Viðburðir þann

TAK_TNA
24.10.2007, kl.14:00 Ráðstefna

Erum við hrædd við jafnrétti?

Kvenmenni í karlaveldi

Jafnréttisráðstefna 24. október í ráðstefnusal Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs á Reykjanesi og varpað í gengum FS-netið í Nýheimum. Markmið ráðstefnunnar er að ræða stöðu jafnréttismála og leiðir til að auka jafnrétt kynjanna á vinnumarkaði. Sérstaklega verður farið ofaní hvernig uppeldi og menningarlegt umhverfi hefur áhrif á viðhorf og sjálfsmynd kynjanna. Rætt verður hvernig bæði kynin geta unnið með gildishlaðinn viðhorf kynslóðanna til kynjahlutverka, viðhorf sem birtast í öllu okkar umhverfi frá fæðingu í sjónvarpi, tímaritum, kennslustofum, heimilum o.s.frv.

 

Dagskrá

14:00 – 14:15 - Opnunarávarp -  Jóhanna Sigurðardóttir, velferðarráðherra

14:15 – 14:45 - Kona á Kárahnjúkum -  Yrsa Sigurðardóttir, verkfræðingur og rithöfundur.

14:45 - 15:15 - Kynbundinn launamunur: Hvað má gera og hvað má EKKI gera!  -Þorlákur Karlsson, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík

15:15 -  15:45 - Það er staður í helvíti fyrir konur sem hjálpa ekki hver annarri,  Lotta Snickare 

15:45 – 16:15 -  Játning karlrembunnar, Lars Einar Engström

16:15 -  16:30 -  Hjallastefna fyrir fullorðna - Margrét Pála Ólafsdóttir

Kaffi

16:50 – 17:00 - Samantekt

17:00 – 17:30 - Pallborð - Árelía Eydís Gumundsdóttir stýrir umræðum. Í pallborði sitja Margrét Pála Ólafsdóttir, Yrsa Sigurðardóttir, Þorlákur Karlsson, Stefán Guðmundsson og Runólfur Ágústsson.

Dúett, Sonnetta og myndlist.  Dr. Sigurður Ingólfsson og Ólöf Björk Bragadóttir

Léttar veitingar í andyri

 

 

 

 

Umsjónaraðili

Nýheimar
Litlubrú

 

 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica