Viðburðir þann

16.05.2006, kl. 17:00 Fundur Bein útsending frá Nýheimum

dag kl. 17:00 verður bein útsending kosningaþáttar Svæðisútvarpsins á Austurlandi frá Nýheimum og er sent út á dreifikerfi Rásar 2 (RUV). Í þáttinn mæta efstu menn framboðslistanna hér í Sveitarfélaginu þar sem þeir munu svara pólitískum spurningum útvarpsmanna. Yfirskrift þáttarins er “Um hvað snúast sveitastjórnarkosningarnar á Hornafirði”. Þetta er fjórði kosningaþáttur Svæðisútvarpsins af sex en þegar hefur verið fjallað um kosningarnar á Vopnafirði, Djúpavogi og Seyðisfirði. Kjósendur sem og aðrir eru velkomnir í Nýheima til að fylgjast með útsendingunni sem fer fram í sal Nýheima. Lesa meira
 

 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica