Stjórnsýslan

Reglugerð fyrir Þróunar- og endurmenntunarsjóður Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Reglugerð

1. Í stjórn Þróunar- og endurmenntunarsjóðs sitja bæjarstjóri og framkvæmdastjórar sviða. Þeim til ráðuneytis eru forstöðumenn stofnana sveitarfélagsins. Umsjón með sjóðnum og samþykktum hans hefur framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs.

2. Allir fastir starfsmenn Sveitarfélagsins Hornafjarðar eiga rétt á að sækja um styrk úr sjóðnum. Einnig eiga forstöðumenn stofnana rétt á að sækja um styrki til námskeiðahalds.

3. Markmið sjóðsins er að koma til móts við starfsmenn vegna kostnaðar af námi sem beinlínis er við það miðað að þeir geti tileinkað sér framfarir og tæknibreytingar á sínu sérsviði. Einnig að veita starfsmönnum fjárhagslegan styrk til að sækja námskeið, sem gerir þeim mögulegt að taka að sér vandasamari störf og gera þá hæfari einstaklinga. Ef störf eru lögð niður vegna tækni- eða skipulagsbreytinga eiga starfsmenn kost á fjárhagslegum styrk til endurmenntunar sem geri þeim mögulegt að taka að sér önnur störf fyrir sveitarfélagið.

4. Umsóknir um styrki til námskeiða sem eru í samræmi við sí- og endurmenntunar-áætlanir stofnana sveitarfélagsins hafa forgang við úthlutun. Veita má styrki til náms eða námskeiða innanlands eða utan. Aðrar styrkumsóknir verða að hafa beina skírskotun til starfs umsækjanda. Að öllu jöfnu skulu þeir njóta forgangs til styrkjar sem ekki hafa hlotið styrk á síðustu tveimur árum.

5. Unnt er að sækja um styrk til sjóðsins tvisvar á ári, í febrúar og september. Auglýsa skal úthlutun og úthlutunarreglur á heimasíðu sveitarfélagsins. Sjóðsstjórn skal svara öllum styrkumsóknum skriflega.

6. Þeir sem æskja styrks úr sjóðnum skulu senda stjórn hans umsókn þar sem fram kemur lýsing á því námi eða námskeiði sem styrkurinn skal notaður til. Tilgreina skal fjárhæð styrks, hvenær ætlunin sé að nota hann og aðrar þær upplýsingar sem umsækjandi telur nauðsynlegar. Einnig skal umsækjandi taka fram hvort hann nýtur styrks eða afsláttar frá öðrum aðilum til sama náms og hversu mikils. Stjórn sjóðsins er heimilt að óska eftir frekari upplýsingum frá umsækjanda og/eða námskeiðshaldara. Á grundvelli umsóknar tekur sjóðsstjórnin ákvörðun um hvort og hversu háan styrk viðkomandi skuli fá. Heimilt er stjóðsstjórn að veita styrk vegna dvalar- og ferðakostnaðar. Umsókn skal berast á þar til gerðu eyðublaði.

7. Heimilt er sjóðsstjórn að veita styrki til námskeiða sem opnin eru öllum starfsmönnum sveitarfélagsins eða einstökum starfsmannahópum.

8. Styrkur má aldrei nema hærri fjárhæð en eftir stendur þegar tekið hefur verið tillit til annarra styrkja eða afslátta sem umsækjandi nýtur til sama náms, námskeiðs eða verkefnis. Verði styrkþegi uppvís að því að upplýsa ekki um aðra styrki eða afslætti getur sjóðsstjórn endurkrafið hann um mismuninn. Ljúki styrkþegi ekki námi sínu, námskeiði, rannsókn eða verkefni skal hann endurgreiða styrkinn nema veigamiklar ástæður komi til.

9. Styrkur er annaðhvort greiddur við framvísun reikninga eða gegn staðfestingu á námsframvindu.

10. Sjóðsstjórn skal halda nákvæma skrá yfir samþykktir sínar; þ.e. úthlutanir, styrkþega, styrkfjárhæð, nám, námskeið, rannsókn, verkefni eða annað sem máli skiptir. Sjóðsstjórnin gefur árlega út skýrslu um styrkveitingar ársins. Verði afgangur af fjármagni sjóðsins í lok almanaksárs skal það sem af gengur bætast við úthlutunarfé næsta árs.

Höfn í Hornafirði, 27. nóvember 2002

Albert Eymundsson, bæjarstjóri




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica