Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 157
157. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 12. ágúst 2010, kl. 16.00 í Nýheimum.
Mætt voru: Reynir Arnarson, Ásgerður K. Gylfadóttir, Ásgrímur Ingólfsson, Kristján S. Guðnason, Björn Ingi Jónsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Bæjarráð Hornafjarðar, 505. fundur, 21. júní 2010.
Árni Ræddi 4. lið, uppgjör vegna byggingar reiðskemmu. Taldi hann mikilvægt að bæjarstjórn móti sér stefnu um aðkomu þess að verkefnum sem þessum. Þá taldi hann mikilvægt að sveitarfélagið geti fylgst með slíkum framkvæmdum frá byrjun. Árni ræddi samstarf sveitarfélagsins og Vatnajökulsþjóðgarðs, svo sem um rekstur jöklasýningar. Lýsti hann yfir ánægju með þetta samstarf. Árni ræddi vinnu við nýtt aðalskipulag og gerði að umtalsefni tillögu sem hann flutti í bæjarráð um það mál. Þá ræddi hann bréf Ríkisendurskoðunar vegna þjónustusamnings um rekstur HSSA. Lagði hann áherslu á að sveitarfélagið nýtti sér þessar ábendingar, m.a. í sambandi við nýjan þjónustusamning.
Reynir tók undir orð Árna um uppbyggingu mannvirkja á vegum félagasamtaka sem og að setja þurfi reglur um slík mál.
Hjalti tók undir orð Árna um reglur um aðkomu sveitarfélagsins að uppbyggingu mannvirkja félagasamtaka. Þá ræddi hann verkefni sem sveitarfélagið þyrfti að koma að við uppbyggingu á svæði hestamannafélagsins. Hann tók og undir orð Árna um samstarf við Vatnajökulsþjóðgarð og lagði m.a. áherslu á samstarf við landeigendur í því sambandi. Einnig ræddi hann verkefni sem þjóðgarðurinn þyrfti að fara í á svæðinu. Þá ræddi hann gerð verndaráætlunar sem væri mikið og vandasamt verk enda næði það yfir svæði sem tæki yfir um 13% af öllu Íslandi. Hann greindi og frá skoðunarferð inn í Hoffellsdal til að skoða þar aðstæður við vegarlagningu. Hjalti ræddi einnig endurskoðun á reikningum sveitarfélagsins og lýsti yfir ánægju með að endurskoðunarfyrirtækið KPMG væri að koma með skrifstofu til Hornafjarðar.
Árni lýsti yfir ánægju með endurskoðunarskrifstofu á svæðinu. Árni ræddi einnig tillögu sína um vinnu við aðalskipulag sveitarfélagsins. Lagði hann áherslu á samráð við íbúa og að það verði fyrr á ferlinum en gert var í fyrri vinnu við aðalskipulag.
Ásgrímur ræddi aðalskipulag. Sagðist sammála um að brýnt sé að hefja þá vinnu sem fyrst. Sagði hann að nýta megi þá vinnu sem þegar hefur verið unnin. Þá gerði hann grein fyrir næstu áföngum við vinnu að aðalskipulagi næstu tvö árin.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
· Bæjarráð Hornafjarðar, 506. fundur, 28. júní 2010.
Árni gerði að umtalsefni fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, m.a. stöðu félagsmiðstöðvar og hvar hún ætti að vistast. Benti hann m.a. á greinargerð sem unnin var á sl. kjörtímabili og skilaði niðurstöðum í janúar 2008. Vitnaði hann í greinargerð starfshópsins þar sem m.a. er lögð áhersla á aðskilnað skóla og félagsmiðstöðvar. Það hafi því vakið athygli hans að aðgerðaráætlun gerði ráð fyrir að félagsmiðstöð félli undir skólann. Vitnaði hann einnig til fundar bæjarráðs sem vísaði málinu til skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar. Árni ræddi einnig sérfræðiþjónustu í skólum og lagði áherslu á vandaðar ákvarðanir í þeim viðkvæma málaflokki. Þá las Árni upp eftirfarandi bókun:
Bæjarstjórn felur bæjarráði að gera úttekt á kostnaði nemenda og fjölskyldna þeirra við innkaup á skólavörum áður en kennsla hefst í Grunnskóla Hornarfjarðar í haust. Úttektin verði unnin í samráði við stjórnendur og starfsmenn grunnskólans og foreldraráð skólans. Í kjölfar úttektarinnar meti bæjarráð hvort ástæða er til að leita leiða til þess að lækka þennan kostnað.
Greinargerð
Í fréttum síðustu daga hafa komið fram áhyggjur ýmissa aðila um að margar fjölskyldur muni ekki hafa efni á að kaupa skólavörur fyrir börn sín í haust. Þetta er mikið áhyggjuefni enda er nauðsynlegt að upphaf skólans á haustin einkennist af tilhlökkun en ekki kvíða. Skólabyrjun fylgja alltaf árviss útgjöld fyrir barnafjölskyldur og ljóst að þau útgjöld geta reynst fjölskyldum í fjárhagsvandræðum erfið. Af þessum sökum er mikilvægt að bæjarráð geri sér grein fyrir þeim kostnaði sem fylgir skólabyrjun fyrir nemendur og fjölskyldur þeirra og meti í kjölfarið hvort ástæða sé til að reyna að lækka hann. Grunnskólinn verður settur þann 26. ágúst nk. þannig að ljóst er að niðurstaða af úttekt bæjarráðs fyrir þetta skólaár verður að liggja fyrir í vikunni 16. – 20. ágúst.
Ásgerður ræddi félagsmiðstöðina og gerði grein fyrir hugmyndum um hvar hún verði vistuð. Sagði hún að þetta mál verði rætt á næsta fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar og ákvörðun væntanlega tekin um málið þá. Hún tók undir orð Árna um að vanda þurfi ákvarðanir um sérfræðiþjónustu og lagði jafnframt áherslu á snemmtæka íhlutun.
Björn Ingi ræddi stjórnskipulega stöðu félagsmiðstöðvar og taldi eðlilegt að starfsmaður hennar verði undirmaður framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs.Lagði hann áherslu á sjálfstæði félagsmiðstöðvar og jafnframt að menn tali saman á milli stofnana. Þá gerði hann að umtalsefni eldhús í Lönguhólum og sagði merkilega stefnubreytingu hvað það mál varðar.
Björn Ingi las upp eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins vegna fyrirhugaðra framkvæmda við eldhús á leikskóla Lönguhóla sem fram kemur í 7. Lið 506. fundargerðar bæjarráðs.
Það verður að teljast undarleg ákvörðunartaka sem tekin er í lok 7. liðar í fundargerð bæjarráðs nr. 506 Með henni er ákveðið að fara í framkvæmdir á eldhúsi Lönguhóla. Sú kostnaðaráætlun sem lögð var fram við þessa umræðu var ekki fullnægjandi í henni voru liðir sem nú þegar er búið að samþykkja og þar með hluti af þeim framkvæmdum sem nú standa yfir.Það geta ekki talist vönduð vinnubrögð að taka ákvörðun út frá slíkum þessum gögnum . Ekki er ætlunin að gera lítið úr þörfinni fyrir lagfæringar. En nauðsynlegt er að unnin verði úttekt á skipan leikskólamála áður en ákvarðanir um frekari framkvæmdir verða teknar.
Reynir sagði að hann hafi alltaf talið mikilvægt að fara í lagfæringar á eldhúsi á Lönguhólum. Hann sagðist þó ekki hafa verið tilbúinn að fara í þær lagfæringar 2010, til þess hafi ekki verið grundvöllur. Hann hafi hins vegar verið tilbúinn að fara í þetta verkefni á næsta ári. Fara þurfi bæði yfir teikningar og kostnaðaráætlanir vegna þess verks. Þá sagði hann að meta megi þörf fyrir kennsluhúsnæði. Hins vegar verði ekki lagt niður eldhús í Lönguhólum.
Hjalti ræddi félagsmiðstöðina og stöðu hennar. Benti m.a. á að rætt hafi verið um að lítið samtal hafi verið á milli skóla og félagsmiðstöðvar. Hann sagði mikilvægt að félagsmiðstöð sé nýtt land fyrir nemendur, saga úr skólanum fylgdi þeim ekki. Þá greindi hann frá fleiri hugmyndum um skiplega stöðu félagsmiðstöðvar. Hjalti sagði mikilvægt að aðskilja umræður um skipulag leikskólamála og þeirrar nauðsynjar að lagfæra húsnæði skólanna og benti m.a. á nauðsynlegar gönguleiðir innan húss. Hjalti ræddi málefni kaþólska safnaðarins á Höfn, en honum tilheyra um hundrað manns. Koma þurfi til móts við þennan hóp. Þá ræddi hann útboð á kaffiteríu í Nýheimum og þá staðreynd að sá sem var með hana á leigu hafi sagt sig frá samningum. Sagði Hjalti mikilvægt að hafa kaffiteríu í Nýheimum. Lagði jafnframt áherslu á að gæta þurfi að samkeppnissjónarmiðum þegar ákvörðun er tekin um þau mál.
Árni ræddi málefni félagsmiðstöðvarinnar, stöðu hennar og hugsanlega eina yfirstjórn allra skólamála og þá um leið félagsmiðstöðvar.
Árni las upp eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar vegna 7. liðar í fundargerð 506. fundar bæjarráðs – Eldhús á leikskólanaum Lönguhólum
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar harmar þá ákvörðun meirihluta bæjarráðs að skuldbinda sveitarfélagið til framkvæmda í eldhúsi Leikskólans Lönguhóla á næsta fjárhagsári. Í aðgerðaáætlun, sem meirihlutinn kynnti á fyrsta fundi nýrrar skóla -, íþrótta – og tómstundanefndar, kemur m.a. fram um leikskólamál:
„Í leikskólamálum verður farið í vinnu í samráð við starfsfólk og foreldra að greina rekstrarumhverfi skólanna, viðhorf foreldra og starfsfólks til skipulagsins og ákvarðanir teknar á grundvelli þeirrar skoðunar“. Því má gera ráð fyrir töluverðum breytingum á skipulagi leikskólamála hjá sveitarfélaginu á kjörtímabilinu. Af þessum ástæðum telur bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar þessa ákvörðun meirihluta bæjarráðs ótímabæra og styður hana því ekki.
Árni ræddi bókun bæjarráðs um opinbera starfsemi, sagði að við þurfum að halda vöku okkar í þeim efnum.
Björn Ingi sagði alltaf spurningu hvort skuli gera á undan. Það geri sér allir grein fyrir þörf á endurbótum á húsnæði sveitarfélagsins. Hann sagði að fyrst þurfi að greina hvað gera á og síðan að samþykkja framkvæmdir. Benti hann m.a. á að samþykkt hafi verið að hafa viðbygginguna færanlega.
Reynir tók undir það að horfa þurfi til framtíðar. Menn telji sig sjá þörf fyrir eldhús í Lönguhólum til næstu framtíðar. Að hafa það eins og það er núna gangi ekki. Hvað verði gert og hvernig komi til nánari skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár.
Árni sagðist geta fallist á að lagfæra þurfi eldhús Lönguhóla en ekki að það sé ómögulegt.
Hjalti sagði að endurbætur á eldhúsi fari ekki yfir 10 milljónir og sennilega mun lægri. Ekki 10 – 20 milljónir eins og nefnt hafi verið.
Björn Ingi sagðist hafa vísað í gögn sem lögð hafi verið fram í bæjarráð, 12 millj. og 14 millj.
Tillaga bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar um úttekt á kostnaði nemenda og fjölskyldna þeirra við innkaup á skólavörum borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
· Bæjarráð Hornafjarðar, 507. fundur, 12. júlí 2010.
Hjalti ræddi málefni rekstraraðila og landeigenda við Jökulsárlón og gerð deiliskipulags á svæðinu. Þá vakti hann athygli á nokkrum málum í þessari fundargerð sem verði áfram til umfjöllunar.
Árni tók undir með Hjalta að mörg og stór mál hafi verið rædd á fundinum sem gæfi tóninn um þá vinnu sem fram undan væri. Hann ræddi erindisbréf nefnda og spurðist fyrir um stöðu þeirra. Árni ræddi menningarsamstarf við Austurland og ræddi hvar Hornfirðingar ættu heima í slíku samstarfi. Þá ræddi hann skipurit sveitarfélagsins og óskaði eftir upplýsingum um hvort kostnaðarmat lægi fyrir vegna hugmynda að breyttu skipulagi. Árni ræddi málefni Jökulsárlóns og mikilvægi þess fyrir alla ferðaþjónustu. Hér væri um að ræða ríka almannahagsmuni. Þá ræddi hann Jöfnunarsjóð og spurði hvernig breytingar kunni að koma út fyrir okkar sveitarfélag. Einnig ræddi hann fasteignamat og hækkun á því, sbr. fyrirspurn hans í bæjarráði. Þá vakti hann athygli á 13. lið fundargerðarinnar og sagði eitt framboð hafa gert grein fyrir sínum kostnaði vegna kosninga sl. vor.
Björn Ingi ræddi 8. lið fundargerðarinnar, málefni fræðaseturs Háskólans. Tryggja þurfi að starfsemi Nýheima verði ekki skert alvarlega, hana þurfi að verja með kjafti og klóm.
Ásgrímur ræddi 13. lið fundargerðarinnar, kostnað við framboð. Ræddi hann hvort nafngreina þurfi alla sem styrkja vilja framboðin, svo sem aðila sem eru að styrkja framboðin um 10 – 20 þús. krónur.
Árni ræddi tillögu sína um kostnað vegna framboða við kosningar sl. vor. Vitnaði hann í tillöguna og meðfylgjandi greinargerð.
Ásgrímur sagðist sammála Árna um að gefa upp kostnað við kosningar en sagðist hafa talið lögin duga, ekki þyrfti að teygja sig lengra en þau kveða á um.
Hjalti sagði erindisbréfin ættu að koma fyrir fund bæjarstjórnar í september. Hann taldi breytingar á stjórnsýslunni frekar leiða til lækkunar en hækkunar. Hann sagði Jöfnunarsjóð mikilvægan fyrir okkur. Sagði að verið væri að endurskoða reglur sjóðsins frá grunni, reglur sem væru mjög flóknar og ekki gegnsæjar. Greindi hann frá ýmsum breytingum sem fyrirhugaðar eru á sjóðnum.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
· Bæjarráð Hornafjarðar, 508. fundur, 3. ágúst 2010.
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum við starfsmann Umhverfisstofnunar vegna umræðna um fjölda hreindýra á svæði 9. Sagði hann það vera skoðun starfsmanna stofnunarinnar að dýrum hafi fækkað á svæði 9 en hann væri hins vegar nægur til að standa undir útgefnum veiðikvóta. Hjalti taldi brýnt að við höldum vöku okkar. Hann sagði Umhverfisstofnun koma til með að fylgjast betur með þessu svæði.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
· Bæjarstjórn Hornafjarðar 156. fundur,15. júní 2010, áður samþykkt.
2. Ráðningarbréf vegna endurskoðunar
Hjalti kynnti ferli samningagerðar við endurskoðunarfyrirtækið KPMG.
Samningurinn borinn undir atkvæði, samþykktur samhljóða.
3. Fyrirspurnir
Engar bárust.
Fundi slitið kl.18:25


