Viðburðir þann

03.04.2008 Sýning

Ferðalag um lendur Vatnajökulsþjóðgarðs

Hátt er til lofts í höllu drottningar. . .

Í febrúar var haldinn í Þórbergssetri fyrsti fræðslufundurinn af fjórum í máli og myndum, um landslagið og fólkið á landsvæðinu sem innan skamms mun teljast til Vatnajökulsþjóðgarðs. Þá var fjallað um þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum. Nú er komið að næsta kafla, við förum suður Mývatnsöræfi að fótskör Herðubreiðar. Herðubreið er drottning Íslenskra fjalla, ríki hennar er Ódáðahraun, þar eru heimkynni útilegumanna. Við skoðum landslagið, jarðfræðina og lífríkið. Skoðum bústað Eyvindar Jónssonar, Fjalla Eyvindar, í Herðubreiðarlindum og hlýðum á upplestur. Þar var einnig á Fjalla- Bensi ferðinni, hann bjó í Mývatnssveit, en keypti von í fé sem ekki skilaði sér í eftirleitum.

Lesefni sem tengist þessu efni er bók Gunnars Gunnarssonar, - Aðventa Stórval, Stefán V. Jónsson í Möðrudal sótti fyrirmynd að listsköpun sinni í þetta landslag, ásamt mörgum öðrum listamönnum. Sönghofsdalur er í Krepputungusporði, þar sem álfasöngurinn hljómar....

Efnið er byggt á litskyggnum, sögum og ljóðum fólks sem hefur tengst þessu stórbrotna landslagi á ýmsan hátt. Við fetum að hluta fáfarnar slóðir og skoðum og kynnumst fyrirbærum sem fáir þekkja.

Marteinn Njálsson formaður Ferðaþjónustu bænda mætir í Þórbergssetur þetta kvöld.
Í lok dagskrár ætlar hann að fjalla um starfsemi Ferðaþjónustu bænda og rabba við fundargesti.

Léttur kvöldverður fyrir þá sem eiga langt að, kaffiveitingar í hléi.

Allir velkomnir

 

 

Umsjónaraðili

Þórbergssetur
Hala, Suðursveit

thorbergssetur@simnet.is
www.thorbergssetur.is
 

 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica