Framkvæmdir
Flutningur Nesjaskóla í Hafnarskóla
Verk hafið mars 2009 | Verklok áætluð ágúst 2009
Geir Þorsteinsson vinnur nú að flutningi færanlegrar kennslustofa frá Nesjaskóla á nýjan stað við Hafnarskóla. Fleyga þarf klöpp fyrir annarri kennslustofunni og setja malarpúða undir færanlegu kennslustofurnar að því loknu og steypa undirstöður áður en stofurnar verða sett niður.
Næsti áfangi flutningsins er að gera endurbætur á innraskipulagi skólahúsnæðis í Hafnarskóla. Þar verður meðal annars matsalur í elsta rými skólans, bókasafnið flyst upp á gang og nýtt rými verður útbúið fyrir kennara. Verið er að útbúa útboðsgögn fyrir breytingar innandyra og undirbúningur útboðsganga er nú á lokastigi.
HIE


