Stjórnsýslan
Stefna Hornafjarðar í upplýsingamálum
Samþykkt á fundi bæjarstjórnar 22. júlí 1999
Meginmarkmið upplýsingakerfis Hornafjarðar er að skapa gott aðgengi upplýsinga, bæði fyrir starfsmenn og kjörna fulltrúa sem og aðra bæjarbúa, einstaklinga, fyrirtæki og fjölmiðla. Stefnt er að aukinni framleiðni og skilvirkni í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Jafnframt skal gæta að hagkvæmni við öflun búnaðar og við rekstur.
Helstu atriði stefnumörkunarinnar eru eftirfarandi:
Vélbúnaður
- Stefnt er að öruggu og notendavænu samskiptaneti á rafrænu formi.
- Stefnt að því að vélbúnaður uppfylli þarfir hverrar stofnunar á hverjum tíma og sé það öflugur að hægt sé að keyra þau forrit sem nauðsynleg eru í sérhverri stofnun.
Hugbúnaður
- Stefnt er að öruggu tölvukerfi sveitarfélagsins. Öryggismarkmið kerfisins eru þau að réttar upplýsinginar skulu vera aðgengilegar réttum aðilum, á réttum tíma og á réttum stað.
- Stefnt er að því að hugbúnaður sé aðlagaður að þörfum Hornafjarðar og upplýsingatæknin verði nýtt til að auka skilvirkni sveitarfélagsins. Upplýsingatæknin skal m.a. byggja á hugbúnaði sem heldur utan um öll erindi og skjöl sem berast og verkefni sem unnin eru á vegum sveitarfélagsins, hugbúnaði sem tryggir virka og handhæga boðmiðlun milli aðila, algengasta ritvinnsluhugbúnaði, reiknilíkanahugbúnaði, bókhaldshugbúnaði og hinum ýmsa sértæka hugbúnaði einstakra stofnanna.
- Hugbúnaðar sá sem notaður er sé í eigu sveitarfélagsins og gerðir verði samningar við rétthafa þeirra um notkun hans.
Upplýsingaflæði ? innra
- Stefnt er að öruggu og öflugu upplýsingakerfi innan Hornafjarðar. Skilgreint verður aðgengi hverrar stofnunar, starfsmanna og kjörinna fulltrúa að upplýsingakerfinu, byggt á þörfum hvers og eins. Þá er stefnt að því að komið verði á fót miðlægu gagnasafni, sem tryggir samhæfða söfnun upplýsinga og kemur í veg fyrir tvíverknað.
Stefnt er að því að samskipti við kjörna fulltrúa verði á rafrænu formi og að þeir hafi aðgang að samskiptaneti Hornafjarðar.
Upplýsingaflæði ? ytra
- Stefnt er að því að upplýsingar á vef Hornafjaðar þjóni íbúum sveitarfélagsins. Þannig er stefnt að góðu aðgengi að heimasíðu þess og hún sýni í hnotskurn á hverjum tíma hvernig sveitarfélagið er uppbyggt og veiti upplýsingar um þá þjónustu sem það veitir. Litið er á Internetið sem framtíðarmiðil í samskiptum við íbúa og þannig stefnt að því að vefur sveitarfélagsins verði í auknu mæli nýttur sem þjónustuleið, sem og upplýsingaleið fyrir aðra utanaðkomandi aðila.
- Verði þörf fyrir sérstaka vefi fyrir stofnanir Hornafjarðar, er stefnt að því að slíkar heimasíður verði vistaðar undir vef Hornafjarðar og séu í samhengi og samræmi við þær upplýsingar sem eru á vefnum hverju sinni.
- Sem hluti af ytra upplýsingaflæði mun Hornafjörður nýta sér möguleika ljósvakamiðla, sem og annarra miðla eftir þörfum hverju sinni.
Þjálfun
- Lögð verður áhersla á góða þekkingu starfsmanna á upplýsingakerfi Hornafjarðar. Þannig verður skapað umhverfi sem gerir starfsfólki kleift að tileinka sér nýjungar í upplýsingatækni sem auki skilvirkni þess og áhuga.
Eftirfylgni
- Hornafjörður leggur áherslu á að vera framarlega í upplýsingamálum og fylgjast því vel með þróun tölvumála á hverjum tíma. Þannig mun bæjarfélagið aðlaga nýjungar að þörfum sínum, enda er litið svo á að skoðun upplýsingakerfa sé endalaus ferli.
Samþykkt í Bæjarstjórn Hornafjarðar,
22. júlí 1999


