Stjórnsýslan

Samþykkt um kattahald fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð

1. gr.

Kattahald í Sveitarfélaginu Hornafirði sætir þeim takmörkunum sem á er kveðið í þessari samþykkt.  Samkvæmt lögum um dýravernd nr. 15/1994 fer Umhverfisstofnun með mál er varða dýravernd.

 

2. gr.  Stjórnsýsla

Bæjarstjóri í umboði bæjarstjórnar fer með umsýslu vegna samþykktar þessarar og getur ráðið sérstaka dýraeftirlitsmenn eða falið starfsmönnum sveitarfélagsins hlutverk dýraeftirlitsmanns.   Bæjarstjórn setur dýraeftirlitsmanni starfsreglur.  Þeir starfa í umboði Heilbrigðisnefndar Austurlands. 

 

3. gr.  Um kattahald í dreifbýli

Kattahald í dreifbýli sætir að öllu jöfnu ekki takmörkunum.  Þó getur bæjarstjórn, telji hún og héraðsdýralæknir brýna þörf á, takmarkað kattahald í dreifbýli. Framkvæmdastjóra umhverfis- og tæknisviðs er heimilt að beita ákvæðum samþykktar þessarar í dreifbýli valdi óviðkomandi kettir áreiti eða ónæði og telji héraðsdýralæknir eða dýraeftirlitsmaður þörf á. 

 

4. gr.  Skilyrði fyrir kattahaldi í þéttbýli

Þéttbýli er skilgreint sem:  Þyrping húsa þar sem búa a.m.k. 50 manns og fjarlægð milli húsa fer að jafnaði ekki yfir 200 metra, sbr. skipulags- og byggingarlög  nr. 73/1997 .

Bæjarstjórn er heimilt að veita lögráða einstaklingum,  sem búa í þéttbýli í sveitarfélaginu leyfi til kattahalds með ákveðnum skilyrðum.  Leyfið er bundið við nafn og heimilisfang viðkomandi og er ekki framseljanlegt.  Leyfið er einnig bundið við þann kött sem það er gefið út fyrir.  Ef köttur lætur lífið eða flyst af svæðinu ber að tilkynna það.  Ef eigendaskipti verða á ketti þarf að tilkynna það og sækja um nýtt leyfi fyrir köttinn.

Bæjarstjórn skal halda skrá  yfir ketti sem veitt er leyfi fyrir, þar sem fram koma upplýsingar um köttinn og eiganda hans.  Skráin skal vera aðgengileg heilbrigðiseftirliti og dýraeftirlitsmanni, sé hann starfandi.

Um kattahald í fjöleignarhúsum fer að 13. tl. A-lið 41. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignahús.  Þ.e.  til að halda kött í fjöleignarhúsi þarf samþykki allra umráðamanna íbúða hússins auk eiganda viðkomandi húsnæðis, sé um leiguhúsnæði að ræða.  Þegar hús skiptist í aðgreinda hluta nægir samþykki þeirra eigenda sem hafa sameiginlegan inngang, stigagang eða annað sameiginlegt húsrými.  Þegar sótt er um leyfi til kattahalds skal fylgja umsókninni skriflegt samþykki eigenda íbúa samkvæmt ofanrituðu.  Óheimilt er þó að halda ketti í fjöleignarhúsum ef kattahaldið sannanlega veldur eða viðheldur sjúkdómum hjá íbúum. 

Köttur sem færður er til skráningar skal vera merktur varanlega með örmerki skv. reglugerð um aðbúnað og umhirðu gæludýra og dýrahald í atvinnuskyni nr. 1077/2004 .  Eigandi kattarins skal strax að lokinni örmerkingu koma upplýsingum um númer örmerkis fyrir dýrið sem og nafn og kennitölu eiganda til bæjarstjórnar.  

Leyfisgjald fyrir kattahaldi skal greiða árlega til bæjarsjóðs, eftir gjaldskrá sem bæjarstjórn setur að fenginni umsögn Heilbrigðiseftirlits Austurlands samkvæmt ákvæðum 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, m.s.br.  Gjaldið skal ekki vera hærra en sem nemur rökstuddum kostnaði fyrir veitta þjónustu og eftirlit og skal birt í B-deild Stjórnartíðinda. Veittur er 15% afsláttur af leyfisgjaldi gegn framvísun vottorðs um ófrjósemisaðgerð.  Gjaldið skal greitt í fyrsta sinn við skráningu kattarins, og síðan árlega fyrirfram, fyrir lok febrúar ár hvert.  Hafi gjaldið ekki verið greitt innan tveggja mánaða frá gjalddaga fellur leyfið sjálfkrafa úr gildi.

Innifalið í skráningargjaldinu er  ormahreinsun og merkispjald.  Eigandi dýrs ber kostnað af örmerkingu dýrsins, hálsól með bjöllu o.þ.h.

Auk örmerkis skulu kettir bera hálsól með bjöllu og upplýsingum um heimilisfang eiganda og símanúmer.

Óheimilt er að láta kött dvelja lengur en þrjá mánuði á heimili án þess að sótt sé um leyfi fyrir hann.  Það fríar þó eiganda ekki  ábyrgð á því tjóni sem kötturinn kann að valda meðan hann er óskráður.

Ekki er leyfilegt að hafa fleiri en tvo ketti eldri en þriggja mánaða á sama heimilinu. Ef sérstakar ástæður mæla fyrir um getur bæjarstjórn veitt tímabundna undanþágu frá þessu ákvæði.

Gelda skal alla fressketti sex mánaða og eldri sem ganga lausir utan dyra.

Leyfishafar skulu taka tillit til fuglalífs og ber að sjá til þess að kettir séu innandyra á nóttinni frá og með 20. apríl – 20. júlí.

Leyfishafa ber að hafa sandkassa fyrir köttinn á sinni lóð.

 

5. gr.  Óheimilir staðir

Ekki má hleypa köttum inn í húsrými eða á lóðir sem fjallað er um fylgiskjali 3 með reglugerð um hollustuhætti nr. 941/2002 né heldur húsnæði þar sem matvæli eru meðhöndluð. 

Slíkir staðir eru m.a. eftirfarandi skv. ákvæðum í fylgiskjali 3 með reglugerð um hollustuhætti 941/2002

  • Heilbrigðis- og meðferðarstofnanir
  • Skólar
  • Lækna- og tannlæknastofur
  • Sjúkrahús og aðgerðarstofur
  • Vistarverur handtekinna manna
  • Heilsuræktarstöðvar
  • Íþróttastöðvar og íþróttahús
  • Gæsluvellir
  • Snyrtistofur
  • Nuddstofur og sjúkraþjálfun
  • Sólbaðsstofur
  • Húðflúrsstofur
  • Samkomuhús s.s. kirkjur, leikhús, hljómleikasalir, söfn og kvikmyndahús
  • Gististaðir
  • Veitingastaðir
  • Sumarbúðir fyrir börn


Um matvælafyrirtæki fer samkvæmt ákvæðum reglugerðar um matvælaeftirlit og hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla.

 

6. gr.  Ónæði og óþrif af völdum katta

Eigendum kattar ber að sjá svo um að köttur hans valdi ekki hávaða, ónæði, óþrifnaði né óhollustu.

Ef köttur veldur nágrönnum eða öðrum ítrekuðu ónæði, óþrifum eða tjóni, þá ber eiganda eða forráðamanni að leita leiða til að koma í veg fyrir slíkt.

 

7. gr.  Handsömun katta

Bæjarstjórn er heimilt að láta veiða ketti í búr að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Austurlands í eftirfarandi tilfellum:

sé köttur ómerktur, hvort sem er með hálsól eða örmerki

Sé ítrekað kvartaðu undan ágangi katta á tilteknu svæði

Sé köttur innandyra hjá nágranna í leyfisleysi, á óheimilum stað eða án samþykkis í fjöleignahúsi.

Meiriháttar föngun villikatta í þéttbýliskjörnum skal auglýsa með a.m.k. 7 daga fyrirvara með tilmælum um að heimilisköttum sé haldið innan dyra.

Ketti sem fangaðir eru skal færa í sérstaka kattageymslu, sem hefur  leyfi heilbrigðiseftirlits skv. hollustuháttareglugerð nr. 941/2002 og Umhverfisstofnunar.

Sé fangaður köttur ómerktur og ekki unnt að bera kennsl á hann skal auglýsa eftir eiganda hans.  Gefi eigandi sig ekki fram innan 7 sólahringa frá birtingu auglýsingar er heimilt að ráðstafa kettinum til nýs eiganda eða selja hann fyrir áföllnum kostnaði.  Að öðrum kosti skal hann aflífaður. 

Sé köttur ekki örmerktur og skráður skal eigandi hans greiða fyrir örmerkingu og skráningu kattarins áður en hann er afhentur og fær gegn því beiðni sem nýta má hjá dýralækni til greiðslu fyrir örmerkingu.

Tilkynna skal eiganda ef merktir kettir eru teknir úr umferð.  Eigandi kattar sem fluttur er í kattageymslu skal greiða handsömunar-, fóður- og vistunargjald skv. gjaldskrá um kattahald í  sveitarfélaginu áður en honum er afhentur kötturinn á ný. 

Kattareigandi ber allan kostnað af handsömun, vörslu, fóðrun og aflífun, ef til þess kemur. 

 

8. gr.  Refsiviðurlög

Með brot á samþykkt þessari skal fara samkvæmt ákvæðum laga nr. 7/1998   um hollustuhætti og mengunarvarnir með síðari breytingum.

Leyfishafa er skylt að greiða kostnað sem leiðir af brotum á samþykkt þessari.

 

9. gr.  Lagagrundvöllur

Samþykkt þessi staðfestist hér með skv. ákvæðum laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir m.s.br. og öðlast gildi þegar við birtingu.  Jafnframt falla þá úr gildi eldri reglugerðir um kattahald í sveitarfélaginu.

 

10. gr.  Ákvæði til bráðabirgða:

Þeir sem halda ketti við gildistöku samþykktarinnar, en hafa ekki skráð þá, skulu færa þá til skráningar samkvæmt samþykkt þessari fyrir 1. janúar .2008.

 

Samþykkt á  fundi  bæjarstjórnar  Sveitarfélagsins Hornafjarðar 17. apríl 2007.

 

 


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica