Reglur um daggæslu í heimahúsum í Sveitarfélaginu Hornafirði
[PDF útgáfa]
I.Kafli
Leyfisveitingar
1.gr.
Félagsmálaráð Hornafjarðar veitir leyfi til daggæslu barna í heimahúsum. Með daggæslu er átt við átt við gæslu barna á tímabilinu frá kl. 7.00 til kl. 19.00 á virkum dögum.
2.gr.
Leyfi skal veitt í upphafi til eins árs reynslutíma, en eftir það til allt að fjögurra ára í senn. Leyfishafar skulu einir hafa heimild til að taka greiðslu fyrir daggæslu barna í heimahúsum.
3.gr.
Starfi tveir saman að daggæslu þurfa báðir aðilar að hafa leyfi til daggæslu frá félagsmálaráði.
4.gr.
Skilyrði fyrir leyfisveitingu samkvæmt reglum þessum eru:
-
Aldur
Umsækjendur mega ekki vera yngri en 20 ára þegar leyfi er veitt í fyrsta sinn. Dagforeldrar sem náð hafa 65 ára aldri fá leyfi endurnýjað til eins árs í senn.
-
NámskeiðSkilyrði fyrir veitingu leyfis er að umsækjandi hafi sótt námskeið um uppeldis-og öryggismál. Félagsmálaráði er heimilt að veita undanþágu hafi viðkomandi menntun á sviði uppeldismála.
-
LæknisvottorðUmsækjandi leyfis þarf að skila inn læknisvottorði sem skal staðfesta að umsækjandi hafi ekki neinn sjúkdóm eða áfengis-og vímefnavandamál sem hindrað getur viðkomandi í að annast börn. Læknisvottorð skal einnig liggja fyrir vegna annarra heimilismanna.
-
Umsögn/meðmæliUmsögn síðasta vinnuveitanda eða meðmæli tveggja ábyrgra aðila þess efnis að umsækjandi sé hæfur til þess að taka að sér daggæslu.
-
Daggæsla í fjöleignarhúsiFari daggæsla fram í fjöleignarhúsi skal liggja fyrir samþykki annarra eigenda samkvæmt lögum um fjöleignarhús.
-
Daggæsla í leiguhúsnæðiFari daggæsla fram í leiguhúsnæði skal liggja fyrir samþykki leigusala samkvæmt ákvæðum húsaleigulaga.
-
SakavottorðSakavottorð umsækjanda og allra heimilismanna 18 ára og eldri skal liggja fyrir sem félagsmálaráð aflar frá Ríkissaksóknara. Hafi einhver heimilismanna hlotið refsidóm mun félagsmálaráð meta viðkomandi umsókn.
-
HúsakynniLeiksvæði fyrir hvert barn skal að lágmarki vera 3 fm á gólffleti fyrir hvert barn. Aðstaða til útivistar skal einnig vera hættulaust en einnig þarf að vera til staðar viðunandi aðstaða til hvíldar. Ef um sex börn eða fleiri er að ræða skal liggja fyrir starfsleyfi heilbrigðisnefndar sveitarfélagsins í samræmi við reglugerð um hollustuhætti.
-
BrunavarnirFyrir liggi skoðun eldvarnareftirlits á heimili umsækjanda en reykskynjari, eldvarnarteppi og slökkvitæki skulu vera í íbúðinni.
10. Lóð, leiktæki og leikföng
Lóð, leiktæki og leikföng skulu uppfylla ákvæði reglugerðar um hollustuhætti, reglugerðar um öryggi
leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim og reglugerðar um öryggi leikfanga og hættulegar eftirlíkingar
eftir því sem við á. Útivistarsvæði barnanna skal vera afgirt.
11. Afskipti barnaverndarnefndar
Starfsmaður barnaverndarnefndar veitir umsögn um að umsækjandi hafi ekki orðið uppvís að broti á
barnaverndarlögum eða hafi verið grunaður um slíkt. Hafi barnaverndaryfirvöld haft afskipti af umsækjanda
metur félagsmálaráð umsóknina út frá afskiptum barnaverndar.
5.gr.
Dagforeldri skal framvísa slysatryggingu vegna barnanna við leyfisveitingu félagsmálaráðs.
6.gr.
Neysla tóbaks, áfengis og annarra vímuefna er með öllu óheimil á heimilinu á meðan daggæslu stendur.
7.gr.
Við endurnýjun leyfis getur fjölskylduráð óskað eftir staðfestingu á slysatryggingu barna, læknisvottorði og sakavottorði og öðrum þeim gögnum sem nauðsynleg þykja. Ef nýr heimilismaður flytur inn á heimilið þarf að skila inn læknisvottorði og sakavottorði fyrir hann.
8.gr.
Sé ekki skilað inn tilhlýðlegum gögnum samkvæmt 7.gr. getur félagsmálaráð synjað endurnýjun leyfis umsækjanda. Félagsmálaráð getur einnig afturkallað leyfi dagforeldris verði viðkomandi uppvís að brotum á ákvæðum laga og reglna um starfsemi dagforeldra eða barnaverndarlögum.
9.gr.
Félagsmálaráði er heimilt að veita bráðabirgðaleyfi til daggæslu, til eins árs í senn, þar til dagforeldri hefur sótt námskeið. Standi námskeið ekki til boða er heimilt að veita bráðabirgðaleyfi þar til dagforeldri hefur gefist kostur á sækja námskeið.
Fari dagforeldri ekki á námskeið þegar það býðst er félagsmálaráði heimilt að svipta það leyfi.
II.Kafli
Fjöldi barna í daggæslu og aldur þeirra. Dvalartími.
10.gr.
Leyfi félagsmálaráðs tekur til allt að fjögurra barna, samtímis, að meðtöldum þeim sem fyrir eru á heimilinu yngri en sex ára, þó þannig að eigi skulu vera á heimilinu fleiri en tvö börn undir eins árs aldri að jafnaði.
Eftir a.m.k. eins árs samfelldan starfstíma er félagsmálanefnd heimilt að veita dagforeldri leyfi fyrir einu barni til viðbótar. Þannig geta dagforeldrar, að veittum tilskildum leyfum og fenginnar starfsreynslu vegna, mest haft fimm börn í gæslu í senn.
Skipulagður dvalartími barna getur skarast í hádeginu á milli kl. 13.00 og 14.00 þannig að umframfjöldi barna í hádeginu getur verið allt að tveimur fleiri en leyfilegur fjöldi barna skv. 1. og 2. mgr. Á öðrum tíma dagsins má fjöldi barna aldrei fara yfir þann leyfilegan hámarksfjölda sem dagforeldri hefur hverju sinni skv. 1. og 2. mgr.
11.gr.
Dvalartími barna í daggæslu getur verið allt að níu tímar á dag, alla virka daga vikunnar.
III.Kafli
Umsjón og eftirlit með starfsemi dagforeldra.
12.gr.
Starfsmaður félagsmálaráðs Hornafjarðar er félagsmálastjóri og fer hann með umsjón og eftirlit með starfsemi dagforeldra í umboði félagsmálaráðs.
Umsjón félagsmálastjóra felst meðal annars í því að:
-
fara reglulega í heimsókn til dagforeldra í þeim tilgangi að veita ráðgjöf og stuðning.
Skulu heimsóknir vera tíðar fyrsta árið eftir að leyfi er veitt,
-
halda fræðslufundi fyrir nýja umsækjendur,
-
halda reglulega fræðslufundi fyrir starfandi dagforeldra,
-
halda fundi með dagforeldrum og foreldrum barna þegar þess er óskað eða þörf er
talin á
-
leita sérstaklega eftir ráðgjöf ef barn er fatlað, en ætíð í samráði við foreldra.
13.gr.
Eftirlit félagsmálastjóra með starfssemi dagforeldra skal vera reglubundið og er þríþætt:
-
Mánaðarleg skil dagforeldra á yfirliti yfir skráð börn í gæslu, staðfest af eftirlitsaðila
og foreldri barns.
-
Að minnsta kosti þrjár óboðaðar eftirlitsheimsóknir á ári þar sem farið er yfir öryggisatriði, aðbúnað og fjölda barna.
-
Félagsmálastjóri áskilur sér rétt til að afla upplýsinga frá forráðamönnum barns um viðhorf þeirra til dagforeldris.
14.gr.
Verði félagsmálastjóri þess var að aðbúnaði barns hjá dagforeldri sé ábótavant eða skilyrði til leyfisveitingar ekki lengur fyrir hendi skal hann gera dagforeldri það ljóst og óska skriflega eftir úrbótum. Sinni dagforeldri ekki ábendingum félagsmálastjóra skal málinu vísað til félagsmálaráðs til meðferðar.
15.gr.
Ef í ljós kemur í eftirliti að börn eru of mörg í umsjá dagforeldris skal félagsmálastjóri óska þess skriflega til dagforeldris að virða reglur um fjölda barna. Fari dagforeldri ekki eftir fyrirmælum innan fjögurra vikna skal fara með málið skv.17.gr.
16.gr.
Telji félagsmálastjóri að barn sé í hættu statt hjá dagforeldri, svo sem vegna lélegs aðbúnaðar eða of mikils fjölda barna, skal hann gera dagforeldri það ljóst, tilkynna foreldrum það þegar í stað og vísa málinu til félagsmálaráðs.
17.gr.
Ef talið er brýnt með hag barnanna í huga að þau séu tekin tafarlaust úr gæslu skal félagsmálaráð svipta dagforeldri leyfi, tímabundið, á meðan málið er kannað nánar.
18.gr.
Félagsmálaráð skal svipta dagforeldri leyfi ef börn eru í hættu stödd, sbr. 23. gr., eða ef
tímabundin leyfissvipting, sbr. 24. gr., hefur ekki borið árangur.
IV.Kafli
Ábyrgð og skyldur foreldra
19.gr.
Ákvörðun um vistun barns hjá dagforeldri er ætíð á ábyrgð foreldra. Mikilvægt er að foreldrar kynni sér reglur þessar og séu meðvitaðir um leyfilegann fjölda barna og dvalartíma. Foreldrar skulu einnig upplýsa dagforeldri um daglegar venjur barnsins.
Aðlögun að vist hjá dagforeldri skal miðast við þarfir barnsins og skal foreldri dvelja hjá barni sínu í upphafi vistunar í a.m.k. eina klukkustund daglega í byrjun vistunar. Foreldrar skulu upplýsa dagforeldri um hvaða dvalartíma er óskað eftir, hvenær barnið verði sótt og hver sæki það. Þá skulu foreldrar tilkynna um sérþarfir barnsins séu þær til staðar.
20.gr.
Foreldrar skulu tilkynna dagforeldri um tilfallandi veikindi barns. Óheimilt er að koma með veikt barn í daggæslu. Geti dagforeldri af sérstökum ástæðum ekki sinnt starfi sínu er barnið á ábyrgð foreldra.
21.gr.
Foreldrar skulu gæta þess að barnið mæti hreint til fara og hafi föt við hæfi til inni og útiveru eins og aðstæður gefa efni til og fatnað til skiptana. Einnig er það á ábyrgð foreldra að dagforeldri hafi ávallt nægilega mikið af bleium og þurrkum þegar það á við. Komi barn með leikföng eru þau á ábyrgð forráðamanna.
Þegar komið er með til gæslu og þegar barn er sótt skulu foreldrar klæða barnið í og úr fötunum.
22.gr.
Foreldrum ber að fara eftir umsömdum tíma um daggæslu barnsins og að koma með barnið og sækja það stundvíslega. Sæki foreldri barn of seint hefur dagforeldri heimild til að rukka samkvæmt gjaldskrá.
23.gr.
Í upphafi daggæslu barna skal greiða mánuð fyrirfram. Ætíð skal greitt fyrsta virkan dag hvers mánaðar og koma þá umframtímar með næstu greiðslu eða eftir samkomulagi. Ef greiðsla hefur ekki borist innan 5 daga, er dagforeldri ekki skylt að taka við barni, nema um annað sé samið.
Gæsla byrjar á heila og hálfa tímanum og miðast gjald við það. Athygli skal vakin á því að Samkeppnisstofnun leggur bann við sameiginlegri gjaldskrá til handa dagforeldrum.
24.gr.
Verði foreldrar varir við að umönnum og aðbúnaði barnsins sé ábótavant hjá dagforeldri
er þeim skylt að tilkynna það félagsmálastjóra.
V.Kafli
Ábyrgð og skyldur dagforeldra.
25.gr.
Dagforeldri ber ábyrgð á barni meðan á dvöl hjá því stendur og skal hlúa að andlegri og líkamlegri velferð þess í sem víðtækustum skilningi. Þetta á jafnt við um fæðuval, leiki, leikföng, hreyfingu, útiveru, tilfinningalíf og félagslega líðan barns. Dagforeldri skal sjá til þess að foreldrar hafi vitneskju um dagskipulag, þar með talið mataræði, svefntíma o.fl.
26.gr.
Dagforeldri er skylt að stuðla að öryggi barna í hvívetna, svo sem með því að hafa sjúkrakassa
á heimilinu og barnalæsingu á skápum með hættulegum efnum. Nota skal beisli í barnavögnum og í háum barnastólum. Börn í daggæslu skulu aldrei vera skilin eftir eftirlitslaus.
27.gr.
Áður en gæsla hefst skal dagforeldri fara yfir með foreldri hver sé ábyrgð hvors aðila um sig meðan á dvöl barnsins í gæslunni stendur. Dagforeldri skal fara fram á að fá greinargóðar upplýsingar um barnið og ákveða aðlögunartíma og gæslutíma í samráði við foreldri. Dagforeldri skal sýna foreldrum heimili, aðstæður inni sem úti og skýra frá því hvernig það hagar starfi sínu. Skal dagforeldri gera foreldrum grein fyrir aðstæðum á heimilinu sem geta haft áhrif á líðan barns, til dæmis ef gæludýr er á heimilinu.
Eins ber dagforeldri að greina frá breytingum á heimilisaðstæðum sem hafa áhrif daggæsluna samkvæmt reglum þessum.
28.gr.
Dagforeldri skal sjá um að félagsmálastjóri fái jafnóðum upplýsingar um börn sem hefja dvöl eða ljúka dvöl hjá því. Skal dagforeldri skila félagsmálastjóra mánaðarlegu yfirliti yfir þau börn sem voru í gæslu í mánuðinum, ásamt staðfestingu foreldra.
29.gr.
Dagforeldri fer með allar upplýsingar varðandi barn og forráðamenn þess sem trúnaðarmál að svo fremi sem upplýsingarnar varða ekki tilkynningarskyldu samkvæmt barnaverndarlögum.
30.gr.
Vakni grunsemdir dagforeldris varðandi uppeldi og/eða aðbúnað barns ber dagforeldri að tilkynna barnaverndarnefnd aðstæður barns án tafar.
31.gr.
Geti dagforeldri af einhverjum ástæðum ekki unnið að daggæslunni skal það tilkynnt foreldrum þegar í stað. Foreldrar bera ábyrgð á barni þann tíma sem dagforeldri getur ekki sinnt starfi sínu.
32.gr.
Dagforeldri ber að láta foreldra vita með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara ef dagforeldri getur ekki haft barn í vistun vegna starfsdags dagforeldra eða annarra ástæðna. Ef um lengra frí er að ræða skal dagforeldri gera foreldri og félagsmálastjóra grein fyrir lengd þess og tímasetningu með tveggja mánaða fyrirvara, eða samkvæmt samkomulagi.
VI.Kafli
Ýmis ákvæði
33.gr.
Gagnkvæmur uppsagnarfrestur á daggæslu barns er tveir mánuðir nema samkomulag náist um annað, en þó aldrei minna en einn mánuður, og skal uppsögn miðast við 1. eða 15. hvers mánaðar.
34.gr.
Dagforeldri og foreldrar skulu reyna að samræma orlofstíma sinn. Taki foreldri eða forráðamaður sér frí utan orlofstíma er það ekki frádráttarbært og á hið sama við um jól og páska. Taki dagforeldri sér frí utan orlofstíma, ber að endurgreiða það.
34.gr.
Telji dagforeldri að aðstæður barns hjá öðru dagforeldri brjóti í bága við barnaverndarlögum ber að tilkynna það til barnaverndarnefndar án tafar.
35.gr.
Komi upp ágreiningur um efni reglna þessara fellur það í hlut félagsmálaráðs Hornafjarðar að úrskurða í málinu. Ef upp kemur ágreiningur milli foreldra og dagforeldra skal haft samband við félagsmálastjóra sem metur framhald málsins.
36.gr.
Reglur þessar verða endurskoðaðar ári eftir gildistöku.
Samþykkt í bæjarráði Hornafjarðar 11. desember 2006.


