Stjórnsýslan

Forvarnarstefna

Samþykkt á fundi bæjarstjórnar 4. mars 1999

Leitast verður við að forvarnastarfið nái til flestra þátta sem geta haft áhrif á heilbrigt líferni íbúanna.

Forvarnir ná til allra þátta hins daglega lífs í sveitarfélaginu. Þær byrja hjá fjölskyldunni og því er það grundvallaratriði að hún standi traustum fótum. Mikilvægar stofnanir sem að forvörnum koma eru skólar, félagsmálaráð, heilsugæsla, lögregla, kirkja, frjáls félagasamtök og vinnustaðir. Á milli þessara aðila þarf að ríkja traust og góð samstaða. Allir þeir sem sinna uppeldismálum með einum eða öðrum hætti þurfa að taka höndum saman um að skapa í sveitarfélaginu umhverfi sem elur af sér jákvæð og heilbrigð ungmenni.

Í því skyni að forvarnastarfið verði virkt verður lögð áhersla á að:
efla og styrkja fjölskylduna með því m.a. að stuðla að fræðslu um uppeldi til foreldra,

styðja við starfsemi frjálsra félagasamtaka sem sinna æskulýðsmálum,

efla uppeldis- og forvarnahlutverk íþróttafélaga,

félög sem sinna æskulýðsmálum og njóta styrkja frá sveitarfélaginu sinni forvörnum með ákveðnum hætti,

reka félagsmiðstöð ungs fólks með sem fjölbreyttustu sniði,

stuðla að fræðslu um forvarnir sem víðast í sveitarfélaginu, svo sem í skólum og á vinnustöðum,

foreldrafélög taki markvissan þátt í vinnu að forvörnum,

löggæsla verði efld,

lykilaðilar í vímuvörnum í sveitarfélaginu skilgreini hlutverk sitt í þeim og hvernig þeir hyggjast vinna,

verkefnið ?Ungt fólk í öndvegi ? verði öflugt fjárhagslegt bakland þeirra sem að forvörnum starfa,

leitað verði eftir því við stofnanir og fyrirtæki að þau leggi forvarnaverkefninu lið í formi aðgerða og fjárstuðnings eins og kostur er.

Sveitarfélagið Hornafjörður setur sér þau langtímamarkmið að grunnskólinn og félagsmiðstöð verði vímuefnalaus árið 2002. Unnið verði að því að gera sveitar-félagið laust við ólögleg fíkniefni á fyrsta aldarfjórðungi nýrrar aldar.

Til að vinna að forvörnum í sveitarfélaginu mun fyrst í stað starfa framkvæmdanefnd um vímuvarnir. Starfi hennar lýkur eftir samþykkt forvarnastefnu. Eftir það heyrir þessi málaflokkur undir æskulýðs- og tómstundaráð. Æskulýðs- og tómstundafulltrúi ber ábyrgð á framkvæmd forvarna í samvinnu við alla þá sem vinna að uppeldis-málum á vegum sveitarfélagsins.





 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica