Stefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar í æskulýðs,- íþrótta- og tómstundamálum
Horft til framtíðar
Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 2002 - 2010
Inngangur
Stefnumótun í æskulýðs-, íþrótta ? og tómstundamálum fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð greinir frá stöðu mála í dag. Út frá þeirri stöðu er litið til framtíðar og mótuð stefna þar sem reynt er að taka tillit til sem flestra þátta og um leið litið á sérstöðu sveitarfélagsins.
Undirbúningur við gerð stefnumótunarinnar hófst haustið 2001 og hafði hópur sem tilnefndur var af æskulýðs- og tómstundaráði forgöngu að vinnunni ásamt æskulýðs- og tómstundafulltrúa. Skipulögð vinna hófst í janúar 2002 þegar starfshópurinn kom saman. Í honum áttu sæti fulltrúar úr æskulýðs- og tómstundaráði, áhugafólk úr sveitarfélaginu sem komið hafði að þessum málum ásamt æskulýðs- og tómstundafulltrúa og framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs sem tók að sér að stýra vinnu á fundunum.
Fjórir fundir voru haldnir. Á tveimur fyrstu var farið yfir stöðu mála eins og hún er í málaflokknum í dag. Á þriðja fundi var farið á ?flug? en þá viðraði fundarfólk draumsýn sína. Fjórði fundurinn fór síðan í að komast að samkomulagi um raunhæfar tillögum. Þá var tekið til við eiginlega stefnumótunarvinnu sem fólst fyrst og fremst í umræðu og ritun þessarar skýrslu.
Í kjölfar sveitastjórnakosninga vorið 2002 þótti fulltrúum í fráfarandi æskulýðs- og tómstundaráði rétt að nýtt ráð lyki við gerð þessarar stefnumótunar. Í haust hafa fulltrúar í nýskipuðu æskulýðs- og tómstundaráði farið yfir stefnumótunina og samþykkt eftirfarandi útgáfu til umræðu í bæjarráði.
Þess má geta að æskulýðs- og tómstundamál eru alltaf í umræðunni og skoðanir manna misjafnar. Þessi stefnumótun einkennist ef til vill mest af því að ráðsfólk reyndi að sameinast um markmið sem raunhæf eru fyrir sveitarfélagið á næstu árum.
Markmið
Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar hefur eftirfarandi markmið:
? Að efla íþrótta- og tómstundastarf allra íbúa.
? Að efla andlegt og líkamlegt heilbrigði einstaklinga með því að stuðla að aukinni almennri hreyfingu og útivist.
? Leggja áherslu á að efla samvistir fjölskyldna á sviði íþrótta- og tómstundamála.
? Að uppeldismarkmið verði höfð að leiðarljósi í öllu íþrótta- og æskulýðsstarfi.
? Að íþróttir og tómstundir séu virkt forvarnaafl á Hornafirði
? Að efla forvarnir á Hornafirði, einkum fyrir börn og unglinga,
með áherslu á útivist, vímu- og tóbaksvarnir.
Til að æskulýðs- og tómstundaráð geti framfylgt markmiðum sínum og horft til framtíðar þarf það að bjóða upp á góða þjónustu og aðstöðu í íþrótta- og félagsmiðstöðvum. Ráðið þarf að vera leiðandi afl og hafa gott og náið samstarf við félög og klúbba með það í huga að auka fjölbreytni í starfi og þar með þjónustu við íbúana. Virkja þarf sem flesta íbúa til þátttöku í félags-, íþrótta- og tómstundastarfi. Bæta þarf aðgengi fatlaðra við íþróttamannvirki. Stefna skal að því að koma á samstarfi heilbrigðisþjónustu, íþróttafélaga, heimila og skóla. Hugað verði að uppbyggingu íþróttastarfs víðar en í þéttbýlinu.
Starfsmenn skulu ávallt hafa menntun og þekkingu til að sinna uppbyggingu félags- og tómstundastarfs á vegum sveitarfélagsins og vera ráðgefandi í þeim málum.
Leggja ber áherslu á að ráðinn verði starfsmaður íþróttafélaga sem að hluta til gæti verið kostaður af sveitarfélaginu og þannig styðji sveitarfélagið enn betur við íþrótta- og æskulýðsstarf.
Forsenda fyrir styrkveitingum er að í félögum séu starfandi stjórnir. Fyrir liggi markmið þeirra um uppeldislegt gildi íþrótta, aga, brottfall, stefnu í keppnisíþróttum, kynjahlutfall iðkenda og forvarnir.
Félögin skulu leitast við að ráða hæfa leiðbeinenda og þjálfara sem ávallt fari eftir stefnu viðkomandi félags. Félagasamtök sem sækja um styrk til ÆTH skulu senda skriflega greinargerð með umsókn sinni þar sem lögð er fram starfs - og fjárhagsáætlun ásamt reikningum hafi félagið hafið starfsemi.
Brýnt er að efla Ungmennasambandið Úlfljót sem forystuafl og sameiningartákn fyrir íþróttaiðkun í sveitarfélaginu.
Árlega skal gefa út kynningarbækling um það íþrótta-, félags-og tómstundastarf sem í boði er.
Æskulýðs- og tómstundaráð skal ávallt hafa fjárhags- og félagslega burði til að efla og styðja við áhugafélög sem vilja vinna að heilbrigðu og uppbyggilegu félagsstarfi í sveitarfélaginu.
Horft til framtíðar - tillögur
Huga þarf vel að staðsetningu íþróttamannvirkja. Mikilvægt er að þau myndi eina heild, séu í sem mestum tengslum við þær stofnanir sem nýta þær og hafi góða þjónustu og samnýtingu starfsfólks að leiðarljósi. Forgangsraða þarf framkvæmdum mannvirkja eftir þörf á þjónustu.
Í fyrstu skal leggja áherslu á uppbyggingu vallarsvæða á Sindravöllum.
Könnuð skal sameining íþróttafélaga á Hornafirði í samráði við félögin og Ungmennasambandið Úlfljót með það að markmiði að gera starfið skilvirkara og einfaldara.
Sindravellir, miðsvæðið og íþróttahúsið á Höfn
Stefn verði að uppbyggingu á svæðinu með eftirfarandi hætti:
? Samliggjandi grassvæði sem uppfyllir öll skilyrði fyrir löglegan keppnisvöll. Að auki verði rúmgott grassvæði til æfinga og þannig frá öllu svæðinu gengið að þar megi halda mót yngri aldurshópa á nokkrum keppnisvöllum.
? Aðstaða til iðkunar frjálsra íþrótta, einkum fyrir yngri aldurshópa. Með það í huga verði á svæðinu 110 metra hlaupabraut, stökkgryfjur og kasthringir. Gera skal ráð fyrir að þar sé hægt að merkja 400 metra hlaupabraut. Með þessu móti er mögulegt að leggja stund á æfingar og iðkun frjálsra íþrótta á Sindravöllum.
? Í tengslum við núverandi íþróttahús er lagt til að byggð verði samstæð íþróttamannvirki. Í einni heild verði þannig 25 metra sundlaug með rennibrautum og heitum pottum, gervigrasvöllur (35 x 50 m) með léttri yfirbyggingu og tengibyggingu sem hýsi anddyri og búningsklefa fyrir öll íþróttamannvirki á svæðinu. Með þessu móti skapast aukið svigrúm fyrir fjölskylduna til að stunda íþróttir og líkamsrækt á sama tíma og þannig ýtt undir fjölskylduvænt samfélag. Auk þess skapast hagræðing í rekstri.
? Lagt verði nýtt gólf á núverandi íþróttasal en að öðru leyti standi hann að mestu óbreyttur.
? Lokið verði við gerð áhorfendastúku við íþróttavöll og um leið hugað að samspili skólalóðar og íþróttavalla.
? Aðstaða fyrir línuskauta og hjólabretti verði í tengslum við skólalóðir ásamt öðrum jaðaríþróttum.
? Vallarhús fyrir svæðið verði byggt, annaðhvort áfast við önnur mannvirki eða standi eitt og sér.
? Bílastæði verði færð austur fyrir Víkurbraut á svæðið undir Fiskhólnum.
Við hönnun og framkvæmdir skal gera ráð fyrir að hægt sé að áfangaskipta hluta þeirra. Áhersla er lögð á að aðstaða fyrir skóla- og almenningsíþróttir fari saman á svæðinu.
Íþróttahúsið í Nesjum og Mánavöllur
Íþróttahúsið þjóni áfram íþróttakennslu í Nesjaskóla og íþróttastarfi Umf. Mána auk annarra íþrótta- og félagsstarfsemi.
Á Mánavelli verði frjálsíþróttaðstöðu viðhaldið og hún byggð upp. Þar verði áfram æfingasvæði og varavöllur fyrir knattspyrnu.
Aðrir vellir og útivistar-og íþróttaaðstaða í sveitarfélaginu
Völlur við Holt á Mýrum
? Þar verði grassvæði með mörkum.
Völlur við Hrollaugsstaði
? Þar er góður grasvöllur þó ekki löglegur til knattspyrnukeppni. Þar komi malbikaður boltavöllur.
Völlur við Hofgarð
? Þar er góður grasvöllur með mörkum þó ekki löglegur til knattspyrnukeppni. Einnig er þar leiksvæði með tækjum.
? Þar komi malbikaður boltavöllur.
Silfurnesvöllur (golfvöllur)
? Ákveðið hefur verið að endurbyggja og stækka völlinn verulega en hann er eftir sem áður 9 holur. Þar verði einnig æfingasvæði og púttvöllur.
Sparkvellir
? Völlum í íbúðahverfum á Höfn verði fjölgað og þeim vel við haldið.
? Huga vel að öryggi marka á þessum völlum og færa þau til reglulega.
Útivistar- og leikaðstaða í sveitarfélaginu
? göngustígar
? reiðbrautir
? spark- og leiksvæði við leik- og grunnskóla
Ýmis æskulýðsstarfsemi
Félagsmiðstöðin Þrykkjan starfi allt árið með meiri áherslu á útivist yfir sumarið. Ráða þarf fastan starfsmann að miðstöðinni sem sér um að halda utan um starfið og útvíkka það.
Hafa þarf starfið skemmtilegt og fjölbreytt og umfram allt að þeir sem sækja miðstöðina séu hafðir með í ráðum um starfsemina.
Könnuð verði þörf fyrir aðstöðu 16-25 ára ungmenna, svonefnt ungmennahús.
Skátafélagið Frumbyggjar er starfandi um þessar mundir. Starfsemina þarf að festa í sessi með því að ?ala upp? leiðtoga og áhugasama starfsmenn. Það sama má segja um Unglingadeildina Brand sem starfar með mismiklum krafti.
Forgangsröðun framkvæmda
Ljúka uppbyggingu á Sindravöllum með grassvæðum og gervigrasvelli
Brýnt er að flýta þessum framkvæmdum þar sem æfingasvæði er lélegt, keppnisvöllur illa farinn og svæðið allt í niðurníðslu. Gerður verði gervigrasvöllur með það í huga að byggt verði yfir hann og framkvæmdinni áfangaskipt. Skólarnir geta notað hann til íþróttakennslu og knd. Sindra flutt þangað æfingar úr íþróttahúsi. Ljóst er að slíkt mannvirki mundi létta mikið á notkun íþróttahússins og nýtast allt árið
Vatnagarður verði byggður við íþróttahús Hafnar með það í huga að hægt verði að samnýta búnings- og baðaðstöðu
Sundlaugin verði 8,5 m. x 25,0 m. ásamt heitum pottum, setlaugum, rennibrautum og saunabaði. Haft verði í huga við hönnun hennar að hægt verði að skipta sundlaugarkerinu þannig að hluti þess verði yfirbyggður og hægt að nota sem kennslulaug á vetrum. Hinn hlutinn yrði útilaug og opinn samhliða kennslunni. Sundlaugin er eins og allir vita barn síns tíma og löngu orðin úrelt. Því er mikilvægt að byrja á henni en íþróttahúsið þarfnast mikils viðhalds og er því nauðsynlegt að huga þar fljótlega að gagngerum endurbótum. Bað- og búningsaðstaða ásamt afgreiðslu verði byggð við sundlaugina með það í huga að sú aðstaða verði samnýtt með íþróttahúsi.
Húsnæði fyrir félagsmiðstöð unglinga
Starfsemi félagsmiðstöðvarinnar þarf að vera í húsnæði sem önnur starfsemi truflar ekki. Þar þarf að halda úti tómstunda- og félagsstarfi hjá ungu fólki ásamt ýmiskonar ráðgjöf. Miða skal við að húsnæðið þjóni fyrst og fremst starfsemi ungs fólks. Það þarf að vera að grunnfleti a.m.k. 300 m2 vel búið húsgögnum og tækjum fyrir leik og störf. Samstarf við gunnskólana verði í skipulagi og starfi.
Skautaiðkun
Bæta skal aðstöðu til skautaiðkunar, fyrst og fremst með því að fylla tjörn á miðsvæði þegar veður eru hagstæð og huga að uppbyggingu á skautasvelli.
Stefnt skal að því að leggja reiðhjóla- og skokkbraut milli Hafnar og Nesja
Reglulegt og aukið viðhald verði áfram á þeim reiðhjóla-, reið ? og göngustígum sem þegar eru komnir.
Kanna möguleika á siglingasvæði innan fjarðar
Kanna möguleika á skíðasvæði innan sýslunnar
Félagsheimili í dreifbýli
Samnýting félagsheimila í dreifbýlinu verði áfram eins og verið hefur en þau hýsa skóla-, félags- og íþróttastarf. Þarna er um að ræða félagsheimilin í Holti á Mýrum, Hrollaugsstaði í Suðursveit og Hofgarð í Öræfum.
Mat á æskulýðs- og tómstundastarfi á Hornafirði
Æskulýðs- og tómstundaráð leggur áherslu á að æskulýðs- og tómstundastarfsemi sé metin reglulega. Til þess leggur það til að nokkrar lykiltölur verði athugaðar reglulega, t.d. einu sinni á ári. Matið skal vera í höndum starfsmanns ÆTH.
Lykiltölur
? iðkendafjölda í öllum greinum íþrótta
? kynjahlutfall
? aldursdreifing
? menntun þjálfara og endurmenntun
? hvað er í boði
? þátttaka barna og ungmenna í félagsstarfi (aldur, kynjahlutfall).
? forvarnir, kanna reglulega notkun tóbaks, áfengis, eiturlyfja ofl.
? virkni hins almenna íbúa í íþróttum og félagsstarfi
Lokaorð
Með þessum drögum að stefnumótun í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum á Hornafirði er staðan metin og horft til framtíðar.
Segja má að framboð sé þokkalegt í dag en betur má ef duga skal. Aukin fjölbreytni hefur orðið á síðustu árum á hvers kyns afþreyingu hjá ungum sem öldnum enda gerir fólk sífellt meiri kröfur um að komið sé til móts við það á þessu sviði. Meiri samkeppni ríkir á milli sveitarfélaga um að bjóða fram og auka hvers kyns þjónustu til að gera búsetu og ferðamennsku í sveitarfélögum eftirsóknarverða. Með þessum drögum að stefnumótun viljum við gera Hornafjörð samkeppnishæfari við önnur sveitarfélög en nú er.
(Fylgiskjal 1)
Mannvirki og starfsemi sem sveitarfélagið rekur
Íþróttamiðstöð Hornafjarðar
? Íþróttahúsið Höfn
Starfsemi: skólaíþróttir, íþróttatímar deilda Sindra og skemmtanir.
? Íþrótta- og félagsheimilið Mánagarður
Starfsemi: skólaíþróttir, frjálsir íþróttatímar, íþróttatímar Mána, skemmtanir og félagsstarf.
? Sundlaug Hafnar
Starfsemi: skóla- og almenningssund og sundæfingar.
? Sindravellir
Starfsemi: knattspyrnu- og frjálsíþróttaiðkun, leikjanámskeið, keppnisvöllur.
? Mánavöllur
Starfsemi: frjálsíþrótta- og knattspyrnuiðkun , varakeppnisvöllur fyrir knattspyrnu en aðalkeppnisvöllur í frjálsum.
Stöðugildi við íþróttamiðstöð eru 6,5.
Félagsmiðstöðin Þrykkjan í Sindrabæ
? Félagsstarf fyrir börn og unglinga
? Opið hús
? Klúbbar
? Skemmtanir
? Ferðalög
Stöðugildi 1.
Íþrótta- og tómstundafélög á Hornafirði
Félagasamtök sem hafa notið styrks frá ÆTH
Hestamannafélagið Hornfirðingur
? Félagsheimili (ekki fullgert).
? Keppnisvöllur.
? Tamningagerði.
? Reiðskóli (börn og unglingar).
ÆTH veitir hestamannafélaginu styrk vegna barna- og unglingastarfs.
Ungmennafélagið Sindri
? Knattspyrnudeild
? Fimleikadeild
? Frjálsíþróttadeild
? Sunddeild
? Körfuknattleiksdeild
? Blakdeild
? Leikjanámskeið
Samstarfssamningur er í gildi milli Sindra og sveitarfélagsins um íþrótta-, barna - og unglingastarf og aðra þætti.
Ungmennafélagið Máni
Veittur starfsstyrkur undanfarin ár.
? Frjálsar íþróttir
? Leikjanámskeið
Ungmennafélagið Valur
Hefur ekki sótt um styrk undanfarin ár.
? Íþrótta- og félagsstarf
Ungmennafélagið Vísir
Hefur ekki sótt um styrk.
? Íþrótta- og félagsstarf
Ungmennafélag Öræfa
Hefur ekki sótt um styrk.
? Íþrótta- og félagsstarf
Skátafélagið Frumbyggjar
Styrkur vegna landsmótsferðar 2002
? Skátastarf
? Útivist
? Ferðalög
Dansklúbburinn Taktur
Fengið styrks vegna starfsins.
Stangveiðifélag Hornafjarðar
Styrkur vegna Veiðidags fjölskyldunnar.
Golfklúbbur Hornafjarðar
Tíu ára framkvæmda - og starfssamningur er milli sveitarfélagsins og Golfklúbbs Hornafjarðar. Gerður síðla árs 2001.
? 9 holu golfvöllur á Silfurnesi á Höfn
? Golfskáli (félagsheimili og áhaldageymsla)
? Barna- og unglingastarf
? Golfkennsla fyrir hópa og einstaklinga
Önnur félög og stofnanir sem koma að félags-og æskulýðsstarfi í sveitarfélaginu en njóta ekki styrks frá ÆTH.
Björgunarfélag Hornafjarðar
? Félagshús með veitingaaðstöðu og áhalda- og tækjageymslu
? Björgunarsveit
? Unglingastarf / ungliðadeildin Brandur
Slysavarnadeildin Framtíðin
? Félagshús, sameign með Björgunarfélaginu
? Starfar í nánu samstarfi við Björgunarfélagið
? Fjáröflun og ýmis önnur starfsemi
Björgunarsveitin Kári Öræfum
? Björgunarsveit
? Áhalda ? og tækjahús
Bridgefélag Hornafjarðar
? Spilakvöld
? Mót
Skotfélag Hornafjarðar
? Skotæfingar
? Vantar æfingasvæði
Félagsstarf eldri borgara
? Íþrótta-, tómstunda- og útivistarstarfsemi með leiðbeinendum
? Aðstaða í félagsmiðstöðinni Ekrunni og afnot af Þrykkjunni, íþróttahúsum og sundlaug
? Púttvöllur
Ferðafélag Austur-Skaftafellssýslu
? Gönguferðir, stuttar og langar, léttar og erfiðar
Stofnanir sem koma að barna- og unglingastarfi í sveitarfélaginu
Menningarmiðstöð Hornafjarðar
? Sumar- og vetrarstarf fyrir börn og unglinga
? Skoðunarferðir, fornleifaskráning, námskeið og sögustundir
Leikfélag Hornafjarðar og önnur leiklistarstarfsemi
Vinnuskóli Hornafjarðar
? Vinnuskóli sveitarfélagsins er starfræktur á sumrin
? Vinna, fræðsla, ferðalög, skólagarðar


