Viðburðir þann

Nýheimar
11.10.2008, kl.10:00 - 16:00 Ráðstefna

Lesblindudagurinn

Er einhver sem þér þykir vænt um lesblindur: barnið þitt, maki eða vinur? Þekkingarnet Austurlands stendur fyrir Lesblindudegi þar sem fjallað verður um orsakir og afleiðingar lesblindu, tæknilausnir og aðrar leiðir til þess að þeir geti nýtt hæfileika sína og krafta Spennandi dagskrá allan daginn. Fræðsla um lesblindu, reynslusögur, hjálpartæki , úrræði fyrir börn og fullorðna, tæknilausnir Skráning á www.fna.is og nina@fna.is Aðgangur ókeypis

Lesblindudagurinn 11. október 2008

Dagskrá

 

  • 10:00-10:10 Setning
  • 10:10-10:50 Orsakir og afleiðingar lesblindu, nýjustu rannsóknir: Steinunn Torfadóttir lektor við menntasvið Háskóla Íslands.
  • 10:50-11:10 Það er allt hægt; líf með lesblindu: Jón Sölvi Ólafsson.
  • 11.10-11.25 Kaffi
  • 11:25-11.45 Þjónusta Blindrabókasafnsins, Efni á hljóðdiskum og í MP3 spilara: Þóra S. Ingólfsdóttir, Blindrabókasafni Íslands.
  • 11:45-12.05 Að vera lesblindur: Guðmundur Johnsen formaður Félags lesblindra á Íslandi.
  • 12:05-12:45 Hádegishlé, súpa í kaffiteríu
  • 12:45-12:55 Þjónusta ÞNA og annara símenntunarmiðstöðva við fullorðið fólk með lesblindu: Ragnhildur Jónsdóttir sérkennari.
  • 12.55-13.05 Þjálfunarefni á vef Námsgagnastofnunar: Kristín Gestsdóttir.
  • 13:05-13:15 Stuðningur verkalýðsfélaga við lesblinda aðildarfélaga sína: Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður AFLs.
  • 13:15-13:45 Hugbúnaður í tölvur: Hartmann Kr. Guðmundsson, Örækni.
  • 13:45-14:15 Davis Leiðrétting: Sturla Kristjánsson

 

  • 14:15-15.45         Opið hús, þar sem þátttakendur geta farið milli stofa, aflað upplýsinga og kynnt sér nánar tækninýjungar, hjálpartæki, þjónustu og efni sem kynningaraðilarnir hafa tiltækt og nýtist lesblindum.
  • 15.45:00-16.00    Samantekt og slit ráðstefnunnar: Ragnhildur Jónsdóttir ÞNA.

Fullorðnir með lesblindu og foreldrar lesblindra barna eru sérstaklega hvattir til að nýta sér daginn.

          AFL starfsgreinafélag tekur þátt í ferðakostnaði félagsmanna sinn.

 

www.tna.is

Umsjónaraðili

Þekkingarnet Austurlands
Nýheimar
780  Höfn

ragnhildur@tna.is
www.tna.is
 

 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica