Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 152
152. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 4. mars 2010 kl. 16:00 í Nýheimum.
Mætt voru: Reynir Arnarson, forseti bæjarstjórnar, Árni Rúnar Þorvaldsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Elín Magnúsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Bæjarráð Hornafjarðar 492. fundur , 5. febrúar 2010.
Guðrún gerði að umtalsefni bókun sem hún lagði fram á fundi heilbrigðis- og öldrunarráðs um að byggt verði garðhýsi við HSSA. Lagði hún til að áfram verði unnið að því að hrinda þessu verki í framkvæmd.
Halldóra ræddi lið 2 í fundargerð bæjarráðs sem lýtur að malbikunarframkvæmdum sem rætt hefur verið um að fara í næsta sumar. Hún spurði um val á íbúðargötum vegna þessara framkvæmda. Þá benti hún á að hækka þurfi miðbæjarsvæðið ef malbika á þar. Lagði hún til að þetta verði gert áður en malbikað verður. Benti m.a. á mikinn halla á svæðinu sem geti verið hættulegur í hálku. Þá benti hún á að ýmsar gangstéttir væru afar lélegar og jafnvel hættulegar. Halldóra gerði að umtalsefni bækling sem vinna átti um þau þjónustuúrræði í félags- og heilbrigðismálum, hvernig þeirri vinnu liði.
Reynir tók undir orð Halldóru um miðbæjarsvæðið sem hann sagði ekki gott.
Hjalti tók undir orð Guðrúnar um garðhýsi. Þá fór hann yfir val á götum sem fyrirhugað er að malbika, hvað hafi þar legið til grundvallar. Sagði ákv. fagmenn hafa komið þar að verki og einnig að beðið verði með götur þar sem ekki hefur verið lögð hitaveita. Hann tók undir athugasemdir við miðbæjarsvæðið og sagði nauðsynlegt að þar verði samstarf við eigenda húsnæðis í miðbæ. Hann sagði efni þjónustubæklingsins komið í tölvu. Sagðist vona að hann komi út um páska.
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarráð Hornafjarðar 493. fundur , 15. febrúar 2010.
Hjalti fjallaði um lið 5 í fundargerð bæjarráðs, sameining sveitarfélaga. Sagði hann að ekki væri verið að ræða um að Sveitarfélagið Hornafjörður sameinist öðrum. Sagði hins vegar mikla umræðu vera um þessi mál á vegum ríkisins sem og umræða um flutning verkefna til sveitarfélaga og hvaða áhrif þau hafa. Við þurfum að taka þátt í þessari umræðu og halda vel á okkar málum í samskiptum við ráðuneyti og hugsanlega önnur sveitarfélög. Hér þurfi því að fara fram málefnaleg umræða um þennan mikilvæga þátt. Ræddi Hjalti ýmsa þætti sem taka þurfi til umræðu og vera meðvituð um þau. Benti á fyrirkomulag á öðrum svæðum og sérstöðu okkar. Önnur sveitarfélög væru með mikla samvinnu um ýmsa málaflokka á meðan við leystum sömu mál hér heima fyrir án formlegrar samvinnu
Halldóra ræddi sameiningu sveitarfélaga og mikla fækkun þeirra. Þeirri fækkun væri ekki lokið. Sagði hún að þessi mál þurfum við að ræða. Benti á þær miklu breytingar sem urðu á stjórnsýslunni með þeirri miklu sameiningu sem hér átti sér stað á síðasta áratug. Þessi mál þurfum við að skoða og það að fyrra bragði, ekki bíða eftir að við verðum að gera það. Við þurfum að vera opin fyrir þessari umræðu og sagði stærra sveitarfélag haf meiri slagkraft en minni. Þá ræddi hún fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar. Var ánægð með að nefndin hafi tekið til umræðu tillögu hennar að þungatakmarkanir á hluta Hafnarbrautar. Þá ræddi hún skipulagsmál, aðal- og deiliskipulag. Sagði vera orðið mjög brýnt að klára endurskoðun á aðalskipulagi. Það væri ekki gott að standa frammi fyrir því að taka eitt og eitt atriði út til að hefta ekki frelsi manna til athafna. Halldóra ræddi einnig viðhald á Hafnarbraut 30, sbr. 3. lið. Sagði að núvirðisreikna fyrirframgreiðslu sveitarfélagsins ef farið yrði í framkvæmdir.
Reynir sagðist vera með sömu sýn og kom fram hér áðan um sameiningarmál, við þurfum að fara í hana með opnum huga.
Árni tók undir að mikilvægt sé að ljúka vinnu við aðalskipulag sem fyrst. Árni ræddi sameiningarmálin og sagði mikilvægt að við tækjum frumkvæði í umræðunni. Þá tók hann undir orð Hjalta um að þessi mál verði rædd fyrir komandi kosningar og leitað eftir skoðunum íbúanna.
Hjalti þakkaði umræðu um sameiningu sveitarfélaga. Sagði það rétt hjá Halldóru að vera með frumkvæði í umræðunni og benti á flutning málefna máli sínu til stuðnings. Hann sagði að mjög róttækar hugmyndir um sameiningu sveitarfélaga væri á kreiki. Þá tók hann undir það að vinnu við aðalskipulag verði lokið. Sagði að orkumál og landnýting séu þættir sem þurfi einnig að taka með í vinnu við gerð aðalskipulag. Sagði hann að ræktanlegur jarðvegur geti orðið mjög dýrmætur til framtíðar litið. Þá ræddi hann hugsanlegan íbúakjarna í Öræfum. Taka þurfi það til umræðu við gerð aðalskipulags. Við umræðu um sameiningu sveitarfélaga sagði hann að við þurfum að vera með frumkvæði í því máli, ekki bíða eftir æðra stjórnvaldi eða öðrum. Þá skýrði hann hvers vegna viðhald við Hafnarbraut 30 hafi komið til tals.
Sigurlaug ræddi sameiningu sveitarfélaga og sagði að við þurfum að hafa þar frumkvæði. Þá sagði hún að við þyrftum að horfa vítt þegar litið er til hugsanlegra kosta í sameiningu. Hún fagnaði umræðu um aðalskipulag. Vinnan hafi gengið of hægt of við höfum ekki nálgast vinnuna með réttum hætti. Við þurfum að spyrja okkur hvert við viljum stefna. Þegar við vitum það getum við snúið okkur að sjálfri aðalskipulagsvinnunni. Þá benti hún á vinnu annarra sveitarfélaga við aðalskipulag og á hvern hátt við gætum tekið mið af þeirri vinnu.
Halldóra sagðist halda að Sveitarfélagið Hornafjörður hafa verið fyrst sveitarfélaga að klára aðalskipulag sveitarfélags sem nær yfir stórt svæði. Sagðist ekki geta tekið undir þau orð Sigurlaugar að ekki hafi verið horft til framtíðar við samþykkt aðalskipulags árið 2000 og benti á Almannaskarðsgöng máli sínu til stuðnings. Þá sagðist hún geta samþykkt að í núverandi vinna við aðalskipulag hafi ekki gengið sem skyldi. Hún sagði að óklárað aðalskipulag væri farið að há okkur.
Árni sagði að við þurfum að setja kraft í vinnu við aðalskipulag þó ekki klárist það á kjörtímabilinu. Þá fjallaði hann um sameiningu sveitarfélaga og tengingu þess við tilfærslu málaflokka frá ríki til sveitarfélaga. Hann sagði lykilatriðið vera hvernig við getum þjónað íbúum svæðisins sem best.
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarráð Hornafjarðar 494. fundur, 26. febrúar 2010.
Halldóra ræddi fundargerð 122. fundargerð skólanefndar og bókun meirihluta skólanefndar um að ráðinn verði nýr skólastjóri í stað þess sem sagt hefur upp störfum. Hún fór yfir þá fækkun sem orðið hefur á fjölda nemenda og fyrirsjáanlega fækkun. Einnig ræddi hún fjölda starfsmanna við grunnskólann.
Halldóra las upp eftirfarandi tillögu sem hún óskaði eftir að greidd verði atkvæði um:
Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir að stjórnunarfyrirkomulagi Grunnskóla Hornafjarðar verði breytt þannig að skipaður verði einn skólastjóri yfir skólann og einn aðstoðarskólastjóri. Það stjórnfyrirkomulag er í samræmi við ráðleggingar sérfræðings hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þegar skólastefnan var unnin. Stöðurnar verði auglýstar.
Nemendum hefur farið fækkandi undanfarin ár og næsta skólaár verða nemendur innan við 300 talsins samanlagt í Hafna- og Heppuskóla og mun að öllum líkindum fækka enn meir á allra næstu árum. Mikilvægt er að stofnanir sveitarfélagsins aðlagi sig að aðstæðum hverju sinni og breytingar taki mið af því að veita nemendum og fjölskyldum þeirra sem besta þjónustu.
Halldóra sagði að sparnaðurinn væri ekki aðalatriðið heldur það að yfir stofnuninni eigi að vera eitt höfuð. Sparnað um 1,5 millj. megi hins vegar vel nýta. Þá taldi hún stjórnendur alveg geta labbað á milli skólahúsa.
Hjalti fór yfir málið sagði að þetta væri í þriðja skipti sem stjórnfyrirkomulag grunnskólans væri til umræðu á yfirstandandi kjörtímabili. Sagði það ásamt fleiru sýna hve mikið hafi gerst í þessum málaflokki á yfirstandandi kjörtímabili. Þá ræddi hann þá hagræðingu sem skapast hafi við breytingu á skólahaldi. Þá benti hann á mikla fækkun stjórnenda og velti upp spurningunni hvort við höfum stigið of stórt skref. Hann sagði stoðkerfið og sérþjónustu vera kafla út af fyrir sig. Gerði hann grein fyrir helstu breytingum sem hafi orðið á stoðkerfinu. Skólastjórn og stoðkerfi þurfi að ræða sem aðskilin mál. Hann sagði það ákaflega brýnt að nemendur, foreldrar og kennarar hafi greiðan aðgang að skólastjóra. Því sagðist hann taka undir tillögu skólanefndar um stjórnfyrirkomulag sem segir að augljóst sé að skólastjóri þurfi að eiga síðasta orðið með margar ákvarðanir sem varða daglegt starf skólans, um samskipti við nemendur og foreldra þeirra auk þess að skipuleggja allt skólastarfið. Einn skólastjóri muni ekki anna því að hafa umsjón með daglegu skólahaldi í öðru skólahúsinu og jafnframt að hafa heildarumsjón með öllu skólahaldi. Það væri því rökrétt afleiðing af því að hafa einn skólastjóra að ráða þurfi tvo jafnháttsetta millistjórnendur yfir bæði skólahúsin. Þá fór Hjalti yfir heimild nýrra laga um breytilegt stjórnfyrirkomulag. Hann sagði einnig að mikið álag hafa verið á stjórnendur skólans.
Elín tók undir það að nemendum hafi fækkað og að það væri áhyggjuefni. Verkefnum fækki hins vegar ekki og ekki vandamálunum sem glíma þarf við.
Elín bar upp tillögu meirihluti bæjarstjórnar leggur til um að áfram verði sama fyrirkomulag á yfirstjórn Grunnskóla Hornafjarðar. Laus staða við skólann verði auglýst laus til umsóknar og vísað til bæjarráðs að hafa umsjón með ráðningu nýs skólastjóra í samráði við bæjarstjóra.
Halldóra sagðist ekki gera lítið úr vandamálum. Sagði hins vegar að með sterkum stjórnanda væri skólahaldið skilvirkara og hagkvæmara. Hún sagði ekki vera sama sem merki á milli fleiri stjórnenda og skilvirkni.
Tillaga Halldóru borin undir atkvæði. Einn greiddi atkvæði með tillögunni, fimm voru á móti
Tillaga meirihluta bæjarstjórnar borin undir atkvæði. Fimm greiddu atkvæði með tillögunni, einn var á móti
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarstjórn Hornafjarðar 151. fundur, 4. febrúar 2010, áður samþykkt.
2. Reglur sveitarfélagsins um fjárhagsaðstoð
Hjalti fór yfir reglurnar og sagði þær byggja að mestu leyti á reglum félagsmálaráðuneytisins um fjárhagsaðstoð. Þá fór hann yfir grein í fyrri reglum um sérstakan stuðning við námsmenn í framhaldsskólum sem hefur verið felld út í þeim reglum sem hér eru til umræðu.
Halldóra sagðist hafa tekið eftir að þessi grein um sérstakan stuðning við nemendur á framhaldsskólastigi væri horfin út úr núverandi reglum. Sagði hún það miður, þetta hafi verið henni mikið hjartans mál. Að hafa þetta ákvæði inni í reglum um fjárhagsaðstoð væri jafnréttismál. Þá lagði hún til að við 15. grein bætist eftirfarandi: Einstaklingar sem stunda nám á framhaldsskólastigi geta við sérstakar aðstæður sótt um styrk til framfærslu. Meðan framfærsla er veitt skulu einstaklingar skila gögnum um námsárangur.
Hjalti sagði félagsmálaráð ekki vera úrræðalaust þó að þessi viðbót sé ekki til staðar. Í reglunum væri ýmislegt sem heimilaði félagsmálaráði að aðstoða fólk í vanda. Almennu reglurnar eigi að tryggja það að viðkomandi eigi að geta fengið þann stuðning sem hann þarf á að halda.
Halldóra sagði að af orðum bæjarstjóra megi ráða að þetta ákvæði hafi ekki leitt til misnotkunar hér þó að slíkt kunni að hafa gerst í öðrum sveitarfélaga. Þá ræddi Halldóra viðmiðunarmörk um útfararstyrk upp á 160.000. kr. vera orðna ansi gamla.
Hjalti sagði þessar reglur hafa fengið mikla umfjöllun í félagsmálaráði. Lagði til að þær verði samþykktar og lítið mál að taka reglurnar upp aftur ef þörf krefði.
Tillaga Halldóru borin undir atkvæði, einn var samþykkur tillögunni og fimm greiddu atkvæði á móti.
Reglur sveitarfélagsins bornar undir atkvæði og þær samþykktar fimm atkvæðum einn sat hjá.
3. Samþykkt um búfjárhald í Sveitarfélaginu Hornafirði – fyrri umræða
Hjalti fór yfir málið og gerði grein fyrir því sem áður hefur verið fjallað um sauðfjárveikivarnarlínu við Hornafjarðarfljót og gerði grein fyrir þeim breytingum sem er takmörkun á flutningum, sleppingu og reksturs fjár yfir Hornafjarðarfljót.
Samþykkt að vísa samþykkt um búfjarhald til yfirferðar í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti og eftir það til annarrar umræðu í bæjarstjórn
4. Fyrirspurnir
Engar fyrirspurnir hafa borist.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18.10


