skv. tillögu Vegagerðarinnar. Bæjarstjórn Hornafjarðar er sammála um að leið 2 hafi umtalsverða ókosti í för með sér. Í fyrsta lagi hefur leiðin umtalsverð áhrif á landslag á austasta hluta leiðarinnar, þ.e. eftir að hún tekur land við Dilksnes. Þar er gert ráð fyrir að hún liggi í gegnum stór klapparholt sem geta talist einkennandi fyrir landslag á þessum slóðum. Ennfremur liggur hún yfir nær samfelldar sjávarfitjar á milli Árnaness og Dilksness. Þá liggur hún mun nær Árnanesbæjunum en leið 3. Á leið 2 um Skógey og á Mýrum liggur hún á votlendisgróðri. Bæjarstjórn Hornafjarðar hafnar því að leið 2 verði farin og lítur svo á að valið standi fyrst og fremst á milli leiðar 1 og leiðar 3.

 

Bæjarstjórn Hornafjarðar telur einnig einsýnt að leið 3 hafi minni áhrif á landslag en leið 2 auk þess að leið 3 sker jarðir landeigenda í sveitafélaginu minnst þeirra þriggja leiða sem í mati eru. Helsti munur á milli leiðanna felst í því að leið 3 liggur yfir Flóa í Skarðsfirði sem er á náttúruminjaskrá. Á hinn bóginn liggur leið 3 ekki í sama mæli yfir sjávarfitjar og leið 2. Einnig bendir flest til þess að leið 3 hafi ekki jafn mikil áhrif á landslag og leið 2. Þá er það einnig mat Bæjarstjórnar Hornafjarðar að jákvæð samfélagsleg áhrif yrðu mest fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð ef farin verður leið 3 vegna verulegra styttinga vegalengda innan sveitafélagsins.

 

Bæjarstjórn Hornafjarðar  þykir ljóst að leið 1 hafi minni áhrif á náttúrufar í för með sé en leiðir 2 og 3. Ákveðnir annmarkar eru þó á þeirri leið. Í fyrsta lagi liggur leiðin norðan í skeiðvelli Hestamannafélagsins Hornfirðings og sker sundur ræktunarlönd í Borgum, Akurnesi og Seljavöllum. Umhverfisáhrif leiðar 1 eru talin vera töluvert minni í Hornafirði, Skógey og á Mýrum en leiðir 2 og 3. Á móti kemur að sú leið styttir vegalengdir innan sveitafélagsins Hornafjarðar mun minna en leiðir 2 og 3. Munurinn er 4 km á leið 3 og leið 1 en að sama skapi 2,6 km á milli leiðar 1 og leiðar 2. Stytting vegalengda innan sveitafélagsins Hornafjarðar er grundvallaratriði að mati Bæjarstjórnar Hornafjarðar.. Sú umtalsverða stytting sem verður samfara því að fara leið 3 samanborið við að fara leið 1 er það mikil að Bæjarstjórn Hornafjarðar telur að almannahagsmunir liggi við.

 

Leiðir 2 og 3 hafa það báðar sammerkt að stór hluti Nesjasveitar liggur ekki lengur í alfaraleið. Bæjarstjórn Hornafjarðar telur það mikilvægt að merkingar og auglýsingar verði settar upp við gatnamót þjóðvegar og Hafnarvegar þar sem þjónusta í sveitafélaginu verði auglýst.

 

Það er því niðurstaða bæjarstjórnar Hornafjarðar að leið 3 í tillögum Vegagerðarinnar sé besti kosturinn af þeim leiðum sem hún leggur til að verði metnar í framkvæmdamati. Ekki síst vegna bætts umferðaröryggis sem og verulegra styttinga á vegalengdum innan sveitafélagsins sem leið 3 hefur í för með sér. Niðurstaða Bæjarstjórnar Hornafjarðar er því sú að leið 3 verði fyrir valinu.

 

Bókunin var samþykkt samhljóða með 7 greiddum atkvæðum.

 

6. Deiliskipulag á Leirusvæði

Reynir fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði og greindi frá vinnu og tillögum að skipulaginu.

Halldóra sagði ekki koma fram í fundarboði hvort hér sé um fyrri eða seinni umræðu að ræða. Þá óskaði hún eftir upplýsingum um kostnað vegna Leirusvæðis en hann átti að liggja fyrir þann 1. ágúst. Halldóra sagðist vera því fyllilega sammála að fara hafi þurft í vinnu að breyttu skipulagi á þessu svæði. Hún sagði allar lóðir vera mjög rúmar en spurði sig hvort fjölbreytni væri næg þar sem þarna væri fyrst og fremst um að ræða einbýlishúsalóðir. Hún óskaði upplýsinga um breytingar sem verða á nýtingarstuðlum samfara breyttu skipulagi.

Reynir sagði að skipulagsbreytingarnar fari í tvær umræður. Að þessari umræðu lokinni fari breytingarnar í lögformlegt kynningarferli.

Hjalti sagði að hér væri verið að samþykkja breytingar á gildandi skipulagi sem fari í kynningu og komi aftur til afgreiðslu í bæjarstjórn að því ferli loknu. Þá greindi hann frá vinnu að mati á kostnaði við umrætt svæði.  

Árni fór yfir málið og vinnu byggingar- og skipulagsnefndar. Lagði hann áherslu á þá umræðu í samfélaginu að hér vantaði lóðir, ekki síst stórar einbýlishúslóðir. Nú fari þessar tillögur í lögformlegt ferli sem verði tekið til afgreiðslu í bæjarstjórn með fram komnum athugasemdum. Hvatt hann alla sem áhuga hefðu á þessu máli að kynna sér það og koma með athugsemdir ef ástæða þætti til.  

Halldóra sagði að sér fyndist menn fljótir að fara í vörn og viðkvæma fyrir spurningum. Hún lagði áherslu á kostnað við nýtt byggingarsvæði. Þá spurði hún hvort rétt væri eins og fram kom í máli forseta að menn hefðu í huga að taka einnig annað byggingarsvæði til notkunar. Lagði Halldóra enn áherslu á fjölbreytnina og spurði hvort hér vantaði 30 lóðir fyrir einbýlishús. Hún sagðist ánægð með að þessi vinna skuli komin af stað og að lóðir á svæðinu væru mjög skemmtilegar. Halldóra sagði mjög dýrt að vera með opin byggingarsvæði.

Reynir sagði kostnaðinn vera ástæðu þess að þetta byggingarsvæði skuli enn ekki vera tilbúið til að byggja á. Hann sagðist vænta þess að hér væri komið svæði sem nota mætti. Lagði hann áherslu á að samstaða væri um málið í byggingar- og skipulagsnefnd og bæjarráði. Þar sem enn lægju ekki fyrir endanlegar kostnaðartölur væri ekki ástæða til að nefna einhverjar ágiskanir. Reynir sagði að þetta svæði verði ekki tilbúið á þessu ári.

Sigurlaug sagði fagnaðarefni ef þarna væru að myndast lóðir sem eftirspurn væru eftir. Sigurlaug sagði  nýtingarhlutfallið hafa verið 0,35 en verða 0,5 samkvæmt þeim gögnum sem hún hefði.

Hjalti sagði að ekki liggi endanlega fyrir hvert nýtingarhlutfallið verði. Tók hann undir með Halldóru að fjölbreytni þurfi að ríkja. Þegar kostnaður liggur fyrir verði hægt að taka endanlega ákvörðun um framgang málsins og hversu stórt svæði verði tekið undir í fyrstu

Forseti bar tillögu um deiliskipulag á Leirusvæði undir atkvæði og var hún samþykkt með  6 greiddum atkvæðum, einn sat hjá.

7. Fyrirspurnir

Engar.

Fundi slitið kl. 18.20

 




 


Fundargerðir

Dag.grein
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
19.02.2003 Bæjarráð Hornafjarðar
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica