Flokkun úrgangs

23/2/09

Upplýsingar um sorpmál í Sveitarfélaginu Hornafirði

 

Sorpdagatal 2011 ( pdf )

 

Skilagjaldskyldar umbúðir er hægt að skila inn í Áhaldahúsinu.  Sveitarfélagið Hornafjjörður og Endurvinnslan ehf eiga með sér samstarf um móttöku á skilagjaldskyldum umbúðum frá og með áramótunum 2011/2012.  Allar nánari upplýsingar má finna á vef Endurvinnslunnar www.endurvinnslan.is

Lífrænn gámur í dreifbýli er losaður einu sinni í mánuði en oftar á álagstímum í kringum sauðburð og á haustin.

Jólatréssöfnun í Nesjum og á Höfn er  auglýst í byrjun janúar ár hvert.

Hreinsunardagar eru tveir í Sveitarfélaginu Hornafirði, einn á vorin og annar á haustin. Dagarnir eru kynntir nánar á þeim tímum.  Á þeim dögum eru íbúar hvattir til að taka til á lóðum sínum.

Spilliefni í dreifbýli er safnað saman á haustin, og er miðað við að söfnunin eigi sér stað í nóvember eftir slátrun.

Baggaplasti í dreifbýli er að öllu jöfnu safnað saman þrisvar á ári með jöfnu millibili. Það er feb/mars, júní/júlí, okt/nóv, og oftar ef þörf krefur. Bændur sem ekki fá sótt heyrúlluplast heim er bent á að hafa samband við Hauk Inga Einarsson s: 470-8000begin_of_the_skype_highlighting            470-8000      end_of_the_skype_highlighting og óska eftir þjónustunni.

Grenndarstöðvar til sveita:

Suðursveit

o    Við Þórbergssetur

o    Við Hrollaugsstaði

o    Við Smyrlabjargará

Mýrar

o    Við Holt

Nes

o    Ofan við Nesjahverfi

Lón

o    Við Jökulsá í Lóni

Grenndarstöðvar á Höfn:

·         Við leikskólann Lönguhóla

·         Við leikskólann Krakkakot

·         Við plan Krónuhússins

·         Við plan Miðbæjar/Sindrahúss

Opnunartími gámaports:

  •          mán – fös             13:00 – 18:00
  •          lau                       13:00 – 18:00
  •          sun og hátíðardaga er lokað 

 

Algengar spurningar  (pdf)

Ýmsir tenglar, http://www.fenur.is/ http://www.sorpa.is/ http://www.natturan.is/

Hægt er að nálgast gjaldskrá hér (pdf)

Vinsamlega hafið samband og tilkynnið um mál sem betur mega fara, til dæmis ef grenndarstöðvar eru orðnar fullar o.fl.

Símanúmer og netföng:

Þjónustustöð:      478-1473begin_of_the_skype_highlighting            478-1473      end_of_the_skype_highlighting, birgir@hornafjordur.is

Ráðhús:              470-8000begin_of_the_skype_highlighting            470-8000      end_of_the_skype_highlighting, haukuri@hornafjordur.is / runars@hornafjordur.is 

 

Sveitarfélagið Hornafjörður, Hafnarbraut 27, 780 Höfn,  http://www.hornafjordur.is/ 



 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica