Viðburðir þann

Torfhildur Hólm
13.10.2007, kl.14:00 Málþing

Haustið í Ríki Vatnajökuls: Torfhildarþing í Suðursveit

Þann 13. og 14. október verður haldið málþing um skáldkonuna Torfhildi Þorsteinsdóttur Hólm (1845-1918) að Þórbergssetri á Hala í Suðursveit. Málþingið er haldið á vegum Fræðaseturs Háskóla Íslands á Höfn og Þórbergsseturs. Auk fjölbreytilegra fyrirlestra verður boðið upp á göngu- og landkynningarferðir um heimaslóðir Torfhildar en hún var fædd og uppalin að Kálfafellsstað í Suðursveit. Málþingið er öllum opið og skráning fer fram hjá Soffíu Auði Birgisdóttur, starfsmanni Háskólaseturs á Höfn, í síma 4708042 og 8482003 eða í tölvupósti: soffiab@hi.is. Þátttökugjald er 6000 kr. og innifalið í verðinu er kaffi og kvöldverður á laugardag; morgunverður, hádegisverður og kaffi á sunnudag og aðgangur að sýningu á Þórbergssetri. Þeir sem vilja lengja dvölina og njóta útivistar gætu komið strax á föstudeginum, merktar gönguleiðir eru að finna í nágrenni Hala og að Klukkugili í Papbýlisfjalli. Þorbjörg og Fjölnir bjóðast til að vera með leiðsögn í gönguferðum á föstudeginum ef áhugi er fyrir hendi og veður leyfir.

Hægt er að panta gistingu á Hala í síma 8672900, á Gerði í síma 8460641, á Smyrlabjörgum í síma 4781074 og á Skálafelli í síma 8945454.

 

 

Laugardagur 13. október

14:00 Þorbjörg Arnórsdóttir setur þingið.

14:15 Soffía Auður Birgisdóttir: Frumkvöðull á mörgum sviðum: Kynning á fundarferli Torfhildar Hólm.

14:45 Gerður Steinþórsdóttir: Brynjólfur biskup Sveinsson. Fyrsta sögulega skáldsagan.

15:15 Kaffihlé.

15:45 Gunnar Karlsson: Endurvinnsla menningararfsins. Um heimildaskáldsöguna Eldingu.

16:15 Silja Aðalsteinsdóttir: „Ráðleggingar, fræðandi greinar, sögur og merkilegar frásagnir, sem bæði geta skemmt körlum og konum.“ Um tímaritaútgáfu Torfhildar.

16:45 Þjóðsögur úr Suðursveit, mannlíf, menning, náttúra. Myndasýning.

19:00 Kvöldverður

20:30 Kvöldvaka: upplestur og fleira.

 

Sunnudagur 14. október

 9-10 Morgunmatur.

10:15 Elín Oddgeirsdóttir: Um dagbók Torfhildar Hólm.

10:45 Dagný Kristjánsdóttir: „Uppskafningur“ um Brynjólf biskup Sveinsson.

11:15 Kaffihlé / Müllersæfingar.

11:30 Þórður Ingi Guðjónsson: „Sá er gauð sem grætur slíkt.” Skáldsagan Kjartan og Guðrún.

12:00 Fjölnir Torfason Verður bókvitið í askana látið? Völvusagan og norræn menning.

12:30 Hádegisverður.

13:30 Heimsókn að Kálfafellsstað og að völvuleiðinu undir Hellaklettum. Leiðsögn Fjölnir Torfason.

16:00 Þingslit.

 

Allir velkomnir að njóta dagskrár í Þórbergssetri og njóta leiðsagnar um Suðursveit

Sjá nánar  www.thorbergur.is

 

 

 

 

Umsjónaraðili

Þórbergssetur
Hala, Suðursveit

thorbergssetur@simnet.is
www.thorbergssetur.is
 

 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica