Reglur um könnun og meðferð einstakra barnaverndarmála eða málaflokka hjá starfsmanni félagsmálaráðs Hornafjarðar
I. Almennt
1.gr.
Reglur þessar eru settar skv. 3.mgr. 14. gr. Barnaverndarlaga nr. 80/2002
2. gr.
Starfsmaður félagsmálaráðs kannar og fer með einstök barnaverndarmál eða málaflokka í umboði nefndarinnar eftir reglum þessum og eftir frekari ákvörðun hennar hverju sinni.
Félagsmálaráð getur hvenær sem er gripið inn í aðgerðir starfsmanns og skal hann í störfum sínum framfylgja ákvörðunum nefndarinnar og fara að tilmælum hennar.
II. Um starfsmenn félagsmálaráðs
3. gr.
Starfsmaður barnaverndarnefndar, sem vinnur í barnaverndarmálum skal tryggja sér aðgang að viðeigandi sérþekkingu með öðrum hætti ef nauðsyn krefur. Einnig að veita foreldrum, stofnunum og öðrum er annast uppeldi viðhlítandi ráðgjöf, fræðslu og leiðbeiningar samkvæmt barnaverndarlögum.
4. gr.
Um vanhæfi starfsmanns til meðferðar einstakra mála gilda ákvæði stjórnsýslulaga.
5. gr.
Starfsmaður sem veit um ástæður er kunna að valda vanhæfi hans, skal án tafar gera formanni nefndarinnar grein fyrir þeim. Félagsmálaráð tekur síðan endanlega ákvörðun um hvort starfsmaður kemur að vinnslu málsins eða ekki. Sé starfsmaður vanhæfur til meðferðar máls má hann ekki taka þátt í undirbúningi, meðferð eða úrlausn þess. Honum er þó heimilt að gera þær ráðstafanir sem eru nauðsynlegar til að halda máli í réttu horfi þar til staðgengill kemur að málinu.
6. gr.
Starfsmanni ber í störfum sínum að vera óvilhallur og ber að vanda störf sín og gæta faglegra vinnubragða eins og best þykir. Starfsmaður skal sýna börnum, foreldrum og öðrum er tengjast máli nærgætni, er hann kannar og fer með mál og má ekki skýra óviðkomandi aðilum frá því er hann verður vísari í starfi sínu um einkahagi manna eða heimilisháttu.
III. Málsmeðferð starfsmanns
7. gr.
Starfsmaður skal taka á móti tilkynningum er varða óviðunandi aðbúnað barna. Skal hann gæta þess að skrá nákvæmlega efni tilkynninga og annað er máli kann að skipta.
Starfsmaður skal vekja athygli tilkynnanda á því að honum er heimilt að óska nafnleyndar gagnvart öðrum en barnaverndarnefnd. Ákvæði 2. mgr. um rétt til nafnleyndar á ekki við um tilkynnendur skv. 17. og 18. gr.
8.gr.
Starfsmaður hefur umboð til að framkvæma nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja öryggi barns, en skal hafa samráð við formann ef unnt er, sbr. 31.gr. barnaverndarlaga.
9. gr.
Nú fær starfsmaður rökstuddan grun um að aðbúnaði barns sé ábótavant, þannig að líkamlegri eða andlegri heilsu þess eða þroska geti verið hætta búin og skal hann þá án tafar, og eigi síðar en innan sjö daga frá því að tilkynning barst, kanna málið. Það sama gildir ef barn stefnir heilsu sinni eða þroska í hættu með hegðun sinni. Starfsmaður skal afla upplýsinga frá þeim, er um málið geta borið og frá þeim sérfræðingum sem við þykir eiga. Skal jafnan afla umsagnar skóla barns eða annarrar stofnunar þar sem barn dvelur, heimilisaðstæður kannaðar og rætt við foreldra eða forráðamenn. Starfsmaður skal að jafnaði greina foreldrum barns frá því að könnun á högum og aðbúnaði þess standi yfir.
10. gr.
Leiði könnun í ljós að aðbúnaði barns sé áfátt eða barn stefni heilsu sinni eða þroska í hættu með hegðun sinni, skal starfsmaður gera skriflega áætlun um meðferð máls.
Áætlun skal miða að því að bæta aðbúnað eða hegðun barns sem í hlut á og skal koma fram í áætlun hvaða úrræðum og aðgerðum skal beita í þeim tilgangi. Í áætlun skal jafnframt koma fram hvað foreldrum barns beri að gera í þessu skyni og hvaða aðstoð þau fá. Skal áætlun markaður ákveðinn tími. Áætlun skal eftir því sem við verður komið unnin í samráði við barn og foreldra.
11. gr.
Ef ekki tekst samvinna um áætlun skv. 10. grein., eða um alvarlegt barnaverndarmál er að ræða, skal málið lagt fyrir barnaverndarnefnd til frekari meðferðar. Leggi starfsmaður málið fyrir nefndina skal það gert með skriflegri greinargerð, þar sem fram komi ástæður fyrir íhlutun starfsmanns, atvik máls og annað er máli kann að skipta.
12. gr.
Áður en mál er lagt fyrir barnaverndarnefnd skal starfsmaður tilkynna foreldrum eða forráðamanni barns að málið verði lagt fyrir nefndina. Starfsmaður skal afhenda aðilum greinargerð og önnur gögn málsins. Starfsmaður getur ákveðið, telji hann það andstætt hagsmunum barns, að aðilar fái ekki, að svo stöddu, að kynna sér innihald tiltekinna gagna, þar til barnaverndarnefnd hefur tekið endanlega ákvörðun það að lútandi.
Starfsmaður skal án tafar og með sannanlegum hætti tilkynna viðkomandi aðilum um bókanir, ákvarðanir og úrskurði barnaverndarnefndar til kærunefndar barnaverndarmála, þegar þær eru fyrir hendi, kærufresti og hvert beina skuli kæru.
IV. Umsagnir vegna ágreinings um forsjá og umgengni
13.gr.
Óski dómsmálaráðuneyti, dómari eða sýslumaður, þegar við á eftir umsögn félagsmálaráðs áður en forsjár- eða umgengnismáli er ráðið til lykta, skal starfsmaður annast könnun málsins.
14. gr.
Könnun starfsmanns skal miða að því að upplýsa hvernig högum barns hefur verið háttað, aðstæður og möguleika foreldra til að annast barn, tengsl foreldra og barns og annað er máli kann að skipta. Eftir því sem ástæða þykir til skal forsaga foreldra könnuð. Starfsmaður skal kanna viðhorf barns eftir því sem það hefur þroska til. Starfsmaður getur aflað álits annarra sérfræðinga á einhverju því er að ofan greinir.
15. gr.
Að lokinni könnun skal starfsmaður gera skriflega greinargerð, þar sem fram kemur framkvæmd könnunar og helstu niðurstöður. Aðilum skal gefinn kostur á að koma á framfræri athugasemdum við framkvæmd könnunar, greinargerð starfsmanns og önnur gögn málsins. Þegar greinargerð starfsmanns og athugasemdir aðila liggja fyrir skal málið lagt fyrir félagsmálaráð. Starfsmaður skal vekja athygli aðila á rétti þeirra til að mæta á fund nefndarinnar og gera grein fyrir sjónarmiðum sínum.
16. gr.
Starfsmaður skal á öllum stigum máls leita sátta með aðilum eftir því sem best þykir henta hag og þörfum barns. Þá skal málið unnið í náinni samvinnu við aðra barnaverndarnefnd ef því er til að dreifa.
V. Aðrar umsagnir
17.gr.
Sé óskað umsagna vegna ættleiðinga, meðmæla um hæfi fósturforeldra eða meðmæla vegna sumardvala skal starfsmaður annast könnun málsins. Starfsmaður skal skrifa greinagerð sem lögð er fyrir félagsmálaráð. Afhenda skal aðilum greinargerð og gefa þeim kost á að gera athugasemdir munnlega eða skriflega. Aðilum skal jafnframt boðið að mæta á fund félagsmálaráðs til að gera frekari grein fyrir aðstæðum sínum eða sjónarmiðum.
VI. Gildistaka
18. gr.
Samþykkt í Félagsmálaráði Hornafjarðar þann 5. október 2004
Reglur þessar öðlast gildi við staðfestingu Bæjarstjórnar Hornafjarðar 27. október 2004


