Viðburðir þann

23.04.2006, kl.16:00 Fundur

Opnun kosningarmiðstöðvar

Samfylkingin á Hornafirði opnar kosningamiðstöð kl.16.00 fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Miðstöðin verður á Hafnarbraut 34 við hliðina á Efnalaug Dóru og beint á móti ráðhúsinu. Fyrstu vikuna eftir að miðstöðin opnar verður hún opin þriðjudaginn 25. apríl og fimmtudaginn 27. apríl frá kl. 17:00 - 19:00 og sunnudaginn 30. apríl frá 16:00 - 19:00. Eftir því sem nær dregur kosningum mun opnunardögum fjölga. Allir sem áhuga hafa á málefnum sveitarfélagsins eru hvattir til þess að mæta, ræða við frambjóðendur og koma skoðunum sínum á framfæri. Með því að ræða saman getum gert gott samfélag enn betra og þess vegna segir Samfylkingin: Sterkara samfélag - allir með.

Umsjónaraðili

Samfylkingin á Hornafirði
Hafnarbraut 36

xs@hfn.is
www.hornafjordur.is/xs
 

 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica