Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarrstjórnar 134

134. fundur

Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, þriðjudaginn 16. september 2008, kl. 18:00 í Ráðhúsi.

 

Mætt voru:  Reynir Arnarson forseti bæjarstjórnar, Árni Rúnar Þorvaldsson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir,  Halldóra B. Jónsdóttir og Björk Pálsdóttir.  Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.         

 

Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
  

1.    Deiliskipulag knattleikjahúss.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir athugasemdum Skipulagsstofnunar sem kalla á minni háttar breytingar á deiliskipulagi umrædds svæðis og lagði fram nýjan uppdrátt unninn af Glámu – Kím 05.09.2008 ásamt breytingarlista dags. 05.09.2008: 

Halldóra B. Jónsdóttir spurðist fyrir um hversu stór lóð Víkurbraut nr. 5 var og hversu stór hún verði í kjölfar breytingarinnar og einnig spurðist hún fyrir um hvort byggingarreitur bjóði upp á stækkun á knatthúsinu í framtíðinni.  Hjalti gerði grein fyrir því að lóð nr. 5 við Víkurbraut hafi verið 3100 m² en verði 2655 m².  Einnig gerði hann grein fyrir því að ekki hafi verið gert ráð fyrir stækkun á húsinu þar sem það kallaði meðal annars á breyttar undirstöður.

Halldóra B. Jónsdóttir taldi að taka þyrfti fyrirhugaða veglínu milli Bugðuleiru og Bogaslóðar út af aðalskipulagi.  Jafnframt spurðist hún fyrir um meint sig á frjálsíþróttavelli og skýringar á siginu.  Í framhaldinu spurðist hún fyrir um grundun fyrirhugaðs knattleikjahúss og lýsti yfir áhyggjum af grundun hússins.  Hjalti tók undir áhyggjur af grundun knatthússins og gerði grein fyrir fyrirhugaðri grundun þess þar sem áætlað er að grafa niður að svokölluðu núllagi fyrir sökklum en fergja með yfirhæð fyrir gervigras.  Halldóra B. Jónsdóttir benti á að ráðgjöf grundunnar sundlaugar hafi ekki verið nægjanlega góð og taldi mikilvægt að gætt verði sérstaklega að grundun knattspyrnuhússins og benti á að grunda mætti húsið á staurum.  Reynir tók undir orð Halldóru.

 

Lögð fram eftirfarandi bókun:

“Við gerð deiliskipulagstillögu varð sú yfirsjón að ekki var tekið tillit til ákvarðana í aðalskipulagi, um að vegstæði sé áætlað milli Víkurbrautar og Bogaslóðar, og að mót Álaugarvegar og Víkurbrautar verði teygð yfir hluta lóðarinnar Víkurbrautar 5.

 

Til að leiðrétta þessa yfirsjón leggur Bæjarstjórn Hornafjarðar til að minniháttar breytingar verði gerðar á deiliskipulagstillögunni er snúa að legu göngustígs, trjágróðri á lóð, minnkun lóðar við Víkurbraut 5 og afmörkun deiliskipulagsreits að litlu leyti.  Bæjarstjórn leggur því til að:

 

?  Lega gangstígs norðan knatthúss verði breytt lítillega.

?  Trjágróðri við knatthús verði breytt og staðsetning hans verði ekki bindandi.

?  Afmörkun deiliskipulags verði breytt þannig að það verði sniðið neðan tengibrautar milli Bugðuleiru og Bogaslóðar sem gert er ráð fyrir í aðalskipulagi en er ekki áformuð nú um stundir.  Einnig var ramminn dreginn utan um alla lóð verkstæðishússins sem fellur niður.

? Lóð nr. 5 við Víkurbraut verði minnkuð til þess að verða megi af tilfærslu Víkurbrautar (stofnbraut) eins og gert er ráð fyrir í Aðalskipulagi.

 

Engar þær framkvæmdir sem heimilaðar eru / verða skv. umræddu deiliskipulagi hafa áhrif á áhrifasvæði fyrrgreindra vega, þó svo sú villa hafi verið gerð að deiliskipulagssvæði og lóðamörk hafi innlimað vegstæðin að hluta.

 

Lóðarhafar Víkurbrautar 5 fallast á  að mörkum lóðar þeirrar verði breytt. Það er hægt að gera svo að fullu sé vikið fyrir hugsanlegum vegalögnum skv. aðalskipulagi, án þess að hnika nokkru sem lýtur að eiginlegum framkvæmdum þeim sem deiliskipulagið fjallar um.  Af þeim sökum munu breytingarnar, sem hér eru lagðar til, hvorki breyta forsendum athugasemda íbúa í nágrenninu né svörum bæjarstjórnar við athugasemdunum.

 

Með þessu er ekki verið að taka ákvörðun um þær veglínur sem Skipulagsstofnun vísar til í athugasemdum dagsettum 3. september 2008 enda er ekki verið að fjalla um veglínurnar að öðru leyti en að bregðast við mistökum við gerð deiliskipulagsuppdráttar sem hefðu getað hindrað framgang þeirra í framtíðinni.  Með þessum breytingum er því lega þeirra tryggð ef ákveðið verður að leggja þessa vegi í framtíðinni.

 

Bæjarstjórn Hornafjarðar muna fara þess á leit að umræddir vegir verði endurskoðaðar í nýju aðalskipulagi en vinna við það stendur yfir.”

Í ljósi ábendinga Skipulagsstofnunar um útlit hússins mælir Bæjarstjórn Hornafjarðar með því að tekið verði fram við gerð útboðsgagna um knattspyrnuhús að húsið skuli hafa bogaþak og vera í ljósum lit.”

 

Framlagður breytingarlisti og bókun ásamt uppdrætti unnum af Glámu – Kím dagsettum 05.09.2008 borin upp til samþykkis.

Samþykkt samhljóða og starfmönnum falið að senda deiliskipulagstillöguna til Skipulagsstofnunar til samþykkis.
 

Fundi slitið kl. 18:40

 

 

 

 

 

 

 


Fundargerðir

Dag.grein
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
19.02.2003 Bæjarráð Hornafjarðar
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica