Viðburðir þann

Nýheimar
23.02.2009, kl.13:00 - 16:00 Málþing

Málþing um miðlun, upplifun, ímynd og fræðslu í Ríki Vatnajökuls

Málþingið er einkum ætlað aðilum í ferðaþjónustu en er jafnframt opið öllum sem áhuga hafa á þátttöku. Það er haldið á vegum Háskólasetursins á Hornafirði, í samvinnu við námsbraut í Hagnýtri Menningarmiðlun við Háskóla Íslands.

Dagskráin er eftirfarandi:

Fundarsalur Nýheima, mánudagur 23. febrúar
kl. 13-16 13:00-13:40 Eggert Þór Bernharðsson: “HVERT ER STEFNT" Sögusýningar á Íslandi – Hverju er miðlað og hvernig?”.
13:40-14:20 Gunnþóra Ólafsdóttir: “Náttúrutengsl og upplifanir ferðamanna á Íslandi: fjögur tengslamynstur vellíðunar”.
14:20-14:40 Árdís Erna Halldórsdóttir: “Höfn – þéttbýlið við þjóðgarðinn”.
14:40-15:00 Þorvarður Árnason: “Fræðandi ferðaþjónusta”.
15:00-16:00 Umræður og fyrirspurnir

Upplýsingar um fyrirlesara:
Eggert Þór Bernharðsson er cand. mag. í sagnfræði. Hann er dósent í hagnýtri menningarmiðlun og umsjónarmaður samnefndrar námsbrautar við Háskóla Íslands.
Gunnþóra Ólafsdóttir er doktor í landfræði. Erindi hennar byggir á rannsóknum á tveimur hópum breskra ferðamanna á ferðalagi um náttúruleg svæði á Íslandi. Árdís Erna Halldórsdóttir er masters-nemi í ferðamálafræði. Verkefni hennar fjallar um ímynd Hafnar sem áfangastaðar í augum ferðamanna.
Þorvarður Árnason er doktor í umhverfisfræðum og forstöðumaður Fræðaseturs H.Í. á Hornafirði.

Umsjónaraðili

Háskólasetrið á Hornafirði
Litlubrú 2

haskolasetur@hornafjordur.is
http://www.hi.is/page/Haskolasetur_Hornafirdi
 

 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica