Stjórnsýslan

Reglur um félagslega heimaþjónustu

Heilbrigðisstofnun Suðausturlands

Reglur um félagslega heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði, samanber 30.gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og 13.gr.laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra.

1. grein
Markmið félagslegrar heimaþjónustu er að efla viðkomandi til sjálfsbjargar og gera honum kleift að búa sem lengst í heimahúsum við sem eðlilegastar aðstæður.


2. grein
Með félagslegri heimaþjónustu er átt við hvers konar heimilishald, persónulega umhirðu, félagslegan stuðning og umönnun barna og unglinga.

3. grein
Skilyrði til þess að geta fengið félagslega heimaþjónustu er að viðkomandi búi í heimahúsi og geti ekki séð hjálparlaust um heimilishald og persónulega umhirðu vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, álags, veikinda, barnsburðar eða fötlunar.

4. grein
Áður en heimaþjónusta er veitt, skal aðstoðarþörfin metin í hverju einstöku tilviki. Starfsmenn heimaþjónustudeildar HSSA sjá um að meta þörfina fyrir þjónustu og ákveða hvers konar þjónusta er nauðsynleg og hversu mikil hún skuli vera (vikulegar vinnustundir). Sé um heilsufarsástæður að ræða skal hafa samráð við heilsugæslustöð. Veita skal þjónustu sem viðkomandi eða aðrir heimilismenn geta ekki annast sjálfir. Heimilt er að óska eftir læknisvottorði.


5. grein
Heimaþjónusta skal að jafnaði veitt á dagvinnutíma frá mánudegi til föstudags. Þjónusta utan þess tíma (sbr 13.gr.laga nr.125/1999 um málefni aldraðra) skal einungis veitt ef fyrir liggur samþykki félagsmála- og barnaverndarnefndar að undangengnu mati á aðstoðarþörf sbr. 4.gr.

6. grein
Við framkvæmd félagslegrar heimaþjónustu skal haft sem nánast samstarf við aðra þá aðila sem veita viðkomandi skjólstæðingum þjónustu, s.s.starfsfólk á heilsugæslustöð.

7. grein
Sótt er um félagslega heimaþjónustu (á þar til gerðum umsóknareyðublöðum) til Heimaþjónustudeildar Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands (HSSA), sem veitir heimþjónustunni forstöðu.
Umsóknareyðublöð skulu liggja frammi í Ráðhúsi Hornafjarðar, afgreiðslu  heilsugæslunnar á Höfn og að hægt verði að nálgast það á heimasíðu HSSA á www.hornafjordur.is (Umsókn um heimaþjónustu )
Greiðslugeta umsækjanda og maka hans er lögð til grundvallar þjónustugjaldi og er heimilt að krefja umsækjanda um gögn varðandi fjárhag hans.

8. grein
Úrvinnsla umsókna, öflun gagna og upplýsinga varðandi þjónustuþörf og greiðslugetu skal unnin af Heimaþjónustudeild og framkvæmdastjóra HSSA í samvinnu og samráði við umsækjanda eftir því sem unnt er,
sbr. xvi. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.

9. grein
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands ræður allt starfsfólk til starfa við heimaþjónustu. Ekki er heimilt nema í undantekningartilfellum að ráða skyldmenni þjónustuþega til starfa við heimaþjónustuna. Heimaþjónustudeild HSSA skipuleggur þjónustuna og hefur á hendi verkstjórn starfsfólks. Bæjarskrifstofa Hornafjarðar sér um innheimtu þjónustugjalda mánaðarlega, eftir upplýsingum sem heimaþjónustudeild HSSA lætur í té eftir því sem við á.

10. grein
Starfsmaður í heimaþjónustu skal gæta þess í störfum sínum inni á heimili að unnið sé í samráði og samvinnu við þann sem þjónustunnar nýtur og hvetja hann og styðja til sjálfsbjargar.

11. grein
Starfsmönnum í heimaþjónustu er óheimilt að ræða persónulega hagi, heimilishald eða einkamál aðstoðarþega við óviðkomandi aðila.

12. grein
Fyrir félagslega heimaþjónustu samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 skal greitt samkvæmt gjaldskrá er Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar setur, að fengnum tillögum frá framkvæmdaráði HSSA.

13. grein
Umsækjandi um félagslega heimþjónustu getur skotið ákvörðun starfsmanns til Heilbrigðis- og öldrunarráðs Hornafjarðar.
Umsækjandi getur skotið ákvörðn Heilbrigðis- og öldrunarráðs Hornafjarðar til úrskurðarnefndar félagsþjónustu sbr. 65.grein laga nr. 40/1991.
Reglur þessar eru samþykktar af Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar þann 11. desember 2003 og staðfestar af Bæjarráði Hornafjarðar þann 18. desember 2003 og öðlast gildi 1. febrúar 2004.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica