Viðburðir þann

Sjónvarpsþátturinn Útsvar
03.10.2008, kl.20:15 - 21:15 Skemmtanir

Hornfirðingar keppa í Útsvari

Föstudagskvöldið 3. október keppa Hornfirðingar í hinum vinsæla spurningaþætti Útsvari í Sjónvarpinu. Það er skemmtileg tilviljun að á móti þeim keppa Seltirningar en þeir voru einmitt fyrri mótherjar þeirra í Útsvari á síðasta ári. Þá unnu Hornfirðingar með 66 stigum gegn 48 í æsispennandi keppni. Keppendur okkar að þessu sinni verða: Sigurður Örn Hannesson, skjalavörður, Kristín Hermannsdóttir, veðurfræðingur og Þórgunnur Torfadóttir, skólastjóri. Þátturinn er í beinni útsendingu og hefst kl. 20.15 strax á eftir Kastlljósi. Hornfirðingar senda liðinu bestu kveðjur

Umsjónaraðili

Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780  Höfn

menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod
 

 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica