Stjórnsýslan

Samþykkt um sorphirðu í Sveitarfélaginu Hornafirði.


1. gr.
Sveitarfélagið Hornafjörður annast rekstur sorphreinsunar og sorpförgunar í sveitarfélaginu og getur í því skyni ráðið til sín verktaka. Verktakar skulu hafa starfsleyfi útgefin af Heilbrigðisnefnd Austurlands eða Hollustuvernd ríkisins, eftir því sem við á, og hefur heilbrigðisnefnd eftirlit með starfseminni.
Sveitarfélagið annast, í samráði við Heilbrigðisnefnd Austurlands, útgáfu leiðbeiningar¬r¬ita um flokkun og aðra meðferð úrgangs, móttöku hans og förgun.

2. gr.
Eigendur alls húsnæðis, þar með talið atvinnuhúsnæði, sumarhús, stofnanir, mötuneyti, hótel, veitingastaðir o.fl., þar sem úrgangur fellur til, eru skyldugir til að fylgja ákvæðum samþykktar þessarar.
Sérhverjum húseiganda og umráðamanni húsnæðis (húsráðanda) er skylt að nota þær aðferðir og þau ílát við geymslu og meðferð úrgangs sem sveitarfélagið ákveður hverju sinni í samræmi við lög og reglur þar að lútandi.
Til að auðvelt sé að losa sorpílát þarf aðgengi þeirra að vera mjög rúmt. Sorpílát skal staðsett við hús eða aðkomu að húsi sem næst götu. Sorpgeymslur skulu vera aðgengilegar fyrir sorphreinsunarumenn allt árið. Húsráðendur skulu hreinsa snjó frá sorpílátum á veturna og halda greiðfærri leið að þeim.

3. gr.
Hvert heimili skal hafa eigið sorpílát og halda því hreinu og í góðu ástandi Auk þess skulu fyrirtæki og stofnanir hafa a.m.k. eitt ílát undir neysluúrgangi og skal það ílát tæmt af þeim aðila sem sér um sorphreinsun í sveitarfélaginu.
Með neysluúrgangi og heimilisúrgangi er átt við allan úrgang sem fellur til á heimilum, í eldhúsum og á kaffistofum fyrirtækja og stofnana.
Til heimilisúrgangs telst ekki rekstrarúrgangur frá stærri mötuneytum og veitingarekstri. Garðaúrgangur og grófur úrgangur telst ekki vera heimilisúrgangur.
Spilliefnum, lyfjum og öðrum hættulegum úrgangi skal skilað til spilliefnamóttöku (gámavallar) sem rekin er á vegum Sorpstöðvar Hafnar.

4. gr.
Sorphreinsun fer að jafnaði fram á 14 daga fresti. Á stórhátíðum verða aukahreinsanir eftir því sem við verður komið og þörf er á. Allan úrgang sem að mati húsráðenda þarf að losa örar en gert er ráð fyrir samkvæmt samþykktum þessum, skal húsráðandi sjálfur á eigin kostnað losa í flokkunarstöð eða í gáma á fyrirfram ákveðnum stöðum.

5. gr.
Bæjarstjórn Hornafjarðar er heimilt að leggja á sérstakt sorpgjald, þ.e. sorphreinsunar¬gjald og sorpeyðingargjald, samkvæmt gjaldskrá sem sett er á grundvelli 5. mgr. 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (með síðari breytingum) að fenginni umsögn heilbrigðisnefndar.
Sorpgjöld innheimtast fyrir hreinsun og förgun úrgangs frá heimilum og eldhúsum og kaffistofum fyrirtækja. Gjöld mega aldrei vera hærri en sem nemur rökstuddum kostnaði við veitta þjónustu eða framkvæmd eftirlits með einstökum þáttum.
Sveitarfélagið skal láta birta gjaldskrá í B- deild Stjórnartíðinda.


6. gr.
Hafi húsráðandi fram að færa kvörtun vegna sorphirðu, skal hann koma slíkri kvörtun til verktaka eða sveitarstjórnar. Enn fremur getur hann sent kvörtun beint til Heilbrigðisnefndar Austurlands.

7. gr.
Brjóti húsráðandi ákvæði samþykktar þessarar skulu sorphreinsunarmenn aðvara viðkomandi skriflega og óska úrbóta af hans hálfu. Sinni húsráðandi ekki aðvörunum skulu sorphreinsunsarmenn koma kvörtunum á framfæri við stjórn sveitarfélagsins eða verktaka sem senda málið til Heilbrigðisnefndar Austurlands til ákvörðunar.

8. gr.
Heilbrigðisnefnd Austurlands fer með eftirlit með framkvæmd samþykktar þessarar og fer um það samkvæmt lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir.

9. gr.
Með brot á reglugerð þessari skal farið samkvæmt 33. og 34. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum.

10. gr.
Heilbrigðisnefnd Austurlands fer með eftirlit með framkvæmd samþykktar þessarar og fer um það samkvæmt lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Samþykkt í Bæjarstjórn Hornafjarðar 10. febrúar 2000
að afloknum tveimur umræðum og umfjöllun um
athugasemdir Heilbrigðisnefndar Austurlands og umhverfisráðuneytisins.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica