Stjórnsýslan
Reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum
1. Sveitarfélagið Hornafjörður greiðir niður daggæslu barna í heimahúsum samkvæmt reglum þessum og að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:
-
Foreldrar viðkomandi barns verða að hafa lögheimili í sveitarfélaginu.
-
Dagforeldri ber að hafa leyfi til daggæslu frá félagsmálaráði Hornafjarðar.
-
Að foreldri sé ekki í fæðingarorlofi og fái ekki vistun fyrir barnið á leikskóla.
-
Kvittun frá viðkomandi dagmóður þarf að liggja fyrir undangenginn mánuð.
-
Niðurgreiðslu flokkarnir eru tveir:
-
-
Almennt gjald er 14.000,- kr. á mánaðarklukkustundina, eða 1.750,- kr. að hámarki fyrir 8 klukkustunda vistun á dag. Í þennann flokk falla hjón og sambúðarfólk.
-
Sérstök niðurgreiðsla er 20.000,- kr. á mánaðarklukkustundina, eða 2.500,- kr. að hámarki fyrir 8 klukkustunda vistun á dag. Í þennann flokk falla einstæðir foreldrar og foreldrar þar sem annað eða bæði eru í námi.
-
-
Við upphaf gæslunnar skal sótt um niðurgreiðslu á þar til gerðum eyðublöðum sem liggja frammi í afgreiðslu sveitarfélagsins og hjá dagforeldrum í Hornafirði. Einstæðir foreldrar skulu skila inn vottorði um hjúskaparstöður þeirra og námsmenn skulu skila inn vottorði um skólavist. Fræðslu-og félagssvið áskilur sér rétt að fylgjast með framvindu og ástundun náms.
-
Umsókn um niðurgreiðslu skal endurnýjuð 1.september ár hvert eða ef hlé verður á gæslu.
-
Ekki eru veittar niðurgreiðslur aftur í tímann, jafnvel þó að umsækjandi hafi átt rétt á þeim en ekki sótt um.
-
Daggæsla er niðurgreidd 11 mánuði á ári en ekki er greitt niður með börnum af leikskólum sem dvelja í daggæslu yfir sumartímann.
-
Við 9 mánaða aldur barns ber foreldrum að skila inn umsókn um leikskólavistun og skila staðfestingu þess efnis til Fræðslu-og félagssviðs. Liggi umsókn ekki fyrir falla greiðslur niður við 12 mánaða aldur barns.
-
Bjóðist foreldri/foreldrum barns sem hefur náð 12 mánaða aldri heilsdags vistun á leikskóla fyrir barnið ber þeim að taka plássið, að öðrum kosti falla niðurgreiðslur niður. Foreldrar með börn í hálfu plássi hjá dagforeldri geta afþakkað heilsdags vistun á leikskóla ef leikskólinn býður upp á sambærilegann vistunartíma.
-
Systkinauppbót er greidd ef foreldrar hafa einnig barn eða börn á leikskóla, einungis er greidd uppbót með einu barni á leikskóla. Upphæð uppbótarinnar nemur þremur mánaðarklukkustundum þess niðurgreiðsluflokks sem foreldri tilheyrir.
10. Niðurgreitt er með eftirfarandi hætti fyrir börn á aldrinum 6 mánaða til 6 ára, þó eigi lengur en fram að þeim tíma er barn hefur grunnskólagöngu.
-
Fyrir börn einstæðra foreldra og foreldra þar sem báðir aðilar eru í fullu námi sem varir í 2 ár eða lengur getur niðurgreiðsla hafist við 6 mánaða aldur barns.
-
Fyrir öll önnur börn getur niðurgreiðsla hafist við 9 mánaða aldur barns.
-
Fyrir börn sem vegna fötlunar sinnar þurfa sérstaka umönnun og taka því meira en eitt pláss í daggæslu er niðurgreitt samkvæmt reglum þessum, ásamt því að greitt er fyrir það pláss sem ekki nýtist. Ákvörðun um tímalengd sem greidd er vegna sérstakrar ummönnunar er í höndum starfsmanna Fræðslu-og félagssviðs.
-
Dagforeldrar fá niðurgreitt með eigin börnum samkvæmt reglum þessum, að hámarki 8 tíma daglega, virka daga. Niðurgreiðslu skal miða við dvalartíma annarra barna í daggæslunni.
-
Heimilt er að greiða niður daggæslu barna í 1. -3. bekk grunnskóla, í heimahúsi ef um er að ræða börn einstæðra foreldra eða fjölskyldur í félagslegum erfiðleikum. Foreldrum ber þó fyrst að kanna möguleikann á lengdri viðveru grunnskólanna.
-
Greiðslur eru inntar af hendi 1. virka dag mánaðar og berast greiðslur til foreldra eftir að þjónustumánuði lýkur.
-
Félagsmálaráð auglýsir að lágmarki árlega rétt foreldra til niðurgreiðslna daggæslu hjá dagforeldri. Dagforeldri upplýsir foreldra einnig um réttinn.
-
Félagsmálaráð getur samþykkt frávik frá þessum reglum þegar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi og fyrir liggur faglegt mat Fræðslu-og félagssviðs.
-
Ákvörðunum starfsmanna Fræðslu-og félagssviðs er hægt að skjóta til félagsmálaráðs.
Samþykkt í bæjarráði Hornafjarðar 11. desember 2006.


