Vinnuskóli og skólagarðar

6/7/10

Vinnuskóli og skólagarðar

 

Starfsemi vinnuskólans

Í Vinnuskólanum starfa 14-16 ára unglingar. Hóparnir hafa aðstöðu í skúrum sem eru staðsettir við leikskólann Lönguhóla og við félagsmiðstöðina Miðgarð.  Þar hittast hóparnir á morgnanna og í hádeginu.  Hópar 1-3 hittast við Lönguhóla og hópar 4 og 5 hittast við Miðgarð.

Vinnutími vinnuskólans er frá 9-12 og 13-16.  Pásur eru 2, ein fyrir hádegi og ein eftir hádegi og eru þær í 15 mínútur í senn.

Mikilvægt er að bærinn okkar líti sem best út allt sumarið og er það Vinnuskólinn sem á stærsta þáttinn í því hversu fallegur bærinn er.  Vinnuskólinn er vettvangur fyrir unglinga að læra góð og vönduð vinnubrögð.  Vinnuskólinn á að vera skemmtilegur eins og aðrir vinnustaðir þar sem unglingum gefst færi á að afla sér reynslu á vinnumarkaði.  En þetta er þó ekki eintóm vinna, en í Vinnuskólanum reynum við að brjóta upp hefðbundna starfsemi með reglulegu millibili.  Leikjadagar, ratleikur og útilega er meðal þess sem við gerum á sumrin.

 

Starfsfólk Vinnuskólans sumarið 2010 

Steinunn Hödd Harðardóttir, Yfirmaður vinnuskóla 699-2967 steinunnh@hornafjordur.is
Eva Ösp Björnsdóttir, verkstjóri 662-6148  
Finnur Smári Torfason, slátturstjóri 868-4034  
Haukur Halldórsson, flokksstjóri á svæði 1 694-9190  
Heimir Ingimarsson, flokksstjóri á svæði 2 691-5831  
Sara Eik Sigurgeirsdóttir, flokksstjóri á svæði 3 867-8755  
Elva Björk Olgeirsdóttir, flokksstjóri á svæði 4 662-4858  
Jóhann Helgi Stefánsson, flokksstjóri á svæði 5 866-7119  
Heba Björg Þórhallsdóttir, umsjón með skólagörðum 690-3467  


 

Laun og launatímabil

8. bekkur     562 kr/tímann
9. bekkur     629 kr/tímann
10. bekkur   763 kr/tímann

Launatímabil í Vinnuskólanum er frá 20.- 19. hvers mánaðar og er greitt út um mánaðarmót.

Sumarið 2010 fá nemendur fæddir 1994 að vinna í 6 tíma á dag í 8 vikur.   Nemendur fæddir 1995 fá vinnu í 6 tíma á dag í 4 vikur og 3 tíma á dag í 4 vikur, og nemendur fæddir 1996 fá vinnu í 3 tíma á dag í 8 vikur.

Miðað við fulla mætingu getur nemendi sem var að klára 10. bekk unnið sér inn rúmar 183.000 krónur, nemandi sem var að klára 9. bekk getur unnið sér inn rúmar 113.00 krónur og nemandi sem var að klára 8. bekk getur unnið sér inn rúmar 67.000 krónur.

Launin hjá Vinnuskóla Hornafjarðar eru með þeim hærri í Vinnuskólum á landinu

 

Hér er hægt að sjá svæðaskiptingu opinna svæða

 

Helstu verkefni

Helstu störf nemenda vinnuskólans er að raka, hreinsa beð, sópa og hreins gangstéttir, tína rusl og mörg önnur tilfallandi störf, s.s. að mála leiktæki og brunahana.

 

Þjónusta við eldriborgara

Vinnuskólinn bíður eldri borgurum og öryrkjum slátt gegn vægu gjaldi.

 

Skólagarðar

Umsjónarmaður skólagarðanna í ár er Heba Björg.  Skólagarðarnir eru skemmtileg sumarafþreying fyrir börn 6 - 12 ára. Í ár voru 30 garðar í boði en við vonumst til þess að geta aukið þá á næsta ári, þar sem eftirspurnin er mikið.   Í ár settu krakkarnir eftirfarandi niður:

 

Tegund Fjöldi
Blómkál 3
Grænkál 2
Hvítkál 2
Hvótkál fljótsprottið 2
Rófur 6
Hnúðkál - hvítt 3
Hnúðkál - rautt 3
Spergilkál 5
Klettasalat 2
Blaðsalat 1
Eikarblaðsalat 2
Lollo Rosso salat 1
Oregano 1
Steinselja 1
Samtals: 34


Auk þess settum við niður kartöflur, radísur, spínat og sumarblóm.

 


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica