Bæjarstjórn

Fundargerð Bæjarstjórnar 67

67. fundur

Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 30. október 2003, kl. 16:00 í Ekru.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Björn E. Traustason, Einar Karlsson, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson og Kristín Gestsdóttir. Einnig Inga Jóna Halldórsdóttir, settur bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson, Stefán Ólafsson.

Gengið var til dagskrár.

1. Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar 224. fundur fimmtudaginn 2. október 2003
• Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 8. fundur 29. september 2003.
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 98. fundur 23. september 2003.
• Heilbrigðis- og öldrunarráð 44. fundur 24. september 2003.
• Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 53. fundur 22. september 2003
Kristín spurði um um uppbyggingu “klasa” í Fumkvöðlasetri og stöðu í læknamálum við HSSA. Einnig spurði hún um hvenær samningur við Orkuver rynni út en honum hefur verið sagt upp. Inga Jóna Halldórsdóttir, settur bæjarstjóri, sagði klasaverkefni byggja á því að skoða svæðið í heild með það í huga hvernig það geti sérhæft sig á þeim sviðum þar sem styrkleikinn er mestur. Sótt hefur verið um styrk vegna verkefnisins til Þróunarfélags Austurlands. Um læknamálin sagði Inga Jóna að erfitt gæti verið að ráða lækna nema ef hægt verði að bjóða sömu kjör og aðrar heilbrigðisstofnanir. Um málefni líkamsræktarstöðvar sagði hún að veturinn 2001 hefði verið lokað einu starfandi líkamsræktarstöðinni á Hornafirði vegna rekstrarerfiðleika, líkamsræktarstöð sem þá hafði verið starfrækt í 15 ár án aðkomu sveitarfélagsins. Mikil óánægja var með lokunina og talsverður þrýstingur á að sveitarfélagið kæmi á einhvern hátt að málum þannig að unnt yrði að halda rekstrinum áfram. Niðurstaða margra mánaða viðræðna og útboðs sem sent var til tveggja aðila sem sýnt höfðu áhuga á rekstri líkamsræktarstöðvar með aðkomu sveitarfélagsins var sú að keyptur var hluti af líkamsræktartækjum Orkuversins og þau síðan endurlánuð með því skilyrði að unglingar á aldrinum 15 – 20 ára fengju 50% afslátt af kortum.
Sumarið 2003 var síðan opnuð ný líkamsræktarstöð á Hornafirði, nokkuð sem engan hafði órað fyrir ári áður. Í ljósi breyttra aðstæðna hefur sveitarfélagið nú sagt upp samningi þeim sem gerður var við Orkuverið. Þegar Sveitarfélagið Hornafjörður gerði á sínum tíma samning um ákveðna aðkomu að rekstri líkamsæktarstöðvar var skýrt tekið fram í útboðsgögnum að aðeins yrði samið við einn aðila og að ekki væri að vænta sambærilegs stuðnings við aðra meðan sá samningur væri í gildi.
Í samningnum er kveðið á um 12 mánaða uppsagnarfrest og rennur hann því úr gildi í lok október 2004.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 225. fundur fimmtudaginn 9.október 2003
• Almannavarnarnefnd Hornafjarðar 24. fundur 1. október 2003.
• Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 53. fundur 30. september 2003.
Halldóra Bergljót fjallaði um hugmyndir um vinabæjarsamstarf við Sisimiut á Grænlandi. Gerði hún og grein fyrir aðstæðum í þessu samfélagi. Sagði hún Grænlendinga hafa annan áhuga á samstarfi en tíðkast í þeim vinabæjarsamskipum sem við þekkjum. Lögð væri áhersla á samstarf milli stofnana og fyrirtækja í sveitarfélögunum og nýtt sem mest sú tækni sem auðveldar mönnum samskipti.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 226. fundur fimmtudaginn 16. október 2003
• Byggingar- og skipulagsnefnd 47. fundur 9. október 2003.
• Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 49. fundur 6. október 2003.
• Umhverfisnefnd Hornafjarðar 38. fundur13. október 2003.
• Heilbrigðisnefnd Austurlands 41. fundur 7. október 2003 til kynningar.
• Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 706. fundur 19. september 2003 til kynningar.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 227. fundur fimmtudaginn 23. október 2003.
• Heilbrigðis- og öldrunarráð 45. fundur 16. október 2003.
• Menningarmálanefnd Hornafjarðar 50. fundur 15. október 2003.
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 99. fundur 14. október 2003.
• Skólanefnd Hornafjarðar 54. fundur 15. október 2003.
• Heilbrigðisnefnd Austurlands 42. fundur 16. október til kynningar.

Reynir gerði að umtalsefni halla á rekstri HSSA og lýsti yfir áhyggjum vegna stöðu stofnunarinnar.
Reynir ræddi um boð eiganda Akureyjar SF 52 til sveitarfélagsins um viðtöku og varðveislu skipsins. Reynir bar upp eftirfarandi tillögu:
Á tímum samdráttar og minnkandi tekna sveitarsjóðs er ekki verjandi að taka að sér verkefni af þessu tagi sem leitt gætu til verulegra útgjalda fyrir sveitarfélagið.
Bæjarstjórn Hornafjarðar telur sér því ekki fært að taka við Akurey SF 52 að gjöf.

Halldóra Bergljót gerði að umtalsefni minni háttar breytingar á aðalskipulagi sem teknar voru fyrir sem sérstakur liður á fundi bæjarráðs. Þá sagði hún nauðsynlegt að marka stefnu í skógræktarmálum ef hægt væri, hvar rækta skuli upp skóga og hvar ekki. Fjallaði hún og um málsmeðferð minni háttar breytinga á aðalskipulagi og benti á að með samþykkt fundargerðanna væri einnig verið að samþykkja umræddar minni háttar breytingar á aðalskipulagi. Einnig fjallaði hún um mikilvægi þess að vera með góðar áætlanir í frárennslismálum. Halldóra sagðist ekki taka þátt umræðum og atkvæðagreislu um tillögu Reynis og vék af fundi meðan fundargerðin var til umfjöllunar.
Kristín fjallaði um stöðu HSSA og benti á að halli á stofnuninni lenti að lokum á sveitarsjóði. Kristín sagðist sammála því að sveitarfélagið hefði ekki fjárhagslegt bolmagn til að leggja fé í endurbyggingu og varðveislu Akureyjar. Hins vegar gætu verið einstaklingar sem taka vildu verkefnið að sér. Þá fjallaði hún um stofnstyrki frá ríkinu til menningarhúss gegn sama framlagi frá sveitarfélaginu. Hvatti hún til þess að hugsað verði til framtíðar Sindrabæjar til lengri tíma þegar ákveðið verður hvernig fyrrgreindum framlögum verður varið. Framtíðin verði sú að félagsmiðstöð ungmenna fái annað húsnæði en Sindrabæ þó það verði ekki í bráð. Lagði hún áherslu á mikilvægi Sindrabæjar sem samkomuhúss þegar til lengri tíma er litið. Skýr framtíðarsýn um menningarhús þurfi að vera til staðar svo og framtíðarsýn um félagsmiðstöð fyrir unglinga.
Tillaga Reynis borin undir atkvæði og samþykkt með atkvæðum fjögurra bæjarfulltrúa, tveir sátu hjá og einn var fjarverandi atkvæðagreiðsluna.
Fundargerð samþykkt.

Bæjarstjórn Hornafjarðar 66. fundur fimmtudaginn 2. október 2003 áður samþykkt.

 

2. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2003

Bæjarstjóri fór yfir endurskoðaða fjárhagsáætlun.
Helstu breytingar á fjárhagsáætlun 2003 eru þær að skatttekjur í heild hækka um 1,1 milljón þegar tekið hefur verið tillit til breytinga á úthlutunarreglum Jöfnunarsjóðs. Heildarupphæð skatttekna er þá 674 milljónir.
Útgjöldin aukast hins vegar um 34,1 milljón en þar af eru tæpar 16 milljónir eignfærð fjárfesting. Heildarupphæð útgjalda er því 724,8 milljónir.

Samkvæmt endurskoðaðri fjárhagsáætlun ársins 2003 verður því A- hluti sveitarsjóðs rekinn með 50,8 milljón kr. halla. Þegar tekið hefur verið tillit til afskrifta eigna, 31,4 milljónir, og reiknaðra lífeyrisskuldbindinga, 13 milljónir, er peningalegt tap 6,4 milljónir.

Það er mikið áhyggjuefni að nú hefur sá viðsnúningur orðið frá fyrri árum að um raunlækkun á útsvarstekjum er að ræða þrátt fyrir að laun á almennum vinnumarkaði hafi hækkað um 3 %.

Ástæðurnar eru margþættar en nefna má :

• lækkun fiskverðs sem skerðir tekjur sjómanna verulega
• nokkur fólksfækkun hefur orðið fyrstu 9 mánuði ársins
• einkahlutafélagavæðingin sem Samband íslenskra sveitarfélaga áætlar að muni skerða tekjur sveitarfélaga í landinu öllu um u.þ.b. 1 milljarð

Samdráttur í tekjum samhliða því sem verkefni sveitarfélaga eru að aukast er eins og allir vita staðreynd sem blasir við stjórnendum sveitarfélaga í landinu. Það er brýnt að sveitarfélögin með Samband íslenskra sveitarfélaga í fararbroddi þrýsti á um að sveitarfélögin fá hærri hlutdeild í heildarskatttekjum þar sem þær tekjur sem þau hafa nú duga vart fyrir rekstri, hvað þá að standa undi afborgunum lána og eðlilegum framkvæmdum.

Þessi staða sveitarsjóðs kallar á að allir starfsmenn sveitarfélagsins leggist á eitt um að leita leiða til að draga úr kostnaði þótt svigrúm til þess sé ekki mikið.

Halldóra Bergljót sagði að haldið hafi verið vel við fjárhagsáætlun ársins 2003. Nú stefni í að hún standist ekki vegna þess fyrst og fremst að tekjur dragast saman. Fáist ekki leiðrétting á tekjustofnum stefni í frekari niðurskurð.
Kristín sagði ástandið alvarlegt og sagði mikilvægt að herja á ríkið um hærri hlutdeild í heildarskatttekjum. Ríkið þurfi að framfylgja boðaðri byggðastefnu. Þá fjallaði hún um auknar álögur á sveitarfélög sem ríkisvaldið hefur samþykkt.
Endurskoðuð fjárhagsáætlun borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með atkvæðum allra bæjarstjórnarmanna.

3. Fyrirspurnir

Engar.


Fundi slitið kl. 17:30


Fundargerðir

Dag.grein
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
19.02.2003 Bæjarráð Hornafjarðar
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica