Stjórnsýslan

Reglur um farandsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Samþykkt í Bæjarstjórn Hornafjarðar 12. desember 2002.

1. gr.

Öllum er heimilt að stunda farandsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði, enda fullnægi þeir skilyrðum laga nr. 28/1998 um verslunaratvinnu til að stunda slíka starfsemi og þeim skilyrðum sem sett eru í reglum þessum.



2. gr.

Aðili sem vill stunda farandsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði, skal tilkynna til sveitarfélagsins um komu sína með sannanlegum hætti með minnst einnar viku fyrirvara. Í tilkynningunni skal koma fram:

  • Nafn, kennitala, og VSK númer rekstraraðila.
  • Hvaða vörur viðkomandi hyggst selja. Hvar í sveitarfélaginu salan muni eiga sér stað.
  • Hvenær aðili hyggst halda úti versluninni.


Með tilkynningunni skulu fylgja öll nauðsynleg gögn, þar á meðal staðfesting á skráningu rekstraraðila í firma- eða hlutafélagaskrá, eintak nafnspjalds skv. 2. mgr. 5. gr. laga nr. 28/1998 og upplýsingar um fasta starfsstöð og prókúruhafa. Sveitarstjórn getur látið stöðva farandsölu, komi í ljós að upplýsingar um rekstraraðila standast ekki eða ranglega hefur verið greint frá því í tilkynningu, hvaða vörur selja á.



3. gr.

Haldin skal skrá yfir þá aðila sem tilkynnt hafa komu sína með farandsölu.

Sveitarfélagi er heimilt að synja aðila um leyfi til að stunda farandsölu á ákveðnum almennum viðurkenndum hátíðisdögum, svo sem frídegi verslunarmanna og helstu hátíðisdögum þjóðkirkjunnar. Synjunin skal vera skrifleg og rökstudd.



4. gr.

Að öllu jöfnu skulu engar húseignir í eigu eða umsjá Sveitarfélagsins Hornafjarðar leigðar eða lánaðar undir starfsemi, er tengist farandsölu, nema með sérstöku samþykki bæjarráðs.



5. gr.

Reglur þessar taka gildi við birtingu.





Samþykkt í Bæjarstjórn Hornafjarðar 12. desember 2002.





_______________________________

Albert Eymundsson bæjarstjóri


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica