Viðburðir þann

Nýheimar
17.01.2007, kl.14:30 Fundur

Kynningarfundur á starfsemi Sjónarhóls

Kynningarfundur verður haldinn á starfsemi ráðgjafarmiðstöðvarinnar Sjónarhóls, samtökum fyrir börn með sérþarfir. Að Sjónarhóli standa eftirfarandi samtök: ADHD samtökin, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Landssamtökin Þroskahjálp og Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum. Á fundinum verða Guðríður Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri Sjónarhóls, Hrefna Haraldsdóttir fjölskylduráðgjafi hjá Sjónarhóli en auk þeirra verður með í för Ingibjörg Karlsdóttir framkvæmdastjóri ADHD samtakanna. Gert er ráð fyrir umræðum og munu þær svara fyrirspurnum foreldra og annarra er koma að uppeldi eða kennslu barna. Í tengslum við heimsókn þeirra verður einnig bjóða upp á viðtalstíma frá kl.10-14 og mun félagsmálastjóri taka á móti óskum um viðtöl í síma 470-8000. Kynningarfundurinn verður haldinn í fyrirlestrarsal Nýheima.

Umsjónaraðili

Nýheimar
Litlubrú

 

 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica