Gjaldskrár
Gjaldskrá fyrir stöðuleyfi geymslugáma og bátakerrur
1. Á gámasvæði bæjarfélagsins:
mánaðarleiga árseiga
Lóð fyrir 40 feta gám kr. 780/- kr. 9360/-
Lóð fyrir bátakerru kr. 780/- kr. 9360/-
2. Gámar á afgirtum og fullbyggðum lóðum m.v. nýtingarhlutfall skv. skipulagsskilmálum viðkomandi svæðis eða á útleigðum geymslu-lóðum, sem girtar hafa verið, skulu gjaldfrjálsir.
3. Fyrir gáma á lóðum, sem aðeins eru byggðar að hluta m.v. nýtingarhlutfall skv. skipulagsskilmálum viðkomandi svæðis, skal taka gjald sem miðast við rúmmál þeirra (þ.e. einskonar ígildi gatnagerðagjalds.) enda sýnt, að þeir komi að vissu marki í stað hins óbyggða húsrýmis. Tillaga að gjaldi í slíkum tilfellum:
20 feta gámur 35,0 rúmm. @ 300/- kr. 10500,- á ári.
40 feta gámur 70,0 rúmm. @ 300/- kr. 21000,_ á ári.
4. Utan þéttbýlis eða á opnum svæðum utan skipulagðra gáma-svæða skal gjald fyrir gáma, sem á annað borð verða leyfðir þar, vera sem hér segir:
20 feta gámur kr. 750,-pr/mán. kr. 9000,-pr/ár.
40 feta gámur kr. 1400,-pr/mán. kr. 16800,-pr/ár.
5. Gjöld greiðist fyrirfram og skal gjalddagi þeirra vera í upphafi árs. Gjald fyrir styttri tíma en 1 ár, þ.e. hluta úr ári, skal greiðast fram að næstu áramótum, eða fram að lokum stöðuleyfis, eftir atvikum.
6. Um gjald fyrir bráðabirgðabyggingar ( til takmarkaðs tíma ) skal fara eins og í 3. lið, þ.e. rúmmálsgjald, eins og því verður við komið.


