Eldvarnareftirlit
Eldvarnareftirlit
Hlutverk og starfsemi.

Nánari lýsing á starfsemi Eldvarnareftirlits. SH
Einn starfsmaður eldvarnareftirlits er á starfsvæði SH sem skiptist í tvo megin þætti, forvarnarfræðslu og hefðbundið eldvarnareftirlit. Eldvarnareftirlit SH vinnur í samstarfi við byggingafulltrúa, lögreglu, vinnueftirlit, heilbrigðiseftirlit, menntastofnanir vegna almenningsfræðslu og fleiri aðila í því skyni að efla brunavarnir og öryggismál almennt á starfssvæði Slökkvilið Hornafjarðar.
Framkvæmd
- Lögð er áhersla á að ná til almennings í samvinnu við menntastofnanir á svæði
Brunavarna Hornafjarðar með sérstaka áherslu á leikskóla og grunnskóla.
- Haldin eru námskeið í brunavörnum fyrir starfsmenn fyrirtækja og stofnana.
- Skoðun fyrirtækja samkvæmt leiðbeiningarblaði frá Brunamálastofnun þar um.
Eldvarnareftirlit SH framkvæmir um 150 skipulagðar skoðanir og 10 eftirskoðanir á ári,
skýrslur eru sendar til forráðamanna fyrirtækja þar sem kröfur um úrbætur eru gerðar ef
þörf er á, ef um mjög alvarlega ágalla er að ræða er gerð framkvæmda áætlun í
samráði við viðkomandi forráðamann um lagfæringar á húsnæðinu.
- Árlega að heimsækja þau heimili sem eru í mestri fjarlægð frá slökkviliðsstöð með
fræðslu um brunavarnir og rétt viðbrögð við eldsvoða.
- Skoðunum er forgangsraðað eftir mikilvægi.
- Skoðun teikninga og ráðgjöf.
- Farið í skyndiskoðanir á veitinga og skemmtistaði.
- Skoðanir vegna leifsveitinga að beiðni lögreglu.
- Viðurkenningar eru veittar fyrir góðar brunavarnir að lokinni ástandsskoðun.
- Slökkviliðsstjóri hefur rétt til setu á fundum byggingarnefndar.
Markmið
- Að á tveggja ára tímabili sé búið að framkvæma skoðanir á fyrirtækjum samkvæmt
leiðbeiningum frá Brunamálastofnun.
- Halda upp öflugri almannafræðslu.
- Að koma í veg fyrir manntjón, heilsutjón, umhverfistjón og eignatjón með virku
eftirliti og fræðslu.


